Tíminn - 23.06.1974, Qupperneq 18
18
TÍMINN
Sunnudagur 23. júni 1974______________ Sunnudagur 23. júrii 1974 __________________________TÍMINN
23
EINN þekktasti stjórn-
málamaður Fram-
sóknarflokksins er Jón
Skaftason alþingis-
maður, sem setið hefur
Samvinnan
í Kópavogi:
Að við höfum
ekki unnið með
réttum flokki,
skiptir ekki öllu
máli, heldur
hitt að mál
komust í höfn.
á þingi siðan árið|1^59 i
haustkosningunum, en
þá var hann kjörinn
þingmaður fyrir
Reykjaneskjördæmi,
Jón hafði þá unnið það
mikla afrek, að þrefalda
fylgi flokksins i Gull-
bringu- og Kjósarsýslu,
hinu forna kjördæmi að
viðbættum Hafnarfirði.
Hlaut hann þá 1800 at-
kvæði.
Siðan hefur fylgi Jóns
aukizt jafnt og þétt, og i
seinustu alþingiskosn-
ingum var fylgi flokks-
ins um 3,600 atkvæði.
Svo mikið hefur fjölgað
á Reykjanesi, að sú at-
kvæðatala gerir ekki
nema rúmlega til að
tryggja Jóni þingsæti, ef
atkvæðatölur milli
flokka eru óhagstæðar.
Jón Skaftason býr I Kópavogi
og hefur gert siöan áriö 1955.
Hann er fæddur á Akureyri og
alinn upp á Siglufiröi. Jón lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri áriö 1947 og
siöar lögfræðiprófi frá Háskóla
Islands. Vann siðan i stjórnar-
ráöinu, unz hann gerðist þing-
maöur.
Fá kjördæmi utan Reykjavikur
Grindavík:
AAesta hafnar-
framkvæmd á
Islandi. Grinda
víkurvegurinn
fullgerður. Við
vorum í sam-
bræðslu við
Alþýðubanda-
lagið og íhaldið
fékk atkvæðin.
eru eins óskrifaö blað og Reykja-
neskjördæmi. Þar bjóða nú fram
fleiri flokkar en nokkru sinni fyrr,
og þar er herstööin fræga, sem
blandazt hefur inn i islenzk
stjórnmál frá fyrstu tið. Þetta er
blómleg byggö, fiskiðnaður á háu
stigi og mikil og vaxandi útgerð.
Þaö vakti nokkra athygli, að
Sjálfstæöisflokknum varð tals-
vert ágengt I þessu kjördæmi i
bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingunum — á kostnað vinstri
flokkanna, þrátt fyrir stórfellda,
sókn vinstri stjórnarinnar i at-
vinnu- og félagsmálum i þessu
kjördæmi, sem öðrum.
Við hittum Jón Skaftason að
máli nú fyrir skömmu i hita kosn-
ingabarhttunnar og báðum hann
að segja okkur það helzta af
Reykjaneskjördæmi, og hvað efst
hefur þar verið á baugi, póli-
tiskar ættar, og varð hann góðfús-
lega viö þvi. Fer frásögn hans
hér á eftir:
Framsóknarflokkurinn
og kosningarnar
Hafnarfjörður
— Hvernig kom Framsóknar-
flokkurinn út úr bæjar- og
sveitarstjórnarkosningunum ?
— Framsóknarflokkurinn fór
ekki nógu vel út úr þeim kosn-
ingum, né heldur stjórnarflokk-
arnir. Þetta er lika erfitt að skýra
fyrir sjálfum sér og öðrum,
stjórnarstefnan hafði unnið mikið
gagn i hinum ýmsu sveitar-
félögum. Sjálfstæðisflokkurinn
jók hinsvegar fylgi sitt, sem er
óskiljanlegt. Ef við tökum
Hafnarfjörð sem dæmi, þá var
atvinnullf lamað þar, stór-
fyrirtæki búin að loka og við
bæjarfélaginu blöstu ótrúlegir
fjárhagsörðugleikar.
