Tíminn - 23.06.1974, Síða 25
Sunnudagur 23. júni 1974
TÍMINN
29
um stöðu og réttindi
viö una. öfgar Sjálfstæöismanna
og kommúnista eru þar ekki til
góös.
Erlendar þjóðir, sem hafa þol-
aö hörmungar stríðs og vitfirrty--
ar eyöileggingar lita ekki sömu
augum á alþjóölegt bandalag,
sem koma á í veg fyrir strfð og
viö. Helmingur islenzku þjóðar-
innar er fæddur eftir heims-
styrjöldina miklu og það er meðal
anriars vegna Atlantshafsbanda-
lagsins og Varsjárbandalagsins,
aö ekki hefur brotizt út strið, og
meöan afvopnun hefur ekki farið
fram, eiga Islendingar að fara
með gát og taka fullt tillit til ná-
grannaþjóðanna. Við deilum ör-
lögum með þeim.
Alþýðu-
bandalagið:
. . . gengur
Möðruvellingar
og fleira fólk
— Nú bjóða 7 flokkar og flokks-
brot fram í Reykjaneskjördæmi.
Hvaða áhrif hefur það?
Hvað varðar Möðruvallahreyf-
inguna sérstaklega, þá hefi ég
ekki mikla trú á, að þeir geti náð
verulegu atkvæðamagni frá
Framsóknarflokknum. Stefna
Framsóknarflokksins er skirt
mótuð og fylgt fram afdráttar-
laust af leiðtogum flokksins.
Möðruvellingar telja, að skoð-
anaágreiningur hafi orðið til þess,
að þeir fóru i framboð fyrir Sam-
tökin. Mér er ókunnugt um meiri-
háttar skoðanaágreining i flokkn-
um, nema við þessa sömu menn
og tel þvi óllklegt að þeir dragi
fylgi af Framsóknarflokknum.
Auðvitað sakna ég ýmissa manna
úr flokknum, en það hryggir míg,
að menn skuli láta hafa sig til
klofningsstarfsemi.
Reynslan hefur sýnt, að með
þvi vinnst ekkert nema það, að
ihaldið efiist og ef svo horfir
áfram, má gera ráð fyrir, að
ihaldið nái hreinum meirihluta á
alþingi.
Alþýðubandalagið er
klofið. Sprengiframboð
hjálpa ihaldinu
Það er gert talsvert úr þvi, að
Framsóknarflokkurinn sé klof-
inn. Það er rangt. Með sama hætti
og miklu frekar mætti segja, að
Alþýðubandalagið sé klofið. Þar
hefur Æskulýðsfylkingin sagt
skilið við flokkinn og býður fram
sérstaklega og Marxistar —
Leninistar hafa lika klofið sig frá
kommúnistum i Alþýðubandalag-
inu og Fylkingunni.
Þeir telja, að Alþýðubandalagið
sé að sigla sömu stefnu og
Alþýðuflokkurinn, stefnu til
minnkandi áhrifa og að flokkur-
inn hafi svikið flest sin stefnumál
og alþjóðleg markmið.
— En flokkur Bjarna Guðna-
sonar?
Lýðræðisflokkur Bjarna
Guðnasonar býður sem kunnugt
er ekki fram. Ég ber mikla virð-
ingu fyrir þeim, að draga sig i hlé.
Þar sýna þeir pólitiskan þroska,
sem verður er til eftirbreytni.
Sprengiframboð bitna oft á þeim,
sem sizt skyldi. Þannig eru Fylk-
ingin, Möðruvallahreyfingin og
Marxistarnir-Leninistarnir fyrst
og fremst að veita ihaldinu stuðn-
ing með þvi að bjóða fram og at-
kvæði félagshyggjufólksins, sem
þá kýs, falla dauð og ómerk og
koma ihaldinu einu að gagni, seg-
ir Jón Skaftason, alþingismaður
að lokum. JG
Ráðstefna
kvenna
í tilefni kvenréttindadagsins, 19.
júni, hefur svohljóðandi fréttatil-
kynning borizt frá samstarfs-
nefnd Kvenréttindafélags ís-
lands, Kvenfélagasambands Is-
lands, Kvenstúdentafélags ts-
lands, Félags islenzkra háskóla-
kvenna og Rauðsokkahreyfing-
unni:
Þann 18. desember 1972 lýsti
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna yfir, að árið 1975 skyldi
haldið alþjóðlegt kvennaár.
Arið skal helga virkari aðgerð-
um til að efla jafnrétti karla og
kvenna, til að tryggja fulla þátt-
töku kvenna i uppbyggingu og
framförum og til að viðurkenna
„mikilvægi vaxandi framlags
kvenna til aukinna vinsamlegra
samskipta og samvinnu milli
rikja og til eflingar friðar i
heiminum.”
t tilefni af þessu hafa ýms sam-
tök, sem vinna að jafnrétti og
hafa samtals tugi þúsunda með-
lima innan vébanda sinna, komið
sér saman um að minnast þessa
árs með ýmsu móti. Ætlunin er,
að þessir aðilar hafi samstarf um
ýmsar aðgerðir á alþjóðakvenna-
árinu.
