Tíminn - 23.06.1974, Síða 15
Sunnudagur 23. júni 1974
TÍMINN
15
Ólafur Sigfússon oddviti lýsir staðnum fyrir blaðamanni Timans.
ið Hvolhreppi, sem telur um 580
manns, en i hreppnum eru 30 lög-
býli. Ólafur sagði, að fjölgunin i
hreppnum væri mest i þorpinu,
en i sveitinni stendur ibúatalan
nokkurn veginn i stað. Eftir elds-
umbrotin i Vestmannaeyjum
fluttu margir þaðan til Hvols-
vallar, og eru nokkrir Vest-
mannaeyingar að byggia og ætla
að staðfestast á Hvols.velli.
Á Hvolsvelli eru bæði barna-
skóli og gagnfræðaskóli. Barna-
skólinn er fyrir Hvolhrepp, en
gagnfræðaskólinn er sameiginleg
eign fjögurra hreppsfélaga.
Auk kaupfélagsins og fyrir-
tækja þess eru á Hvolsvelli
nokkur önnur fyrirtæki, og má
nefna Austurleið, sem hefur sér-
leyfi til mannflutninga um Suður-
land allt að Höfn i Hornafirði, og
vinnuvélafyrirtækið Suðurverk,
sem starfrækir alls kyns þunga-
vinnuvélar. Þá er á Hvolsvelli
steypustöð, sem selur steinsteypu
um allar sveitir, og blikksmiðjan
Sörli. Langviðamesta fyrirtækið
er Kaupfélag Rangæinga, en 120
manns eru starfandi hjá þvi og
fyrirtækjum þess.
Ólafur kvað það valda nokkrum
áhyggjum, hve ört þorpið byggist
upp, þar sem verið getur, að at-
vinnumöguleikar fylgi ekki nógu
vel á eftir. Fyrir fjórum árum
reisti hreppurinn iðnaðarhús til
að glæða atvinnulifið. Er þar nú
starfrækt saumastofa og hús-
gagnabólstrun, og er hvort
tveggja rekið af kaupfélaginu. Er
nú verið að reisa annað hús fyrir
iðnað.
Hreppurinn hefur sótt um að
gerast aðili að leiguibúða-
byggingum, en húsnæðisleysi
háir mjög æskilegri stækkun.
Margir vilja setjast að á Hvols-
velli, bæði aðilar sem vilja koma
á fót atvinnurekstri og aðrir. Er
þvi mikill skortur á bæði ibúðar-
og iðnaðarhúsnæði. Kaupfélag
Rangæinga hefur aðstoðað menn
við að koma upp ibúðarhúsum
með hagkvæmum kjörum, og
hefur verið skýrt frá þvi áður hér
I blaðinu, en nægilegt húsnæði er
skilyrði þess, að þorpið haldi
áfram að stækka og eflast.
— Ég álit, sagði Ólafur, að
vinnuafl verði að vera á staðnum,
þá kemur atvinna á eftir, á
meðan velmegun helzt og nóg er
að gera. Þeir sem sýnt hafa þvi
áhuga að hefja hér rekstur,
spyrja fyrst og fremst, hvort
vinnuafl sé fyrir hendi, og siðan
eftir húsnæði.
Það er takmarkað, hve mikilli
þjónustu sveitarfélagið getur
staðið undir, og hér rikir mikill
áhugiáað koma upp fjölbreyttari
iðnaði en nú er. Miðstöð félagslifs
i sýslunni er félagsheimilið Hvoll,
sem að miklu leyti er rekið af
sveitarfélaginu. Þar fara fram
allar meiri háttar skemmtanir,
árshátiðir og fundahöld. í félags-
heimilinu er einnig rekið
veitingahús, en þótt veitinga-
reksturinn standi ekki undir sér
sem slikur, teljum við okkur skylt
að veita þessa þjónustu hér i
þorpinu.
Hér er ágætt vatn og góð vatns-
veita, sem hefur mikla
stækkunarmöguleika, og ætti það
ekki að standa aukinni byggð og
iðnaði fyrir þrifum. Hins vegar er
frárennsli dýrt og erfitt viður-
eignar. Við búum nú við skolp-
veitu, sem byggð var fyrir 20
árum. Hún er að verða ófull-
nægjandi og þolir illa þessa miklu
aukningu. Gagngerðra endurbóta
er þvi þörf, og það verður dýr
framkvæmd, en 1 hana verður
að ráðast.