Það er táknrænt, að i sama
fréttatima og lesin eru kosninga-
úrslitin, þar sem sagt er að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi unnið einn
bæjarfulltrúa, þá er jafnframt
sagt frá þvi I fréttatímanum, að
fimm nýir skuttogarar hafi
landað i Hafnarfirði. Þá beitti
fjármálaráöherra sér fyrir þvi,
að Noröurstjörnunni I Hafnarfirði
var veitt fjárhagsleg fyrir-
greiðsla, en reksturinn var að
stöðvast. Þetta varð til þess, að
Noröurstjárnan er nú blómlegt
fyrirtæki, er veitir mikla vinnu.
Svona mætti lengi telja.
Þá hafa staöið yfir miklar opin-
berar framkvæmdir i Hafnar-
firði, bygging fjölbrautarskóla og
menntaskóla, svo eitthvaö sé
nefnt. Heitaveituframkvæmdir
eru hafnar.
Stjórnarstefnan, sem fylgt
hefur verið á kjörtimabilinu hefur
gjörbreytt bæjarbragnum I
Hafnarfirði, atvinnulifinu og al-
mennum hag manna og Sjálf-
stæðisflokkurinn á þar ekki hlut
að máli, þótt hann hafi uppskorið
sigurlaunin af einhverjum
ástæðum.
Rikisstjórnin hafði unniö að
ýmsum málum, sem legið höfðu 1
salti I áratug eða meira meðan
viðreisnarmaran hvildi yfir öllu.
Nú er allsstaðar verið að byggja i
Hafnarfirði og almennur hagur er
góður. Hefur ekki verið betri i
langan tlma.
Kópavogur
— Úrslitin I Kópavogi ollu mér
lika nokkrum vonbrigðum.
, Kópavogur hefur lengi verið hið
sterka vigi Framsóknarflokksins
I kjördæminu, ásamt Keflavik.
Þar er ungt fólk, en einhverra
hluta vegna varð árangurinn i
bæjarstjórnarkosningunum ekki
eins góður I Kópavogi og vænta
mátti.
Vafalaust hefur sameiginlegur
listi með Samtökum frjálslyndra
og vinstri haft sitt að segja og fælt
frá listanum, án þess að ég vilji
þó leggja endanlegan dóm á það.
Ég held að það sé almennt
viðurkennt, að meira framfara-
tlmabil hefur ekki verið i bæjar-
málum I Kópavogi en á siðasta
kjörtimabili, en Framsóknar-
flokkurinn stóð þar að meirihluta.
Þar bjuggumst við við betri út-
komu en þar varð. Reynsla okkar
er þvi svipuð og hjá öðrum, að þar
sem Samtökin eru með gömlu
flokkunum á framboðslistum, þá
virðist það fremur fæla frá
yngstu kaupstöðum landsins og
þar býr ungt fólk, og heita má að
fram til allra seinustu ára hafi
svo til allt verið ógert i Kópavogi,
af þvi sem bæjarfélögum ber að
framkvæma — sé þess nokkur
kostur. Kaupstaðurinn byggist
ört og átti það lika sinn þátt i, að
röð framkvæmda, varö að vera
önnur, en i flestum bæjar-
félögum.
Nú standa yfir stórfelldar
framkvæmdir I Kópavogi. Það er
myndað meirihluta með Sjálf-
stæöisflokknum. Hvað segir þú
um það?
—Þegar við gerðumst aðilar að
bæjarstjórn i Kópavogi með
Sjálfstæðisflokknum fóru i hönd
framfaraár i Kópavogi. For-
sendan fyrir þessu samstarfi var
sú, að þaö var gengið að kröfum
okkar um málefni bæjarins i
helztu atriðum. Meðan hægt er að
mynda meirihluta með ein-
hverjum, sem vill vinna að mál-
það sem mestu máli skiptir, en
ekki hitt, hvort það passar Þjóð-
viljanum I það og það skiptið. í
bæjarstjórnum er það ekki nein
hefð, að meirihlutar séu mynd-
aðir I takt við rikjandi meirihluta
á alþingi og ættu kommúnistar að
vita það.
Keflavik
— í Keflavik tapaði Fram-
sóknarflokkurinn einum manni i
bæjarstjórnarkosningunum.
