Tíminn - 23.06.1974, Síða 5
Sunnudagur 23. júni 1974
TÍMINN
5
Hildesheim-dómkirkjan og rósatréð
Hin tveggja hæða háa klaustur-
bygging i Hildesheim i Vestur-
Þýzkalandi og kirkjan við
klaustrið eru merkilegar fyrir
tvennt. Annars vegar er þetta
listaverk frá sjónarhóli arki-
tekta, og hins vegar eiga bygg-
ingarnar engan sinn lika norðan
Alpafjalla. Borgin, sem þær eru
i, var reist árið 815, og skömmu
siöar var þetta rósatré, sem hér
sést á miðri myndinni, gróður-
sett. Tréð er talið vera eitt þús-
und ára gamalt, og árlega koma
fjölmargir ferðamenn, bæði
Þjóðverjár og aðrir, og dást að
þessu eldgamla tré.
Hjólið athugað
Lögregluþjónar i Kempten i
Þýzkalandi fylgjast mjög vel
með ásigkomulagi reiðhjóla
þeirra, sem börn þar i bænum
fara á i skólann og skreppa á i
hjólreiðaferðir um nágrennið.
Lögreglumennirnir stöðva
börnin annað slagið og fá að lita
á hjólin, og komi i ljós, að þau
eru ekki i fullkomnu íagi, eru
foreldrar barnanna látnir vita,
og þeir beðnir um að sjá til þess,
að það sem i ólagi er, sé lagfært.
Þaö er mjög hættulegt aö leyfa
börnum að hjóla á fjölförnum
vegum á hjólum, sem ekki eru i
lagi, og það vita þeir i Þýzka-
landi, og gera sitt til þess að
koma i veg fyrir óþarfa slys.
★
Lok, lok og læs...
1 einu af úthverfum Parisar er
verið að byggja mjög stórar og
nýtizkulegar skrifstofubygging-
ar. Þar er margt, sem er talið til
nýjunga i húsbyggingum, t.d.
það, að þar verða ekki notaðir
venjulegir lyklar aö dyrum
hverrar skrifstofu. t staðinn
fyrir lykla verða notuð litil
segulmögnuð spjöld, sem stung-
ið er i þar til gerðar raufar og
opnast þá dyrnar. Þessi spjöld
verður fólk að geyma eins og
lykla, og helzt að hafa þau fest
við töskur eða veskisvo að þau
týnist ekki. Svipuð spjöld verða
notuð við snyrtiherbergin og
eins við bifreiðageymslurnar,
sem fylgja þessum stórbygging-
um. Eftir venjulegan skrifstofu-
tima þá verður l'ólk að hafa
þessi spjöld til þess að komast
inn i bygginguna og eins til að
nota lyfturnar. Hvert spjald er
merkt eigandanum og sérstök
tölva I húsinu fylgist með hver
notar spjöldin og hvar og hve-
nær þau eru notuð.
Siglingar
Senn liður að þvi, að hægt verði
að leggja stund á siglingar i
háskólanum i Kiel. Nú i sumar
verða haldin tuttugu námskeið
fyrir samtals um 700 nemendur,
og geta þátttakendur æft sig á
þvi að sigla hvorki meira né
minna en um 50 mismunandi
skútum. Fjórir kennarar annast
kennsluna, og vinna þeir allir
fullt starf, en auk þess verða
þrir kennarar aðrir, sem vinna
hluta úr starfi. Þarna verður
tekið við bæði byrjendum og
þeim, sem lengra eru komnir i
siglingalistinni, og talið er vist,
að allir muni geta lært eitthvað.
Hótíðahöld í
Monakó
Rainier III fursti i Mónakó hef-
ur haldið hátiðlegt 25 ára afmæli
valdatöku sinnar. Mikið var um
dýrðir, skrúðgöngur, lúðra-
blástur og blómasýningar. Hé á
myndinni er Stephanie
prinsessa dóttir Rainers og
bezta vinkona hennar.
Stephanie er 9 ára gömul, og
hún segir, að ekkert hafi verið
eins skemmtilegt og blóma-
sýningin. Annars var Stephanie
heldur óvenjulega klædd við
þetta hátiðlega tækifæri, þvi
hún hafði valið sér kúreka-
búning sem hátiðaföt.