Tíminn - 23.06.1974, Síða 13
Sunnudagur 23. júnl 1974
TÍMINN
13
HAFIN
SJÚKRA-
HÚS-
BYGG-
ING Á
ÓLAFS-
FIRÐI
BS-Ólafsfirði. Föstudaginn 14
júnl var annar fundur
nýkjörinnar bæjarstjórnar ólafs-
fjarðarkaupstaöar settur klukkan
fjögur á nokkuð óvenjulegum stað
— með öðrum orðum á lóð
væntanlegs sjúkrahúss, heilsu-
gæzlustöðvar og elliheimilis.
Þar var samþykkt I einu hljóði
að hefjast handa um fram-
kvæmdir, en þennan sama dag
hafði heilbrigðismálaráðherra
veitt heimild til þess að byrja
þær. Þessu til staðfestingar stakk
bæjarstjórinn, Asgrimur Hart-
mannsson, fyrstu skóflu-
stunguna.
Fundi var slðanfram haldið i
félagsheimilinu Tjarnarborg.
Bæjarstjórnarmenn lögðu mikla
áherzlu á, að vel væri viðeigandi
að hefja þessar framkvæmdir
sama dag og hátiðahöld til
minningar um ellefu alda byggð I
landinu hófust.
A þeim stað, sem nú skal
byggja, var fyrir nokkrum árum,
steyptur grunnur að elliheimili,
sem þá var hugmyndin að reisa.
En nú hefur teikningum verið
gerbreytt og stórendurbætt allt
fyrirkomulag þeirra bygginga,
sem rísa munu á þessum gamla
grunni og öðrum nýjum og stærri.
Hagsæld í
heimabyggð
x B
„Þar fornar súlur flutu á
land
• • •
— 14 staurar fundnir
HP,—Reykjavik. Dagana 6.-9.
júní var varpað fyrir borð af
Bjarna Sæmundssyni 110 tré-
staurum, merktum „Ingólfur 874-
1974” I sjóinn frá Stokksnesi að
Garðskaga. Var þetta gert fyrir
tilstilli þjóðhátlðarnefndar
Reykjavlkur og nú eru nokkrir
stauranna farnir að reka á land.
Nefndin fékk Hafrannsóknar-
stofnun rikisins I lið með sér, og
enda þótt þetta sé meira til gam-
ans gert, benti Sven Aage Malm-
berg, sem um þetta sá hjá Haf-
rannsóknarstofnuninni, á, að um
leiö væri þetta athyglisverð
straummæling og ef til vill stað-
festing á sögunum um öndvegis-
súlur Ingólfs.
Það var hugmynd Unnsteins
Stefánssonar að fleygja út fyrstu
staurunum út af Stokksnesi en til
þess að hafa vaðið fyrir neðan sig
var þeim dreift allt að Garð-
skaga. Staurar þessir eru þó ólikt
iburðarminni en öndvegissúlur
fornra kappa, sem hingað komu I
landnámshug. Báðir endar þeirra
eru málaðir sjálflýsandi máln-
ingu, en hvitir eru þeir um miðj-
una. Allir eru þeir merktir, eins
og áður segir.
Ingólfur Arnarson henti sinum
súlum I sjóinn, er hann leit landið
i hafi og seinna fundu þrælar hans
þær i Reykjavik, eins og alþjóð er
kunnugt. Aðrir landnámsmenn
fylgdu sömu reglum og hann
hafði gert og leituðu að sínum súl-
um til vesturs, sennilega vegna
þess, að þeir höfðu heyrt um
fundarstað súlna Ingólfs. Loð-
mundur gamli kom að Austfjörð-
um og fann súlur sinar við Jökuls-
á á Sólheimasandi, Þórður skeggi
tók land við Lón, — fann súlurnar
við Leirvog i Faxaflóa, og svo
mætti lengi telja.
Allt bendir til, að súlurnar hafi
rekið til vesturs, meðfram
ströndinni og inn I Faxaflóa, enda
setur strauma yfirleitt inn i fló-
ann.
Nú eru hins vegar komnir i leit-
irnar 14 staurar af þeim, er látnir
voru útbyrðis af Bjarna
Sæmundssyni. Hafa þeir dreifzt
allviða, en mesta athygli vekja
staurafundir við Skrúð.Hefur þá
staura rekið i þveröfuga átt, en
ætlað var, — en staura, sem hent
var i sjóinn við Garðskaga hefur
rekið ,,rétt”uppáMýrar, —enda
gat ekki farið há þvi.
Sven Aage Malmberg kvað þó
enga ástæðu til þess að óttast, —
enn væru tveir mánuðir þar til
ætla mætti að flestir stauranna
væru komnir I leitirnar. Væri fólk
eindregið beðið að ganga á fjörur,
og leita þeirra og til þess að örva
slika leit, hefði þjóðhátiðarnefnd
ákveðið að verðlauna finnendur
með heiðurspeningi til minningar
um afrekið. Eru væntanlegir
finnendur beðnir að tilkynna fund
staura til þjóðhátiðarnefndar i
Hafnarbúðum, Reykjavik, simi
27020.
Á viðreisnartíma
Viðreisnarherrarnir fullyrtu um kosningar
1967, að hagur bænda hefði aldrei verið betri.
Sama ár fór fjöldi bújarða i eyði. Þeir fullyrtu
að hagur launþega væri nógu góður. Það ár var
algengasti vinnutimi 54 stundir á viku.
Þeir fullyrtu, að hagur útgerðar væri með
bezta móti. Sama ár voru fiskiskip og flutn-
ingaskip seld úr landi, án þess að endurnýjun
yrði.
Ekki var haft samráð við bændur, verkamenn
né útgerðarmenn.
K.Sn.
Kortið sýnir þá 11 staði, er staurunum var fleygt og örvarnar sýna þá
stefnu, sem þeir staurar tóku. er fundizt hafa til bessa.
Súlurnar settar fyrir borö.
ALLTAF FJOLGAR VOLKSWAGEN
VOLKSWAGEN
FYRIRLIGGJANDI
Við höfum nú fyrirliggjandi V.W
Framleiðsla þessara bíla er nú
þegar komin yfir 1 7 milljónir.
Þeir eru orðnir svo sjálfsagðir að
folki gleymist hvaða kostum þeir
eru bunir. Þess vegna viljum við
minna yður á stöðugt gæða eftirlit,
frabær vinnubrögð, ódrepandi vél
Þegar þér eruð orðinn eigandi að
Volkswagen þá setjist þér undir
stýrið og. . .
benzíneyðsla
er í lágmarki
SPARIÐ
OG AKIÐ
OG SPARIÐ
OG SPARIÐ V.W. varahluta OG AKIÐ
OG AKIÐ
og viðgerðaþjónusta er örugg og ódýr
- SPARIÐ OG AKIÐ VOLKSWAGEN
^HEKLA hf
Laugavegi 170—172 — Simi 21240
HATT ENDURSOLUVERÐ