Rætt við Jón
Skaftason,
alþingismann um
Reykjaneskjördæmi
og kosningarnar
Jón Skaftason, alþingismaður. Jón hefur setið á alþingi siðan hann
vann þingsæti fyrir Framsóknarflokkinn 1959. Nú standa öll járn á að
fella hann. Ihaldið og kommúnistar hafa sameinazt um að reyna að
bægja honum af þingi og sprengiframboð geta orðið örlagarik, þar sem
annars staðar. t haldið græðir á fiokksbrotum vinstri manna.
listanum, en draga að honum
fyigi-
—Ég flutti i Kópavog árið 1955,
átti sæti I bæjarstjórn þar á árun-
um 1958-’62, þegar ég dró mig i
hlé, vegna anna við þingstörfin.
Óháðir kjósendur fóru þá með
meirihluta I stjórn kaupstaðarins.
Kópavogur er um margt sérstætt
bæjarfélag. Hann er einn af
Hafnir,
gleymd
verstöð:
Frystihúsið
hefur eignast
part í
skuttogara.
Nú þarf að
byggja
íbúðarhúsnæði.
verið að byggja upp nýjan miðbæ,
sem hefur þá sérstöðu miðað við
aðra bæi þessa lands, að hann er
skipulagður frá byrjun, og gerum
við ráð fyrir að þetta verði glæsi-
legasti miðbær hér á landi, þegar
framkvæmdum er lokið.
1 Kópavogi er hitaveitan það,
sem fólk biður eftir með hvað
mestri eftirvæntingu. Þar er um
að ræða stórkostlegt hagsmuna-
mál fyrir bæjarbúa, þvl að húsa-
hitun með oliu er orðin dýr.
Gert er ráð fyrir að hitaveitu-
framkvæmdum verði .lokiö árið
1975.
Gatnakerfið er ófullkomið I
Kópavogi, en varanlegt slitlag
hefur þó verið lagt á mikinn hluta
gatna. Það verður einhver bið á
að þvl sem eftir er verði kippt I
lag, þvi gatnagerðina verður að
leggja talsvert á hillur.a, meðan
veriö er að grafa fyrir hita-
veitunni, sem hefur algjöran for-
gang. Ég tel hiklaust, aö þessar
miklu framkvæmdir, sem ráðizt
hefur verið I I Kópavogi, hefðu
tæpast orðið að veruleika svo
fljótt ef Framsóknarflokkurinn
hefði ekki komið til skjalanna, en
hann hefur haft lykilaðstöðu i
bæjarstjórn.
Samvinna i Kópavogi
— Það hcfur verið gagnrýnt, að
Framsóknarmenn hafa á ný
efnum flokksins og baráttu-
málum, þá skiptir það ekki öllu
máli hver það er heldur hvort
málin komast i höfn. Okkur ber
skylda til þess, gagnvart kjós-
endum, að ganga til samstarfs
viö þá, sem vilja vinna að hug-
sjónum flokksins. Við mótuðum
stefnuna að verulegu leyti á
slðasta kjörtimabili, sem eins og
áöur segir er eitt hið mesta
framfaraskeið, sem komið hefur I
Kópavogi.
Aö við höfum ekki unnið með
réttum flokki að þessu að sumra
áliti skiptir þvi ekki öllu máli,
heldur hitt, að mál komust i höfn.
Ég geri ráð fyrir að sú reynsla,
sem fékkst á siðasta kjörtimabili
hafi haft sin áhrif á samstarfið
nú. Ég vil sérstaklega taka það
fram hér,að Kópavogskaupstaður
hefur verið sérstaklega heppinn
með embættismenn og hefur
fengiðmarga góða menn til vinnu
á siöasta kjörtimabili. Ég held að
bæjarstjórinn njóti almenns
trausts. Við vildum þvi hrófla
sem minnst við stjórnkerfinu, þvi
aö það hafði sýnt sig að góöu I
framkvæmd. Þjóðviljinn hefur að
vlsu talið mig sérstakan höfund
að „ihaldssamvinnu” i Kópavogi,
en ég legg ekki linur i bæjar-
málum i Kópavogi. Þó styð ég og
skil afstöðu Framsóknarmanna.