Kannað hefur verið, hvort hér
er heitt vatn i jörðu, en þær at-
huganir hafa ekki gefið jákvæð
svör.
Þær framkvæmdir, sem nú
standa yfir, er lagning oliumalar
á mestu athafnasvæðin i þorpinu,
það er við kaupfélagið, Lands-
bankahúsið og félagsheimilið.
Allar þær götur, sem lagðar hafa
verið á undanförnum árum, eru
þannig frágengnar, að hægt er að
leggja oliumöl án frekari undir-
búnings.
Búið er að úthluta lóð undir
áhaldahús Vegagerðar rikisins,
en bækistöð hennar i Rangár-
vallasýslu er nú hér á Hvolsvelli.
Hér er einnig rafmagnseftirlits-
maður og vinnuflokkur frá Raf-
magnsveitum rikisins, sem sér
um viðhald og viðgerðir i
Rangárvalla- og Vestur-Skafta-
fellssýslu
Helzt viljum við fá hingað
léttan iðnað, sem ekki krefst
mikilla þungaflutninga, en sú af-
staða breytist mikið með batn-
andi vegakerfi. Okkar lifæð er
hvorki höfn né flugvöllur heldur
vegirnir, og erum við mjög háðir
þvi að það sé gott. Þetta á auð-
vitað ekki eingöngu við um Hvols-
völl, heldur ekkert siður sveitir-
nar umhverfis. Það er staðreynd.
að jafnvel jarðaverð hækkar,
þegar góðir vegir eru lagðir um
sveitir. Á siðustu vegaáætlun var
gert ráð fyrir lagningu hrað-
brautar á Hvolsvöll að vestan, og
á þessu ári átti að leggja brautina
að Skeiðavegamótunum, og siðan
áfram hingað austur. En öll mál
eru ekki leyst með hraðbraut
milli Reykjavikur og Hvols-
vallar. Það þarf einnig að hyggja
að vegunum úti um sveitir. Sér-
staklega er Fljótshliðarvegur
orðinn gamall og úr sér genginn
og þarfnast endurbyggingar. Við
horfum til þess með kviða, ef það
dregst að leggja hraðbrautina
áfram austur eftir þvi, að um-
ferðarþunginn eykst með tilkomu
hringvegarins.
—- Hverjar eru þær fram-
kvæmdir sem mest eru knýjandi
af hálfu sveitarfélagsins?
— Barnaskólinn er að sprengja
allt húsnæði utan af sér. Hér er
mikið af ungu fólki, sem von er til
i þorpi i örum vexti. Um 90 börn
eru nú i barnaskólanum, og fyrir-
sjáanlegt er að þeim fjölgar
mikið á næstu árum. Við erum
búnir að fá fjárveitingu til undir-
búnings barnaskólabyggingu, og
hefjast undirbúningsráðstafanir i
sumar, ef allt gengur að óskum.
Einnig hyggjumst við byggja
sundlaug, en hún hefur lengi veri
á óskalistanum. Til þessa hafa
skólabörn þurft að sækja sund-
tima að Laugalandi, eða austur
að Skógum, en vonandi verður
þess ekki langt að biða, að hér
verði komið upp sundlaug, til
hagsbóta bæði fyrir börnin að
aðra ibúa.
— Gagnfræðaskólinn er tiltölu-
lega nýbyggður og er enn nægi-
lega stór, en fyrirsjáanlegt er, að
þar fer að þrengjast. I skólanum
er gagnfræðadeild og landsprófs-
deild. Þá er verið að teikna bóka-
safnshús, sem risa á i tengslum
við gagnfræðaskólann.
Þótt undarlegt megi virðast,
hefur Hvolsvöllur ekki alveg farið
varhluta af sjávarútvegi, og sagði
Ólafur, að sú verkun hefði gengið
vel, meðan á henni stóð. Byrjað
var þar á rækjuvinnslu, en þegar
miðunum við Eldey var lokað,
fékkst ekki lengur hráefni.
