Tíminn - 23.06.1974, Síða 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 23. júni 1974
Þjóðhátíð
Ólafsfirðinga
heppnaðist vel
þrátt fyrir leiðinlegt veður seinni daginn
B.S.—Ólafsfiröi. — Þjóðhátiö
Ólafsfirðinga hófst laugardags-
kvöldið fimmtánda júni með ung-
lingadansleik i Tjarnarborg fyrir
tólf til fimmtán ára. Dansleikur-
inn fór að öllu leyti hið bezta fram
og unglingarnir skemmtu sér vel.
Sunnudaginn 16. júni klukkan
átta árdegis voru fánar dregnir
aö húni, og var bærinn allur orð-
inn fánum skrýddur um niuleytið.
Meöfram tveimur aðalgötum
bæjarins hafði fánafestingum
verið komið fyrir á ljósastaurun-
um. í þær voru settar stuttar
fánastengur með þjóðfánanum
og 110 ára afmælisfánanum til
skiptis.
Klukkan ellefu flutti tllfar Guð-
mundsson sóknarprestur hátiðar-
messu i ólafsfjarðarkirkju. Viða-
vangshlaup á götum bæjarins
hófst svo klukkan þrettán á veg-
um iþróttafélagsins Leifturs.
Keppt var i fjórum flokkum.
Sigurvegari i fyrsta flokki var
Ægir ólafsson, i öðrum flokki
Guðmundur Garðarsson i þriðja
flokki Gottlin Konráðsson og
fjórða flokki Hörður Agústsson.
Klukkan fjórtán fóru hesta-
menn hópreið um bæinn og siðan
vestur á ósbrekkuflæðar, þar
sem firmakeppni og kappreiðar
hestamanna fóru fram. Fyrstu
verðlaun hlaut Smári, Gunnars
Eirikssonar sem sjálfur var
knapi, og keppti fyrir Rafmagns-
veitur rikisins. Annar varð Sörli,
Andrésar Kristinssonar sem
keppti fyrir vélbátinn önnu ÓF 7.
Þriðji varð Fálki Inga V. Gunn-
laugssonar sem keppti fyrir
Útgerðarfélag Ólafsfjarðar, Ólaf
bekk ÓF 2.
Að lokum fór fram knatt-
spyrnukappleikur á iþrótta-
vellinum kl. 17, á milli 21 árs og
yngri og 21 árs og eldri. Yngri
mennirnir sigruðu með fjórum
mörkum gegn þremur.
Tjaldbúðir skáta i Skeggja-
brekkudal voru öllum opnar til
skoðunar á milli kl. 13-16 þennan
dag. í tilefni þjóðhátiðarinnar
höföu skátar komið upp miklum
tjaldbúðum i dalnum, og ýmsum
öðrum útbúnaði svo sem útsýnis-
turni, sem var 7 metrar á hæð, og
rösklega tuttugu metra langri
hengibrú yfir Garðsá. Þennan
frumlega útbúnað höfðu gestir
hina mestu ánægju af að skoða og
reyna. Manudaginn 17. júni voru
búðirnareinnig opnar kl. 16-19, og
sóttu þær þá margir heim.
Klukkan 10 um kvöldið var svo
dansleikur i Tjarnarborg, þar
sem hljómsveitin Fjarkar lék fyr-
ir dansi. Var dansað til klukkan
tvö af miklu fjöri, og fór dans-
leikurinn hið bezta fram.
Mánudaginn 17. júni voru fánar
dregnir að húni kl. 8 eins og fyrri
daginn. Kl. 14 átti svo aðaldag-
skráin að hefjast viö sundlaug
Ólafsfjarðar, en af þvi gat ekki
oröið, þar sem þá var komið
kalsaveöur af norðan, með súld.
Var þá hátiðargestum stefnt i
Félagsheimilið Tjarnarborg. Þar
setti formaður hátiðarnefndar,
Kristinn Jóhannsson hátiðina
með ávarpi. Næst flutti bæjar-
stjórinn, Asgrimur Hartmanns-
son, stutt ávarp. Kirkjukór Ólafs-
fjaröar söng undir stjórn Frans
Herlufsen söngstjóra. Þá flutti
Sólrún Pálsdóttir, ávarp fjallkon-
unnar. Baldvin Tryggvason
framkvæmdastjóri hélt hátiöar-
ræðuna. Þá var þjóðdansasýning
undir stjórn Birnu Friðgeirsdótt-
ur kennara. Rögnvaldur Möller
kvað rimur. Kristinn Jóhannsson
las upp kvæði, sem ort var i
gamansömum tón um fyrstu
landnámsmennina hér á ólafs-
firði eftir Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur á Syðriá. Þá söng kirkju-
kórinn þjóðsönginn undir stjórn
söngstjorans, en að lokum fóru
fram verðlaunaafhendingar. Að
þeim loknum flutti formaður
þjóðhátiðarnefndar nokkur loka-
orð, en sleit siðan hátiðinni.
Stuttu seinna fór fram sund-
keppni I sundlaug ólafsfjarðar á
vegum Iþróttafélagsins Leifturs.
Þar kepptu stúlkur 10-12 ára og
12-14 ára i 25 metra bringusundi.
1 yngri hópnum sigraði Sigríður
Jónsdóttir á 21,9 sek., en I eldri
flokknum sigraði Jónina Július-
dóttir á 20,2 sek. Þá kepptu
drengir I 50 metra bringusundi i
þrem flokkum, 10-12, 12-14 og 14-
16 ára. 1 yngsta flokknum sigraði
Snorri Olgeirsson á 54,7 sek, I öðr-
um flokki Sæmundur Jónsson á
48,8 sek, og i elzta flokknum Kol-
beinn Agústsson á 41,2 sekúndum.
