Tíminn - 23.06.1974, Page 22
26
TÍMINN
Sunnudagur 23. júni 1974
faðma dýpi, en litli báturinn var horfinn. Aldrei hafði
það hvarflað að honum, að Svala myndi taka slíka
ákvörðun — og nú hafði hún verið í fjóra daga úti á
Fulmar, einsömul með Eiríki!
Hann settist niður á klöppina, þar sem Svala og Eirík-
ur höfðu setið forðum.
Hún hafði þá farið út til hans og snúið baki við öllu —
lifinu og stöðu sinni.
Smámunasemin var eitt af skapgerðareinkennum
Jónasar, og tepruskapur hvað snerti háttaleg heiðar-
legra kvenna gagnvart karlmönnum. Auk þess var Svala
f rænka hans, og blettur á mannorði hennar var blettur á
mannorði hans.
Hann varð að láta strax til skarar skríða. Hann varð að
gera eitthvað til þess að fá hana strax aftur, og ef það
heppnaðist ekki, þá að reyna að f ela smánina. Hann var
nú tekinn að gera sér grein fyrir hinum óhjákvæmilegu
endalokum mannsins, sem hann hafði ákveðið að hug-
hreysta og vernda, enda þótt hann sjálfur liði við það
sömu örlög.
En hvað átti hann að gera?
Skyndilega datt honum nokkuð í hug, og hann spratt á
fætur og f lýtti sér til bæjarins. Stefán var enn að leita og
flestir aðrir karlmenn í Skarðsstöð með honum. Stefán
greiddi þeim f imm krónur á dag, og hafði auk þess heitið
þúsund krónum þeim fyrsta, sem veitti upplýsingar um
hina týndu.
Presturinn haf ði ekki tekið þátt í leitinni, en hann haf ði
beðizt iðulega f yrir. Hann var ekki heilsuhraustur, og för
hans til Bjarnarness, þegar hann hitti Eirík, hafði haft
sín áhrif á hann.
Nú vildi svo til, að séra Ólafur var fyrsti maðurinn,
sem Jónas hitti í bænum. Jónas tók um handlegg hans og
leiddi hann niður í f jöru. Ingólfur var farinn, og sást nú
aðeins sem depill í f jarska. Annað fólk var ekki á ferli,
og hérna sagði Jónas prestinum alla söguna.
— Og hún fór út til hans! sagði séra Ólafur, þegar
Jónas lauk frásögu sinni.
Presturinn let ekki oft koma sér út jafnvægi, en nú
brann eldur innra með honum, augu hans leiftruðu, og
hann var teinréttur í baki.
— Já, hún fór út til hans.
— AAikiI kona er hún.
— Og nú ætla ég út til þeirra, sagði Jónas, og ég vil, að
þú komir með mér, prestur minn. Hún hef ur fórnað öllu,
og það er eitt, sem verður að gera, og það ætla ég að biðja
þig að annast.
Presturinn skildi hann.
— Ég kem með, sagði hann.
Þeir héldu aftur til haf narinnar. Jónas gerði einn segl-
bátinn kláran og þeir presturinn stigu út í hann og settu
upp segl.
Það var komið fram yfir hádegi, og vindurinn, sem
undanf arna daga haf ði blásið af suðri, haf ði snúizt í suð-
vestur. Meðfram allri ströndinni lá hvítur skýjabakki og
undirstrikaði bláma hafsins.
Þegar þeir komu að Fulmar, flaug urmull af mávum
upp og kom á móti þeim, rétt eins og f uglarnir væru að
athuga komumenn og farkost þeirra.
Þegar Jónas stýrði inn að ströndinni, dró hann andann
dj'úpt. Hvar var báturinn, sem Svala hafði komið i hing-
að? Ströndin var eini staðurinn, þar sem hann gat verið,
en hann var hvergi sjáanlegur.
Þegar stef nið rakst í sandinn, stukku þeir fyrir borð og
drógu bátinn lengra upp. Síðan tók Jónas á rás upp að
hellinum.
Það var enginn inni i hellinum. Og þó hafði Svala kom-
ið þangað, því að á vandlega samanbrotnum teppunum
úti í horni lá svört og hvít himbrimaf jöður. Eiríkur hafði
einhvern tíma fundið hana úti á klöppunum og gefið
Svölu hana, en hún bar hana alltaf í hatti sínum.
Jónas tók f jöðrina og stóð með hana í hendinni. Án þess
að segja eitt einasta orð flýtti hann sér upp á hæðina,
með förunaut sinn á hælunum.
Þar var engan að sjá.