Rækjuvinnslan þarna langt inni i
landi byggðist á þvi, að húsnæði
fyrir vinnsluna og vinnuafl var
fyrir hendi. Húsmæður og ung-
lingar unnu við rækjuna, og á
staðnum er mikil frystigeymsla,
sem kaupfélagið og Sláturfélag
Suðurlands eiga sameiginlega.
— En öll okkar mál snúast ekki
einvörðungu um þorpið,- sagði
Ólafur oddviti. Eins og íyrr er
getið, býr umtalsverður hluti ibúa
Hvolshrepps i sveitinni, og ekki
dugir að það fólk verði afskipt.
Sveitarfélagið hefur haft talsverð
afskipti af afréttarmálum. Okkar
afréttur er að miklu leyti sand-
auðn, og undanfarin þrjú sumur,
hefur verið framkvæmd áburðar-
og frædreifing i samvnnu við
Landgræðsluna.
Verið er að gera veg inn á af-
réttinn, og við þurfum
að byggja brú á Markarfljót, en
eins og er þarf að ferja allt fé og
menn i kláfi yfir fljótið, sem er
seinlegt verk og erfitt. Hestana
verður að reka yfir ána. Við erum
búnir að fá fjárveitingu fyrir
brúnni, og standa vonir til að
henni verði lokið á þessu ári.
Enn eitt verkefni hreppsins er
að auka vatnssveituna, þvi að til
stendur að byggja hér sláturhús,
og þarf að fullnægja vatnsþörf
þess, en þá verður sláturhúsið i
Djúpadal lagt niður. Má gera ráð
fyrir að nýja húsið verði byggt á
næsta ári.
A siðasta ári var hafin bygging
26einbýlishúsa, og eru nú 20 hús i
smiðum, allt einbýlishús, og fólk
er flutt inn i fimm viðlagasjóðs-
hús, sem hér voru reist. f vor var
úthlutað 15 lóðum undir einbýlis-
hús, sem smiði hefst á i sumar.
Nægt landrými er umhverfis
þorpið, og mikið svæði er skipu-
lagt, bæði undir ibúðarhúsnæði
og iðnaðarhúsnæði. Er þvi siður
en svo nokkur afturkippur i þróun
byggðarinnar, en það segir sig
sjálft, sagði ólafur að lokum, að
ekki er hægt að byggja eingöngu
ibúðarhús og fjölga ibúunum,
nema fleiri atvinnufyrirtæki
komi einnig á móti.
Langumsvifamesta fyrirtækið
á Hvolsvelli er Kaupfélag
Rangæinga og fyrirtæki þess, og
má með sanni segja, að það sé
uppistaðan i atvinnumálum og
viðgangi Hvolsvallar, þótt fleira
komi til. Siðast liðinn vetur
birtust greinar og frásagnir af
starfsemi kaupfélagsins, og þvi
er ekki ástæða til að endurtaka
það hviliku hlutverki það gegnir i
tilveru þessa myndarlega sveita-
þorps.
Til sölu: 4ra tonna sturtuvagn. Aftan-
í-tengd sláttuvél fyrir ferguson.
óskast keypt: Ársgamlar hænur eða
2ja ára hænur úr búri.
y Disel traktor með ámoksturstæki
Opið milli 2 og 7 mánud. til föstud.
LANDBÚNAÐARÞJÓNUSTAN
Skúlagötu 63 — Sími 2-76-76
Verulegur iðnrekstur er á Hvolsvelli, meðal annars húsgagnagerð á vegum sunnlenzku kaupfélaganna
þriggja, og er efri myndin tekin á húsgagnaverkstæðinu þar, en hin á saumastofu kaupfélagsins.
_ mein
afköst mea
- stjörnu
avél
Ný tækni. Rakai
i jafna, lause
múga. Ríf ur ekk
grassvörðinn. Hreinna hey. KS 80 D. Vinnslubreidd 2,f
m. Lyftutengd. Eigendahandbók á íslenzku.
ÞORHF
REYKJAVIK SKOLAVÖRÐUSTIG 25
TRAKTORAR