Tíminn - 23.06.1974, Side 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 23. júnl 1974
Sunnudagur 23. júní 1974
Vatnsberinn: (20. janj-18. febr.)
Þessi dagur er ákaflega heppilegur til hvers
konar trúarlegra hugleiöinga, og kirkjuganga
sjálfsögð i dag. Það kann að vera, að einmitt i
dag rætist það, sem þú hefur verið að vonazt eft-
ir, og það svolitið einkennilega.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Einhvers konar viðskipti, brask eða brall er
ofarlega á teningnum i dag, og þú skalt ekki
halda, að allir séu þér sammála. Þú færð að taka
á honum stóra þinum, hvað snertir þolinmæði og
umburðarlyndi.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Ýmsir möguleikar eru á sveimi, — og þú ert vis
með að gripa einhvern þeirra. Nýjar leiðir eru
afskaplega heppilegar, og farsælli en þig örar
fyrir. Flutningar eða umröt gætu lika sett sinn
svip á daginn.
Nautið: (20. april-20. mai)
Ef einhver sýnir þér leiðindi, væri fráleitt að
beita framkomunni gagnvart honum, þvi að þá
værir þú ekkert betri sjálfur. Hins vegar gæti
ýmislegt snúizt þér I haginn, ef þú létir mötlæti
ekkert á þig fá i dag.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þetta er rétti dagurinn til að leiðrétta mis-
skilning og einhver leiðindi, sem oröið hafa á
milli þin og kunningjanna. Svo eru fjármálin
eitthvað i rusli, og þyrftu endurskipulagningar
viö. Notaðu daginn til þess.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Þú ert ekki nögu samvinnuþýður i ákveðnu máli.
Þetta mál er það mikilvægt, að þessi stifni þin
gæti eyöilagt það, og það er mikilvægara en þú
heldur. Þetta er göður dagur hjá þér. Eyði-
leggðu hann ekki með klaufsku.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
1 dag skaltu taka lffinu með ró að svo miklu leyti,
sem þú mögulega getur komið þvi við. Þú skalt
umfram allt forðast að taka mikilvægar ákvarð-
anir, — og I dag gildir það alveg sérstaklega að
taka tillit til annarra.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þú skalthafa augu og eyru opin i dag, þvi að það
litur út fyrir að á fjörur þinar reki vitneskja, er
þú gætir haft gagn af. Hérna gæti verið um að
ræða fjárhagslegt happ, — að likindum i sam-
bandi við kynni af einhverjum.
Vogin: (23. sept-22. okU
Þú hefur verið að bralla eitthvað upp á siðkastið,
og 1 dag er einmitt rétti dagurinn til að láta til
skarar skriða með að koma þvi i framkvæmd.
Þú skalt ekki kippa þér upp við það þótt ein-
hverjir séu mótfallnir þessu i biíi'.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Það er ekki óllklegt, að þessi dagur beri i skauti
sér einhvern fjárhagslegan hagnað þér til
handa, ef þú ert i félagi við einhvern. En i þessu
sambandi skaltu hafa það hugfast, að það er
erfitt að gera fólki til hæfis.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þér hefur verið trúað fyrir leyndarmáli, sem þú
skalt varðveita. Það kemur þér sjálfum I koll, ef
þú ferö að blaðra frá þvi, og þú mátt alls ekki við
þvi núna, ekki gagnvart þeim, sem sagði þér
þetta.
Steingeitin: (22. des.-19. jan).
Eitthvað gerist i dag, ef til vill ekkert stórvægi-
legt, aö þér finnst, en engu að siður litur út fyrir,
að það hafi þó talsverð áhrif I framtiðinni. Það
litur út fyrir að vera i sambandi við eitthvert
samkvæmi.
1 14444 %
mum
V 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN
Tákn
viðreisnar
Þessar myndir eru talandi tákn „viöreisnar”, enda teknar, meö-
an hún stóö i blóma.
viötöku verkfallsstyrknum sinum. Hann var greiddur út, þegar
þeir höföu veriö I verkfalli I hálfan mánuö, og þaö er naumast
hægt aö segja annaö en eftirtekjan hafi verið I fullu samræmi viö
„viöreisnina”, þvl aö fyrir þennan hálfa mánuö fékk hver
einstaklingur greiddar eitt þúsund krónur! Myndirnar eru tekn-
ar I Reykjavik I júnimánuöi áriö 1970.