Málefnin, að þau komist i höfn, er
Kosningaúrslitin I Keflavík ollu
vonbrigðum, eins og viðar á
Suðurnesjum. Ekki sizt vegna
þess, að það er almennt viður-
kennt, að bæjarfulltrúar okkar
þar hafi unnið hagsmunum
bæjarfélagsins mikið gagn. Það
sem veldur þessu, eru fyrst og
fremst varnarmálin, sem urðu til
þess að við töpuðum fylgi yfir á
Sjálfstæðisflokkinn og Alþýðu-
flokkinn, vegna þess að það tókst
að vekja ótta fólks um að það
Garða-
hreppur:
Garðhreppingar
verða að styðja
atvinnuupp-
bygginguna,
þótt þeir sæki
vinnu í aðra
bæi.
myndi missa atvinnu ef varnar-
liðið hyrfi úr landinu o.s.frv.
Annað mál er svo það, að ef til
vill hefur aldrei i sögu Keflavikur
verið aflað eins mikilvirkra at-
vinnutækja á jafn skömmum
tima. Alls munu fjórir nýjir skut-
togarar verða gerðir út frá
Keflavik og nágrenni að öllu, eða
verulegu leyti, og fiskvinnslu-
stöðvarnar hafa verið endur-
byggöar til að vera færar um að
taka á móti þessum mikla afla,
sem nú bætist við. Má gera ráð
fyrir að þessir togarar landi um
15-20 þús. tonnum af bolfiski i
Keflavik og þótt hl. aflans fari til
annarra bæja, sem aðild hafa að
þessum togurum, mun verulegur
hluti þessa afla fara til vinnslu i
Keflavlk, en þetta aflamagn er
ámóta og allur þorskafli á
vetrarvertiðinni. Sést af þessu, að
allt kapp er lagt á að efla atvinnu-
lifið i Keflavik.
Herstöðin og atvinnu-
mál suðurnesja
Þegar herstöðin verður lögð
niöur, verðum við að hafa búið
þannig að atvinnullfinu I Keflavik
og á Suðurnesjum, að við séum
algjörlega óháð varnarmálunum
og varnarliðinu
Má segja, að hraðfrystiiðn-
aðurinn og fiskframleiðslufyrir-
tækin I Keflavik séu i fremstu röð
á landinu.
Þá hafa stjórnvöld aðstoöað við
m^rgvislega aðra uppbyggingu i
kaupstaðnum, unnið hefur verið
að stórframkvæmdum I holræsa-
gerð og I skólamálum, og keypt
var stórt viöbótarland af einstak-
lingum fyrir bæjarfélagiö. Við
hefðum þvi eðli málsins sam-
kvæmt, átt að vinna þarna á, ef
reikningsskil milli kjósenda og
stjórnmálamanna hefðu farið
fram með eölilegum hætti.
Okkur er þvi fyllilega ljóst, að
einhver mál spila þarna inn i og
þá sérstaklega herstöðvamálið,
þvi að þaö vill nú svo einkenni-
lega til I þessu landi, að herstöðin
fer mest I taugarnar á þeim, sem
lengst frá henni búa.
Um Njarðvlk gegnir svipuðu
máli og Keflavik, og verður að
vlsa til þess, sem hér greinir að
framan um úrslit kosninganna
þar, en þar vann ihaldið meiri-
hlut.
Ég persónulega lit ekki á_ úrslit
kosninganna, sem vantráust á
byggðastefnu Framsóknarflokks-
ins og atvinnumálapólitik
stjórnarinnar, heldur sé um aö
kenna ótta fólks við atvinnuleysi,
ef varnarliðinu verður visað af
landi brott fyrirvaralaust.
— Mér er það ljóst, að það ber
ekki sizt að efla atvinnullfið á
Suðurnesjum, þar sem varnaclið-
ið spilar inn i, þvi að það er aldrei
aö vita, hve lengi nauðsyn ber til
þess að hafa það i landinu. Annað
væri ábyrgðarleysi. Þess vegna
hefur verið lögð mikil áherzla á
að efla atvinnulifið i þessu kjör-
dæmi að undanförnu.
Grindavik
— í Grindavik er sömu sögu að
segja, Ég reiknaði með meira
fylgi. Við vorum þar i kosninga-
samstarfi við Alþýðubandalagið
og hefur það liklega fælt eitthvað
af fólki frá þvi að kjósa listann og
teljum við, að fylgi hafi færzt yfir
á Sjálfstæðisflokkinn og á
Alþýðuflokkinn.