Aðgerðir þessar eiga að miðast
við fróðleik um stöðu kvenna i
hinum ýmsu þjóðlöndum á mis-
munandi skeiðum sögunnar. Til-
gangurinn er að vekja fólk til
vitundar um stöðu kvenna og að
vinna að jafnrétti og friðsamleg-
um samskiftum.
t athugun er undirbúningur all-
viðtækrar ráðstefnu um þetta
efni. Ætlunin er að bjóða þangað
erlendum fyrirlesurum, yrði ráð-
stefnan væntanlega á þessum
tima næsta ár. Þá er i athugun
möguleikar á samnorrænni sögu-
legri sýningu um stöðu kvenna og
fyrirlestrum i þvi' sambandi.
Þá hafa þessir aðilar hug á
sameiginlegum aðgerðum til að
vekja athygli á málum þessum
bæði i sinum eigin málgögnum og
öðrum fjölmiðlum.
Reynt verður að undirbúa sér-
staka þætti um stöðu kvenna i
þróunarlöndunum og fræðilegir
fyrirlestrar verða haldnir i Rikis-
útvarpinu i tilefni af árinu.
Ýmsar fleiri hugmyndir hafa
komið fram og eru enn i athugun.
Ódýr gisting
í Reykholti
Nú getur hver sem er notiö hinnar
ódýru orlofsþjónustu Alþýðuor-
lofs f Reykholti I Borgarfirði, þar
sem forgangsfrestur aðildar-
félaga er runninn út.
1 Reykholti er hin ákjósanleg-
asta aðstaða til orlofsdvalar. Þar
er sundlaug og gufubað,
ásamt aðstöðu til að iðka
borðtennis, opin öllum dvalar-
gestum án aukagjalds. Þá eru
umhverfis staðinn ákjósanlegar
gönguleiðir, svo að þeir, sem hafa
áhuga á að trimma i friinu hafa
þarna kjörið tækifæri til þess.
Dvalargestir koma á laugar-
dögum og eru yfirleitt eina viku.
A mánudags- og föstudags-
kvöldum er efnt til spilakvölds og
kvöldvöku og tvisvar i viku er
boöið upp á skoðunarferðir um
héraðið og inn i óbyggðir.
Boðið er upp á ágæt tveggja
manna herbergi með vaski og
lagður til rúmfatnaður. Þá eru
framreiddar þrjár máltiðir á dag,
en lögð til kaffihitunaraðstaða, til
eigin afnota fyrir gesti.
Þa verður i sumar fitjað upp á
nýjung, sem eru helgardvalirfyrir
starfshópa, sem fá fæði á laugar-
dögum og sunnudögum, en
mundu þá koma á staðinn á föstu-
dagskvöldi. Kostnaður við slika
helgardvöl, með svefnpokaplássi,
mundi vera 2.500 krónur.
Siöastliðið sumar notuðu marg-
ir sér þessa þjónustu sem
reyndist hin vinsælasta, ekki sizt
meðal húsmæðranna, sem sluppu
við matargerðina, sem oft er erfið
i frium. Þegar þess er gætt, hvað
þaö kostar að útbúa sig með
niðursoðinn mat og annað sem til
feröalaga þarf, verður það að
teljast ódýrt, að greiða kr. 7.500
fyrir fæði, herbergi, með rúm-
fatnaöi og afnot af gufubaði og
sundlaug i heila viku. Þess má
geta, að einnig er veittur fjöl-
skylduafsláttur.
Tekið er á móti pöntunum og
nánari upplýsingar gefnar i
Reykholti kl. 10-12 daglega. Starf-
semi þessi hefst 6. júli og stendur
i sjö vikur. (Fréttatilkynning)
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450
EIN ÞEKKTUSTU
\ AAERKI
[SUNNaK) norðurlanda
BATTERER J
RAF-
GEYMAR
6 og 12 volta Sönnak og Tudor
Rafgeymar jafnan fyrirliggjandi
T5T
„Hóflegt atvinnuleysi" —
i ógnun /fviðreisnar"-stefnunnar
x B
fisléttur og hlýr, fóðraður með dralon eða ull.
Ytra byrói úr vatnsvörðu nyloni, innra byrði úr bómull.
óskast i eftirtaldar bifreiðar, er verða til sýnis þriðjudag-
inn 25. júni 1974, kl. 1-4 i porti bak við skrifstofu vora Borg-
artúni 7:
Mercedes Benz 21 sæta
Neoplan Benz 26 sæta
Volvo Amazon fólksbifr.
Toyota Dyna sendiferðabifreið
Volkswagen 1600 A fólksbifreið
Volkswagen 1200 fólksbifreið
International Scout
Land Rover benzin
Land Rover benzin, lengri gerð
Land Rover benzin
Land Rover benzin
Willys jeppi
Gaz ’69 torfærubifreið
Coramer sendiferðabifreið
árg. 1970
” 1960
” 1967
” 1972
” 1971
” 1972
” 1970
” 1969
” 1971
” 1966
” 1965
” 1964
” 1968
” 1967
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 5.00 að viðstöddum
bjóðendum. Réttur áskilinn að hafna tilboðum, sem ekki
teljast viðunandi.
Það þarf aðeins aö renna saiman tveimur
Gefjunar svefnpokum
og gera úr beim einn tvíbreiðan poka.
GEFJUN AKUREYRI