Þar sem þeir stóðu, sáu þeir sérhvern krók og kima á
Fulmar, þar sem mannsfótur gat stigið. En það var ekk-
ert að sjá, nema sjófuglana og löðurfaldaðar öldurnar,
sem sungu sálumessu sína niðri i djúpinu.
Jónas renndi augunum út yfir bláan fjörðinn, eins og
hann í örvæntingu sinni væri að vonast eftir að sjá segl,
eithvert merki um þau týndu. En þar var ekkert.
Hádegissólin hélt veröldinni í faðmi sínum, jafnvel
mávarnir höfðu gert hlé á amstri sínu. Hátt í lofti sást
flokkur af súlum fljúga til suðurs.
Ströndin beggja megin fjarðarins sást greinilega frá
neðstu löðurrönd upp til fjarlægustu, litríkustu fjalla-
tinda, og á firðinum hvíldi óbundið, frjálst haf iðog svaf í
náðum undir bláum himninum.
Sogulok
Engan flótta á ndðir Kockums
x B
W
Hll
lll
I
Sunnudagur
23. júni
8.00 Morgunandakt Séra
Pétur Sigurgeirsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir. Veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.Sadler’s
Wells hljómsveitin leikur
„Pineapple Poll”, ballett-
svitu eftir Sullivan, Charles
Mackerras stj.
9.00 Fréttir. Ctdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar a.
Sinfónia i Es-dúr eftir An-
tonln Rejcha. Kammer-
sveitin I Prag leikur. b.
Sónata fyrir flautu og
sembal eftir Frantisek
í Zaver Richter. Jean Pierre
Rampal og Viktoria Svihli-
kova leika. ca. Sónata fyrir
tvær fiðlur og pianó eftir
Georg Benda. David og Igor
Oistrakh leika ásamt Vladi-
mír Jampolský. d. Sembal-
konsert I d-moll eftir Johann
Gottlieb Graun. Eliza Han-
sen og Pfalz-hljómsveitin I
Ludwigshafen leika,
Christoph Stepp stj.
11.00 Kirkjuvígslumessa á
Egilsstöðum (Hljóðr. á
sunnud. var). Biskup Is-
lands, herra Sigurbjörn
Einarsson, vigir kirkjuna.
Sóknarpresturinn, séra
Gunnar Kristjánsson i
Vallanesi,' prédikar. Með
þeim þjónar fyrir altari
Marinó Kristinsson. Leik-
menn og prestar flytja ritn-
ingarorð. Organleikari:
Margrét Gisladóttir.
Safnaðarkórinn syngur
sálmalögin, en Tónkórinn i
Egilsstaðakauptúni flytur
Te Deum eftir Mozart undir
stjórn Magnúsar Magnús-
sonar við undirleik
Kristjáns Gussurarsonar á
pianó.
12.20 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.25 Mér datt það I hug Jónas
Guðmundsson rithöfundur
rabbar við hlustendur.
13.45 lslenzk einsöngslög.Guð-
mundur Guðjónsson syngur
lög eftir Sigfús Halldórsson
við undirleik höfundar.
14.00 Viðdvöl I Borgarnesi.
Jónas Jónasson ræðir við
nokkra heimamenn.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátlð i Belgrad i
hausta. Trió i D-dúr op. 71
nr. 1 eftir Ludwig van Beet-
hoven. Moskvutrióið leikur.
b. Pianókonsert nr. 4 i G-dúr
op. 58eftir Beethoven Maria
Tipo og Filharmoniusveitin
I Belgrad leika, Zivojin
Zdravkovic stj. (Hljóðritun
frá júgóslavneska útvarp-
inu).
16.00 Tiu á toppnum. örn
Petersen sér um dægur-
lagaþátt.
16.55 Veðurfregnir. Fréttir.
17.00 Barnatimi: Gunnar
Valdimarsson stjórnar a.
Ilvað gerist á vorhátiðum
skólanna? Nemendur og
kennarar I nokkrum skólum
heimsóttir. Fluttur hluti af
hátiðardagskrá Hliðaskóla
frá 5. mai. Nemendur I 5.
Mánudagur
24. júni
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. landsm.bl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55:
Séra Björn Jónsson i Kefla-
vlk flytur (a.v.d.v.)
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sverrir Hólmarsson
heldur áfram að lesa söguna
„Krummana” eftir Thöger
Birkeland (6). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög á milli liða.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Kirsten Ilermansen, Gurli
Plesner og Ib Hansen
syngja með kór og hljóm-
sveit Kgl. óperunnar I
Kaupmannahöfn „Elver-