Tíminn - 23.06.1974, Síða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 23. júni 1974
Hvolsvöllur. Ljósmynd: Oddur ólafsson.
Kauptúnið á slægjulandi
Orms Stórólfssonar
ÞÓTT Hvolsvöllur standi I landi
landnámsjarðar og forns sögur-
staðar, er saga staðarins ekki
eldri en svo, aö menn, sem
komnir eru yfir miðjan aldur,
muna vel, er ekki voru nema hagi
og mýrar á þeim stað, þar sem
nú er risin blómleg byggð. Þessi
byggö er I örum vexti, og
byggingum, fyrirtækjum og
ibúum fjölgar ár frá ári, cnda er
staðurinn ótviræður höfuðstaður
Rangárvallasýslu. Þar er mið-
stöð verzlunar I héraðinu, sam-
komustaður og aðsetur sýslu-
manns, og iönaðaruppbygging er
þar sivaxandi. Hvolsvöllur ris i
landi Stórólfshvols, þar sem þeir
feögar Stórólfur og Ormur sonur
hans, gerðu fyrst garðinn frægan
og hefur nú um langt skeið verið
læknissetur.
Fyrir nokkru átti Timinn tal við
Ólaf Sigfússon oddvita til að for-
vitnazt um þetta nýja bæjarsam-
félag, hvernig það myndaðist og
hverjir eru helztu atvinnuvegir
þessa einstæða þorps, sem hvorki
stendur viö sjó né árbakka, eins
og öll önnur þorp, kauptún og
kaupstaðir á Islandi.
Ólafur kvað fyrsta vísi að
bæjarkjarnanum hafa orðið til
áriö 1930, þegar Kaupfélag Rang-
æingja stofnsetti útibú, en þá var
Agúst Einarsson kaupfélags-
stjóri. Þá eins og nú bjó læknir á
Stórólfshvoli, landið allt að
Rangá tilheyrði þeirri jörð, sem
var i eigu sýslunnar. Siðar, þegar
árnar voru brúaðar, flutti kaup-
félagið alla starfsemi sina að
Hvolsvelli, en það nafn er gamalt,
þótt þarna hafi ekki verið byggð
áður. Frá Stórólfshvoli allt að
Rangá, sem er i um 15 km fjar-
lægð er jafnlendur völlur. Það var
fyrst og fremst kaupfélagið, sem
stuðlaði að byggðinni. Skömmu
eftir að það fluttist þangað, varð
Hvolsvöllur aðsetur sýslumanns.
Þegar mjólkursalan var skipu-
lögð, annaðist kaupfélagið hana,
og með fyrstu ibúunum, sem
staðfestust á Hvolsvelli, voru
mjólkurbilstjórarnir, sem
önnuðust flutningana. Og segja
má, að enn byggist tilvera Hvols-
vallar nær eingöngu á alls kyns
þjónustu við sveitirnar um-
hverfis, Rangárvelli, Fljótshlið
og byggðina undir Eyjafjöllum.
Þorpið er nú skipulagsskyldur
staður, enda eykst ibúafjöldinn
stöðugt. Samkvæmt siðasta
manntali bjuggu þar um 400
manns, en er nú fleira, og á
siðasta ári fjölgaði um 80 manns.
Hvolsvöllur er ekki sjálfstætt
bæjarfélag, heldur tilheyrir þorp-
Húseigendur -
Bændur
Tökum að okkur alls konar viðgerðir og
viðhald, utanbæjar sem innan. Vanir
menn. Simi 3-76-06 kl. 8-10, annars skila-
boð.
óskast í dag og næstu daga
Hafið samband við skrifstofuna á
Rauðarórstíg 18 — Sími 2-82-61
Félag ungra framsóknarmanna
Mjór er mikils vlsis. Kaupfélag Rangæinga er nú orðið voldugt fyrirtæki I stóru og góðu húsnæði. Hér
byrjaöi það feril sinn á Hvolsvelli.
Afarmikiö er byggt á Hvolsvelli. Kaupfélag Rangæinga lætur árlega byggja allmörg hús, er það lætur
einstaklingum slðan i té, þegar þau eru orðin fokheid. Byggingarkostnaðurinn hefur reynzt óvenjulega
lágur. Myndin er af einu hinna nýju hverfa.
Iðnaðarhúsnæði, sem hreppurinn er að láta byggja við, og hyggst leigja atvinnurekendum, sem vilja
setjast að á Hvolsvelli.