Báða dagana var kaffisala i
Tjarnarborg til ágóða fyrir
byggingu sjúkrahúss Ólafsfjarð-
ar. Fyrri hátiðisdaginn var sól-
skin og bezta veður, en hinn siðari
var þoka meö noröan kalda og
súld öðru hverju. Óhætt er að full-
yrða, að flestir hátíðargesta hafi
notið hátiðarhaldanna i rikum
mæli, þótt veður seinni daginn
væri ekki eins gott og bezt veröur
á kosiö.
Hátiðarhöldin fóru fram með
miklum glæsibrag, og voru öllum
þeim til sóma, sem að þeim unni á
einn eða annan hátt.
Allir biðu eftir þvi I ofvæni, að eitthvað geröist suður I Svartsengi á föstudagsmorguninn, þegar hleypa
átti annarri borholunni I gos. 1 tvo daga var búið að mynda þjöppun I henni, og stóðu þó nokkrar vonir til,
aö þarna yrði myndarlegasta gos, allt var tilbúið. Fréttamenn héidu niöri I sér andanum, gasinu var
hleypt af — það er Arni útvarpsmaöur Gunnarsson sem er aö virða þann fret fyrir sér — en það var lika
það eina sem geröist. Sumir gerðust meira aö segja svo langeygir eftir gosi, að þeir kiktu ofan I holuna,
— en þaðheföu nú engir nema fagmenn þorað, utan einn svellkaldur, sem lagðieyraðupp að! Svo er alit
byrgt aö nýju og beðið I nokkra daga enn, — og þá vcröur hleypt I gos. Eftir það geta Suöurnesjamenn
farið að tala I fúlustu alvöru um, að nú fari aö styttast I hitavcituna hjá þeim. Timamyndir:Róbert.
Flugfargjöld á Atlantshafi hækka
um 3—5%- frekari hækkanir í vændum
Fort Lauderdale NTB-reuter —
IATA hefur ákveðið að hækka
flugfargjöld á flugleiðum yfir At-
lantshaf um 3-5%. Fjörutiu flug-
félög eiga aðild að IATA og
fulltrúar þeirra allra voru sam-
mála um að hækka þyrfti far-
gjöldin. Áætlað er, að hækkunin
gangi I gildi hinn 1. ágúst. Hún
var nauðsynleg vegna hærra
verðs á eldsneyti, sagði einn for-
svarsmanna IATA.
Aðildafélög IATA ræða nú um
aðra fargjaldahækkun, sem tæki
gildi í haust.
Fó sama verð og
íslendingar
Lagos-NTB-Reuter — Nigeriu-
stjórn hefur aflétt banni á inn-
flutningi skreiðar frá Noregi.
Fulltrúi viðskiptaráðuneytis
Nigeriu sagði, að þessi ákvörðun
hefði verið tekin eftir að Norð-
menn féllust á að selja skreiðina
við sama verði og Islendingar.
Norðmenn hækkuðu skreiöar-
verðið fyrir tveimur árum, og þá
svaraði Nigeriustjórn með þvi að
banna innflutning á norskri
skreið.
Kjarnavopn í ísrael
NTB-Egypzka leyniþjónustan
hefur komizt að því, að margt
bendir til þess, að ísraelsmenn
hafi yfir kjarnavopnum að ráða,
sagði Sadat Egyptalandsforseti i
viðtali við fréttamann bandarisku
sjónvarpsstöðvarinnar CBS.
Þetta gerbreytir stöðunni i
alþjóðamálum, sagði Sadat, og
Egyptar verða að haga sér sam-
kvæmt þvi.
Hann sagði ennfremur, að
Egyptar myndu fara þess á leit
við Bandarikjastjórn, að hún
greiddi þeim bætur sem svöruðu
tveimur milljörðum dollara
vegna þess tjóns, sem Egyptar
urðu fyrir, þegar Israelsmenn
hernámu oliulindirnar á Sinai-
skaga.
Fulltrúi Hvita hússins sagði, að
enn væri beðið nánari fregna um
þetta mál og þvi ekkert unnt um
það að segja að svo stöddu.
Ferjan
— a Akranesi er málið þannig,
sagði Aðalsteinn, — að bærinn
hefur samþykkt, að fara þess á
leit við Samgönguráðuneytiö, að
þeir fái að nota fjárveitingu
ársins I ár til þess að gera aðstöðu
fyrir ferjuna. Þetta verk er I
hönnun sameiginlega hjá vita- og
hafnamálaskrifstofunni og teikni-
stofu Akranesskaupstaðar.
Teikningarnar eru I meginatrið-
um tilbúnar, aðeins eftir að taka
ákvörðun um það, hvernig
hiutirnir verða gerðir, því að um
ýmsar leiðir er að velja. Tiltölu-
lega fljótlegt ætti að vera að
ganga frá þvi.
— En eru málin þá i sjálfheldu
hvað Reykjavikurhöfn varðar?
— Eins og ég sagði áðan hefur
Reykjavikurhöfn litinn áhuga á
þessu og ef til vill hafa eigendur
ferjunnar ekki knúið nógu fast að
dyrum yfirvalda með beiðni um
fyrirgreiðslu I þessu máli.
Málin standa þvi þannig i dag,
að ferjan kemur á morgun,
skýrslu- og teiknivinna tefur
hafnarframkvæmdir á Akranesi,
eins og Björn H. Björnsson orðaði
það, og enginn virðist vita neitt
um það, hver eigi að kosta fram-
kvæmdirnar i Reykjavíkurhöfn.
Virðist það mál hafa ,,dagað
uppi”.