1 Grindavik hefur verið unniö
að stórframkvæmdum. Þar er nú
unniö að hafnargerð, sem er lik-
lega mesta hafnarframkvæmd,
sem unnin hefur verið i einum
áfanga á Islandi, og er þá ekkert
undanskilið. Það hefur verið
þjóðarsmán, hversu það hefur
dregizt að gera viðhlitandi úr-
bætur I hafnarmálum Grind-
vikinga. Grindavik er eldforn og
fræg verstöö. Höfnin þar hefur
veriö dragbitur á alla þróun og
ekki aðeins hvað sjálfa fiski-
bátana varðar, heldur varð einnig
aö skipa öt afurðum Grindvikinga
frá öðrum höfum og aka þangað
salti og öðrum útgerðarnauð-
synjum eftir hálfófærum vegi til
að koma þeim I haffær skip til út-
flutnings Nú hefur Grindavikur
vegur verið lagður með varan-
legur slitlagi og .er komið hrað-
brautarsamband við Reykjavlk
og Keflavik.
Verstöð hafin til nýrrar
virðingar
Gerum viö ráð fyrir, að þegar
hafnarframkvæmdum er lokið,
þá verði Grindavik ein þýðingar-
mesta verstöð þessa lands, og er
þ!L engin önnur verstöð undan-
skilin.
Hvergi er eins stutt á gjöful
fiskimið og frá Grindavík, bæði
beint út og til vesturs og austurs
og þeim fjármunum, sem þarna
hefur verið varið, er ekki á glæ
kastað. Fyrir þá, sem að þessu
hafa staðið er það lika sérstök
ánægja að hafa átt þátt i þvi að
hefja eina merkustu verstöð
þessa lands til viröingar og fram-
fara.
Ef við vikjum aðeins að
Grindavfkurveginum, þá er hann
dæmi um miklar framfarir.
Vinstri stjórnin lét leggja þennan
veg. Hann tryggir ágætar sam-
göngur og hann tryggir þjónustu
og veitir öryggi, auk þess að hann
sparar bifreiðaeigendum. fé.
Hann færir Grindavik inn i
byggðakjarnann á Suð-Vestur-
landi og þetta hefur haft þau
áhrif, að húseignir hafa hækkaö i
verði I Grindavik, og ný ibúðar-
hús þjóta upp. Heil hverfi hafa
bætzt viö, þar sem litið sem
ekkert var byggt áður. Stækkandi
bæir munu veita aukna þjónustu
til þeirra, sem þar búa.
— Það er ekki ennþá búið að
mynda meirihluta i bæjarstjórn
Grindavikur, þegar þetta er
talað. Þar voru, sem áður sagði
sambræöslulistar, en nú riður á
að þróttmikil bæjarstjórn taki
við, þar sem fyrst.
Gleymda verstöðin
Það er lika rétt að vikja örlitið
að annarri fornri verstöð, sem nú
lifir tlmamót, en það eru Hafnir
Hafnir er forn verstöð og var fjöl-
menn á sinni tið. Þrjú stórbýli
Kirkjuvogur, Kotvogur og
Kalmanstjörn mynduðu kjarna
og skammt var til Básenda, sem
var verzlunarstaður, unz hann
tók af I sjávarflóði árið 1899.
Um allangt skeið hefur litiö
frystihús verið i Höfnum, en
eigendaskipti voru tið og
staðurinn hálfgleymdur, þvi
þegar opnu skipin hurfu og vél-
bátaöldin hélt innreið sina, þá
voru Hafnirnar ekki samkeppnis-
hæfar. Kirkjuvogurinn ætti þó að
geta boðið upp á betri aðstöðu, en
þar er núna. Smábátaútgerð var
þó haldið áfram, en afli hand-
færabáta er stopull I stirðri tið,
þvi að Atlantshafið þrumar þar á
skerjum og flúðum. Lifið gekk þó
sinn vanagang i Höfnum, en
framfarir voru i lágmarki.
Nú er hins vegar athyglisverð
þróun i byggðamálum i Höfnum.
Frystihúsið hefur fengið part i
skuttogara, sem keyptur var
frá Noregi. Togarinn verður
gerður út frá Keflavik en hluta
aflans verður ekið til Hafna til
vinnslu, þar og nú er svo komið,
aö farið er að hugsa til byggingar
á ibúðarhúsnæði, til þess að fólk
geti setzt þarna að og tekið þátt i
atvinnulifi og uppbyggingu.
