Tíminn - 23.06.1974, Side 11
Sunnudagur 23. júní 1974
TÍMINN
11
Ný bók fró NLFÍ
íslenzkar lækninga- og
drykkjarjurtir.
Höf. Björn L. Jónsson.
ÞaB er ekki á hverjum degi, að
út kemur bók frá Náttúrulækn-
ingafélagi tslands. Þetta er að-
eins þrettánda bökin á 33 árum,
frá þvl fyrsta bók þess kom út.
Þær hefðu mátt vera fleiri, þvi að
allar flytja þær fræðslu um holla
Sigurður Kr. Arnason opnar mál-
verkasýningu I Iþróttahúsi Sel-
tjarnarness laugardaginn 22.
júnl, klukkan 16.
Þetta er þriðja einkasýning
Siguröar, ef frá er talin útstilling
nokkurra mynda I glugga Málar-
ans við Bankastræti 1962. Sigurð-
ur átti málverk á öllum vorsýn-
ingum myndlistamanna, sem
haldnar voru hér i borg á árunum
1962-1970. Einnig tók Siguröur
þátt I samsýningum málara
erlendis.
lifnaðarhætti.
Það var ágætt að fá þessa litlu
bók, sem Björn L. Jónsson, læknir
heilsuhælisins I Hveragerði, hefur
tekiö saman. Hún bendir okkur á
islenzkar jurtir, sem gera má af
hollt og bragðgott te og seyði til
drykkjar I staðinn fyrir kaffi, út-
lent te, cola-drykki o.fl. Einnig
má nota sumar þessara jurta eða
aörar i smyrsli, bakstra ellegar
til matar.
Sigurður Kr. Arnason er fæddur
I Vestmannaeyjum og ólst hann
þar upp. Hann stundaði lengi nám
við Myndlistaskólann I Reykja-
vík.
A sýningu Siguröar eru ein-
göngu ollumálverk, tæplega
fimmtlu talsins, máluð á slðustu
tiu árum, en þó er obbinn af þeim
málaöur á síðustu tveimur árum.
Sýningin er sölusýning en
nokkrar myndir eru I einkaeign.
Sýningin er opin alla virka daga
frá 17-23, og um helgar frá 13-23.
Sýningunni lýkur 30. júni.
Bókin er 79 bls. Frágangur all-
ur, prentun og útlit er ágætt. Lit-
myndir af jurtum eru utan á
spjöldunum, og innan I er fjöldi
jurtamynda, alls rúmlega 60.
Arnheiður Jónsdóttir, forseti
NLFl, hefur ritað stuttan for-
mála. Þá kemur inngangur. Er
þar meðal annars getið um Alex-
ander Bjarnason, sem skrifaði
bók um þessi efni löngu fyrir sið-
ustu aldamót. Síðan koma kaflar
um söfnun jurtanna, þurrkun
þeirra og geymslu, notkun og
verkanir og um jurtablöndur. En
lengsti hluti bókarinnar er um
jurtirnar, hverja einstaka með
tilheyrandi upplýsingum. Ég verð
að játa, að ég kann ekki við þess-
ar gömlu lýsingar á verkunum
jurtanna, en þær munu vera tekn-
ar úr riti Alexanders.
Frá fornu fari hafa verið til hér
á landi svo nefndir grasalæknar,
en fátt er orðið um þá nú. Fólk
hefur gert nokkuð að þvl, einkum
áður fyrr, að drekka te og seyði af
villtum Islenzkum jurtum eða
nota þær til bakstra og borða þær.
Höfundur segir á einum stað: ,,Af
matjurtum má sérstaklega nefna
fjallagrös, söl, njóla, fiflablöð og
arfa, og sem drykkjarjurtir I
staðinn fyrir kaffi og útlent te,
blóðberg, rjúpnalauf, vallhumal
og ljónslappa.” — Enginn vafi er
á þvl, aö þetta er hollt, og hef ég
nokkra reynslu af þvi. Ekki eru
þó allar jurtir hollar, og verður
fólk að vara sig á þeim. Höf segir:
,,Og umhverfis okkur er fjöldi
villtra jurta með sterkar eitur-
verkanir”.
Sumum fellur tebragöiö illa I
fyrstu, en það er staðreynd, að
bragðtaugarnar venjast, svo að
það sem I fyrstu þykir slæmt,
smakkast vel eftir nokkurn tima.
Þarna verður skynsemin og vilj-
inn að ráða ferð, eins og vlöar.
