Fréttablaðið - 11.12.2004, Side 72
60 11. desember 2004 LAUGARDAGUR
Margrét Jónasdóttir, förð-unarmeistari hjá MAC,mælir með því að konur
dragi fram það fallegasta í eigin
útliti. Hún farðaði fyrirsætu með
„bjútíförðun“ sem er ákaflega
viðeigandi yfir hátíðarnar og
passar vel með sparifötunum.
„Ég nota yfirleitt matta liti á
augun þegar ég farða á þennan
máta,“ segir Margrét. Hún er
mjög hrifin af lausum augnhár-
um og hvetur konur til að bæta
við augnhárum þegar þær vilja
vera sérlega fínar. Hún byrjar á
því að setja farðann á andlitið
en þarnæst farðar hún augun.
Hún setur ljósan, náttúrulegan
augnskugga yfir allt augnlokið
og bætir svo við öðrum lit til að
fá örlítið meiri dýpt í skygging-
arnar. Hún endar á því að setja
aðeins dekkri lit í kantana. Því
næst setur hún svarta, mjóa línu
yfir efra augnlokið og lætur hana
enda Í kattarkló í gagnauganu.
Hún setur einnig svarta línu
undir augun en gætir þess að lín-
an nái ekki út að efra augnlokinu
því það minnkar augun. Til að
stækka augun ennþá meira setur
hún gulhvítan blýant inn í augun.
„Ég nota alltaf þennan gul-
hvíta blýant ef ég vil stækka
augun því hann er ekki eins
gervilegur og hvítur blýantur,“
segir hún.
Margrét mælir með því að
konur hafi augabrúnirnar þykk-
ar og vel mótaðar og það geri
kraftaverk að skyggja andlitið
með möttu sólarpúðri.
„Það er flott að setja sólar-
púðrið svolítið vel í hárslínuna
og undir kinnbeinin og setja
kinnalit fremst á kinnarnar. Þá
má alveg vera með smá sanser-
ingar efst við gagnaugun.“
Til að gera varirnar sem
stærstar og kyssilegastar kann
Margrét eitt leyniráð.
„Setjið perlulitaðan krem-
augnskugga í amorboga var-
anna. Þetta stækkar varirnar og
gerir þær mjög flottar. Svo er
varalitablýanturinn settur í
kringum varirnar til að móta
þær en varalitalínan má alls
ekki sjást. Best er að setja PRR
gloss yfir varirnar en það gefur
frísklegt útlit og svo er glæru
glossi dúppað yfir.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L,
S
TE
FÁ
N
, H
EI
Ð
A
Álfrún Pálsdóttir, förðunar-meistari í júniform, ermeð það á hreinu hvernig
hún ætlar að farða sig yfir hátíð-
arnar. Það verður glimmer og
aftur glimmer. Til að framkalla
glamúrförðun þarftu að eiga
nóg af stardusti en það er
augnskuggi í duftformi sem
glitrar eins og demantur.
„Það er mjög gott úrval af
Stardusti hjá NoName en svo
erum við að selja mjög gott Star-
dust frá Star Glazer í júniform.
Ég notaði þrjá liti í mína þegar ég
farðaði mig, hvítan með gylltu,
gull- og bronslitaðan. Ég byrjaði
á að bera á mig þann hvíta en svo
setti ég þennan gyllta yfir augn-
lokið að hluta til. Þann bronslit-
aða notaði ég upp að augnbeininu.
Til að birta yfir auganu nota ég
hvítan augnskugga með örlítilli
sanseringu á augnbeinið,“ segir
Álfrún.
Til að fullkomna verkið setti
hún mjóa línu af blautum
eyeliner yfir augnlokið og þurran
svartan blýant inn í augað til að
skerpa á augnumgjörðinni. Áður
en hún byrjaði að mála augun bar
hún meik á andlitið ásamt sólar-
púðri. Stardustið er ákaflega
sniðugt því það má einnig nota
það sem glans á kinnarnar og
jafnvel á líkamann ef viðkomandi
ætlar að vera mjög fín. Álfrún
notar ljósan varalit og setur gloss
yfir.
„Mér finnst þessi förðun virka
mjög vel, hvort sem ég er að fara
á djammið eða í jólaboð. Ef ég
væri að fara í áramótateiti myndi
ég líklega bæta við nokkrum
gerviaugnhárum og skerpa lín-
una í kringum augun með meiri
eyeliner,“ segir Álfrún sem hefur
aðsetur í júniform með þeim
Andreu Magnúsdóttur og Birtu
Björnsdóttur. Andrea og Birta
hafa ákveðnar skoðanir hvernig
hátíðaförðunin eigi að vera.
„Náttúruleg förðun er mál
málanna núna með örlitlum
glimmeráhrifum. Konur verða að
fara varlega í allar augnskygg-
ingar og bananaskyggingin er
alveg dottin út. Við mælum með
ferskjulituðum kinnalit, miklum
maskara og daufum varalit eða
glossi. Svo verða konur að hafa
hugfast að augabrúnir eru alltaf
að þykkna,“ segir stöllurnar.
Varleg & djarfleg
Það þýðir ekki bara að vera flottur til
fara yfir hátíðarnar. Förðunin skiptir
einnig miklu máli. Álfrún Pálsdóttir í
júniform veit hvað ungu pæjurnar vilja
en Margrét Jónasdóttir hjá MAC kann
öll trixin til að líta sem best út.
STARDUST Í NOKKRUM LITUM.
HVÍTAN AUGNSKUGGA MEÐ
SANSERINGU
SVARTAN BLÝANT
SÓLARPÚÐUR
LJÓSAN VARALIT
SVARTAN MASKARA
Þetta verður þú að eiga
í snyrtibuddunni að
mati Álfrúnar
72-73 (60-61) Fólk 10.12.2004 19:47 Page 2