Mér er sérstök ánægja að geta
skýrt frá þessu hér, þótt ef til vill
finnist einhverjum þetta ekki
skipta sköpum, hvort ein litil ver-
stöð lifir, eða leggst af. Engir
sigrar byggðastefnu okkar eru
smáir, heldur þýðingarmiklir, þvi
aö þeir eru spor i rétta átt.
Sandgerði Garður og
Vogar
Af Sandgerði er það að segja,
að það á að vinna fyrir mikiö fé i
höfninni þar i ár. Bæjarbragur
hefur breytzt til hins betra i Sand-
gerði og Garði, þar sem varan-
legt slitlag hefur verið lagt á
götur. Nokkuð vantar þó á að
hringvegur, Keflavik, Sandgerði,
Garður sé með varanlegu slitlagi,
en það er brýnt að ljúka þvi verki
sem fyrst, þvi að tenging byggða
kjarnanna á Suðurnesjum er
mjög dýrmæt fyrir þetta
byggðarlag.
Þá er rét að vikja ögn að Vatn-
leysuströndinni og Vogunum. Þar
eru hafnarmálin efst á baugi, og
þar hefur verið mikið byggt að
undanförnu. Verulegur skriður
kemst þó ekki á byggð þarna, fyrr
en hafnarskilyrðin hafa verið
bætt.
Þarna eru vel rekin fyrirtæki,
sem standa fyrir sinu og atvinna
er mikil.
Garðahreppur og at-
vinnulif skiptir máli
Garðahreppur er einn nýjasti
bærinn, eöa sveitarfélag, sem er
að breytast i bæ. Flestir ibúanna
eru fjölskyldur sem flutt hafa
þangað til þess að geta reist sér
einbýlishús I friðsælum hverfum.
Reykjavikurborg hefur ekki
getaö annað eftirspun eftir
byggingalóöum og þvi hafa menn
sótzt eftir að fá að byggja i ná-
grannasveitarfélögunum. A
þessu verður að gera nokkurn
greinarmun, þvi oftar flytja
menn, á Islandi, til þess að fá at-
vinnu.
Byggðastefnan og hin mikla
sókn I atvinnumálum, sem staðið
hefur nær allt kjörtimabilið hittir
Garöahrepp ekki i sama mæli
beint i hjartað, eins og aðra kaup-
staði og kauptún þessa lands, sem
margt hafa átt undir stjórn-
völdum. Þarna fékk ihaldið alla
hreppsnefndarmenn kjörna nema
einn. Garðhreppingar hafa þvi
greinilega ekki komið auga á, að
hagur manna er sameiginlegur á
tslandi, og þótt afskipti hrepps-
félagsins séu ekki tengd atvinnu
manna og endurreisn atvinnu-
veganna, þá verða Garð-
hreppingar að styðja upp-
bygginguna i landinu, þvi að þeir
verða að hafa vinnu, þótt hún sé
sótt til staða utan sveitar-
félagsins.
Þó eru þegar nokkur myndar-
leg fyrirtæki i Garðahreppi, og
þar ber hæst skipasmlðastöðina
STALVIK. Skipasmiðastöðin
hleypti af stokkunum fyrsta
skuttogaranum, sem smiðaður er
hér á landi, B/V STALVIK, sem
fór til Siglufjarðar, og þaö var
stór stund i lifi manna, er skipið
hljóp af stokkunum. Rikisstjórnin
hefur gert mikiö átak i skipasmiði
sem var aö leggjast af i tiö
„viðreisnarinnar”
I Bessastaðahreppi er nú unniö
að skipulagsstörfum og undir-
búnar ibúöabyggingar o.fl.
Framhald á
bls. 28 og 29
Seltjarnarnes:
Þar una menn glaðir við sitt og
kjósa íhaldið.
„ÍSBJÖRNINN" fluttur burt,
stærsta atvinnufyrirtækið
í bænum.
Skuttogarinu Sufiurnes. Hafnh hin forna verstöö, sem gleymdist, hefurj fengj|j part j skuttogara og þaö
mun gjörbreyta framtíöarhorfum þessa fámenna, en fornfræga byggöarlags.