Hann er eftirtektarveröur svipur mannanna á myndunum. Hann
iýsir ekki bjartsýni og ánægju, eins og svipur manna I dag, hvar
sem menn hittást á förnum vegi. Nú hefur atvinnuleysi veriö út-
rýmt, þaö er verk rlkisstjórnar ólafs Jóhannessonar, — og þaö
þarf engan aö undra, þótt menn segi: Aldrei framar „viöreisn!”
Lætur af skólastjórn eftir 39 ór
Gagnfræöaskóla Siglufjaröar var
slitiö, laugardaginn 1. júni s.I.
Skólastjórinn, Jóhann Jóhanns-
son, skýröi frá störfum skólans og
afhenti prófskirteini og verölaun.
7 fastir kennarar störfuöu viö
skólann, auk skólastjóra og 7
stundakennarar. 159 nemendur
voru I skólanum I 4 bekkjum en 7
bekkjardeildum 157 nemendur
gengu undir próf. 12 nemendur
þreyttu landspróf miöskóla.
Hæstu einkunn á landsprófi
hlaut Guðrún Valtýsdóttir 7,0.
Undir gagnfræðapróf gengu 25
nemendur. Hæstu einkunn á
gagnfræðaprófi hlaut Signý Jó-
hannesdóttir 8,49. í 3. bekk hlaut
hæsta einkunn Guðrún Valtýs-
dóttir 7,70. A unglingaprófi hlaut
Hafsteinn Hafsteinsson hæsta
einkunn 9,38, og var það jafn-
framt hæsta einkunn i skólanum
að þessu sinni. I 1. bekk hlaut
hæsta einkunn Guðrún Blöndal
8,80.
I ræðu sinni skýrði skólastjóri
frá þvi, að nokkru fyrir skólaslit
hefði Kvenfélagið Von á Siglu-
firöi, fært skólanum að gjöf kr. 25
þús. til minningar um frú
Guðrúnu Björnsdóttur, en hún
var um árabil formaður skóla-
nefndar gagnfræðaskólans.
Skólastjóri þakkaði þessa ágætu
gjöf og minntist frú Guðrúnar
nokkrum orðum.
Við skólaslit hlutu þessir
nemendur verðlaun: Hafsteinn
Hafsteinsson úr minningarsjóði
Jóns Jóhannssonar, Ólafur Þór
Ólafsson úr minningarsjóði Odds
Tryggvasonar, Signý Jóhannes-
dóttir frá Stúdentafélaginu og Li-
onsbikarinn, Guðrún Guðlaugs-
dóttir vélritunarbikar Björns
Dúasonar, og frá skólanum hlutu
verðlaun: Hafsteinn Hafsteinsson
og Vernharður Skarphéðinsson.
Að lokinni verðlaunaafhendingu
ávarpaði skólastjóri nýútskrifaða
gagnfræðinga og landsprófs-
nemendur, þakkaði þeim sam-
veruna og óskaði þeim farsældar.
I lok ræðu sinnar gat skólastjóri
þess, að þetta væri nú I siðasta
sinn,er hann sliti skólanum. Hann
væri nú búinn að starfa við
skólann I 39 ár, en hefði nú sagt
stöðu sinni lausri frá 1. sept. 1974
að telja. Þakkaði hann nemend-
um, samkennurum og öllu starfs-
fólki marga ánægjustund og
ágæta samvinnu á liðnum árum
og árnaði skólanum allra heilla I
framtiðinni.
ÁLFNAÐ ER VERK
ÞÁHAFIÐER
&SAMVINNUBANKINN
0
MEIRI VANDI
ER AÐ GÆTA
SAMVINNUBANKINN
®ÚTBOÐ
Tilboð óskast i aö gera göng undir Reykjanesbraut, neöan
viö Blesugróf, ásamt leiðara meöfram Reykjanesbraut.
utboösgogn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 3000 króna
skilatryggingu.
Tilboö veröa opnuö á sama staö miövikudaginn 3 iúli 1974
kl. 11.00 f.h. ,J ’
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
UTBOÐ
~ rj-ycr 'a8",r
slddafrygghigu11 á skrifstofu vorr*. gegn 5000 króna
kriíooT.h3 °PnUÖ ^ S3ma StaÖ Þriöjudaginn 9. júli 1974,
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800