Bragðið er llka mismunandi eftir
þvl, hvernig jurtunum er blandað
saman.
Ekki þarf að gera þvl skóna, aö
fólk almennt gefi sér tima eða
hafi áhuga á notkun þessara
jurta. Alltaf verða þó einhverjir
svo hyggnir aö notfæra sér bend-
ingar þessarar bókar. Mættu þeir
verða sem flestir. Hafi höfundur-
inn beztu þakkir fyrir.
Marinó L. Stefánsson.
Sigurður Kr. Arnason við eitt af málverkum sfnum.
Sigurður sýnir á
Seltjarnarnesi
pólska dróttarvélin
60 hestöfl — Til afgreiðslu næstu daga
— Verð kr. 363.000
40 hestöfl — Verð kr. 277.000
JARÐTÆTARAR GGZ-1,6
Verð kr. 68.000 — Vinnslubreidd 160 sm
KASTDREIFARAR RNZ
Áætlað verð kr. 22.500
VÉUDCC6
Skeifunni 8 • Reykjavík • Sími 8-66-80
Heimir Hannesson
formaður lceland-
ic Imports
1 NÝCTKOMNU fréttabréfi frá
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins er
skýrt frá þvf, að fyrir skömmu
hafi veriö haldinn aðalfundur fyr-
irtækisins Icelandic Imports.
Fyrirtæki þetta er sölufyrirtæki I
Bandarlkjunum I eigu Islenzkra
aöila og selur m.a. ýmiss konar
iönvarning á Bandarlkjamark-
aði, sem framleiddur er af inn-
lendum framleiðendum viða um
land.
Félagið hefur skrifstofu I New
Heimir Hannesson
York og umboðsmannakerfi um
Bandarlkin.
Ný stjórn var kjörin á aðal-
fundi, og I hana voru kjörnir
Heimir Hannesson stjórnarfor-
maður, Bjarni Björnsson, Þór-
hallur Arason, Hafsteinn Bald-
vinsson, Pétur Eirlksson, Haukur
Gunnarsson og Geir Magnússon,
sem jafnframt er framkvæmda-
stjóri félagsins.
I stuttu samtali við blaðið
skýröi Heimir Hannesson frá þvl,
að unnið væri að þvi að breikka
grundvöll og styrkja starfsemi
fyrirtækisins, m.a. með nýju um-
boðsmannakerfi og öðrum sölu-
háttum, og þótt ekki væri tima-
bært að láta I ljós neina bjartsýni
eftir skamman tlma, væri það
skoöun hans, að fyrirtækið væri
a.m.k. á réttri leið I þessum efn-
um. Mikilvægt væri að samræma
aðgerðir íslenzkra útflytjenda
iönvarnings á þessum markaöi til
þess að forðast árekstra og þá
erfiðleika, er þeir yllu.
Heimir Hannesson staðfesti, að
Icelandic Imports hefði gert
samning við Sölustofnun lagmetis
um sölu og dreifingu á Isl. lagmeti
á Bandarlkjamarkaði innan
ákveðins ramma, og ýmislegt
fleira væri i athugun, er skýrast
myndi á næstunni. Hinn nýi fram-
kvæmdastjóri félagsins, Geir
Magnússon, var áður skrifstofu-
stjóri Coldwater, dótturfyrirtækis
S.H. I Bandarikjunum, og hefur
þvl viötæka viðskiptareynslu á
þeim markaði.
-
VINSÆLAR ORLOFSFERÐIR
í sumar og ' jusý til Möltu — sólskinseyjar Miðjarðarhafsins
Brottför: 6. júli. 3.17. og31. ágústog 14. september.
MALTA ER PARADIS FERÐAMANNSINS
Malta hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðamanninn:
Milt og þægilegt loftslag — góð hótel, þjónustu og viðkunna gestrisni — gæöi i mat og drykk —
baðstrendur lausar við alla mengun — glaðværö og skemmtanir viö allra hæfi — hagstætt verð-
lag.
Til Agadir i Suður-Marokkó á vesturströnd
Afriku.
Önnur hópferð okkar á þessar vinsælu ferðamannaslóðir Afríku,
þar sem sumar rlkir allt árið, verður farin 6. október.
Skipuleggjum ferðir um allan heim fyrir hópa
jafnt sem einstaklinga.
Férðamiöstöðin hf.
Aðalstræti 9 — Simar 11255 og 12940
V, __________________________ ^