Tíminn - 23.06.1974, Qupperneq 26
30 TÍMINN Sunnudagur 23. júni 1974
Skínandi
skemmti-
leg LP
plata með
„Abba". .
Sænska hljómsveitin Abba, sem
fékk fyrstu verðlaun i Eurovision-
keppninni fyrir lag sitt Waterloo,
býður nú íslendingum upp á skin-
andi skemmtilega LP hljómplötu.
Auð verðlaunalagsins, sem
bæði er flutt á ensku og sænsku,
eru mörg stór góð lög. Sérstak-
lega er siða eitt áheyrileg, en þar
er eiginlega hvert lagið öðru
betra. Beztu lögin á plötunni eru
Waterloo, Sitting in the palm-
tree, King kong song, Hasta
manana, My mama said og
Honey, honey. Þetta er vissulega
hljómplata, sem vert er að gefa
gaum. í framhaldi af þessu er
ekki úr vegi að koma þvi á fram-
færi við hljómplötuverzlanir,
hvort ekki sé -athugandi að flytja
inn fleiri plötur, sem þau Björn,
Benny, Agnetha og Frida hafa
sungið inn á. Undirrituðum er
kunnugtum, að þaðer að minnsta
kosti ein LP plata til viðbótar,
sem ABBA hefur leikið og sungið
inn á.
ABBA (BJÖRN, BENNY, AGNETHA & FKIDÁ)
WATBU.OO
Pónik, eins og hljómsveitin er skipuð um þessar mundir.
Einar Júlíusson syng-
ur á ný með Pónik
— Var búinn að fá nóg af hvíldinni frá söngnum
Þær breytingar hafa nú orðið á
skipan hljómsv. Pónik, að
Þorvaldur Halldórsson, söngvari
og bassaleikari, hefur sagt skilið
við hljómsveitarbransann að
sinni og flutzt til Vestmannaeyja.
Hinn góðkunni Einar Júliusson
mun taka við söngnum i Pónik, og
er ekki hægt aö segja annað en aö
hann sé þar heimavanur, þvi
hann söng hér áöur fyrr um ára-
raöir með Pónik.
Kristinn Svavarsson mun taka
að sér bassagitarinn. Aðspurðir
sögðust piltarnir ætla aö vera
með blandaða músik, og ef timi
vinnst til, ætla þeir að fara út
fyrir landsteinana og taka upp LP
hljómplötu.
Siöan Þorvaldur byrjaði með
Pónik hafa tvær tveggja laga
plötur komið út með hljómsveit-
inni, en þær voru hljóðritaðar hér
heima. Þá voru hljóðrituð fjögur
lög, en hljómsveitin fór til Noregs
ekki alls fyrir löngu, og eru þau
væntanleg á tveim tveggja laga
plötum I sumar og haust. Tvö af
þessum lögum eru eftir Þorvald
og eitt eftir Kristin, en fjórða lag-
iðer ættað frá Kanada. Útgefandi
er Á.A. hljómplötur. Aðeins einn
aðstoðarhljóðfæraleikari var
Pónik til fullþingis við upptökuna,
en það var Norðmaður að nafni
Frode Thingnæs, sem leikur á
básúnu. Til gamans má bæta þvi
við, að þessi norski hljómlistar-
maður útsetti og stjórnaði fram-
lagi Norömanna I slðustu Euro-
vision-keppni.
Einar var hinn hressasti, er við
ræddum við hann, og kvaðst hafa
verið búinn að fá nóg af hvildinni
frá söngnum. „Þetta eru allt
strákar, sem ég hef starfað með
áður I hljómsveit, svo ég kviði
engu með samstarfið, enda kann
ég bezt við mig I Pónik”.
Popp-syrpa með meira....
Þuriður og Pálmi sjá um
sönginn i Sigtúni.
Fyrir skömmu siðan kon út
tveggja laga plata með Peli-
can, en þar er titillagið
„Jenny darling”. Innan
skamms kemur svo á markað-
inn LP plata með hljómsveit-
inni. Meðal laga þar er hið
góökunna lag Sigvalda Kalda-
lóns Á sprengisandi útsett af
Pelican.
Roof Tops hafa einnig verið
erlendis við hljómplötuupp-
töku, og ekki má gleyma þvi,
að það er hin þjóðkunni A-
mundi Amundason, sem gefur
út plöturnar.
Fólk er misjafnlega ánægt
meö hljómsveitina I Sigtúni,
en undirritaður verður bara
að segja það, að honum finnst
Islandia bara anzans ári góð.
Þá er það stórsniðug hugmynd
að spila góðu gömlu rokklögin
I pásunum, á fullum styrk,
enda mæltist það v^l fyrir. Hið
nýja Sigtún er hið prýðileg-
asta danshús, og ekki getur
maður kvartaðyfir þrengslum
á dansgólfinu, enda er það
sennilega eitt það stærsta á
landinu. Gott framtak hjá
Sigm.
Er það satt, að „Samúel”
hafi gerzt alldjarfur eftir að
hann fékk lögskilnað við heit-
mey slna „Jóninu”? Hvað
sem þvi liður verður þvi ekki
neitaö, að blaðið er hið for-
vitnilegasta, þótt meira mætti
vera I þvl af efni, sem tengt er
poppinu. Ritstjóri Samúels er
Þórarinn J. Magnússon.
Hún rýkur út hljómplatan
hans Hauks Morthens, Svavar
brosir kampakátur, en Hauk-
ur syngur „Ef ég væri rikur”.
Tlðindamaður þáttarins
hitti Jörund, háðfuglinn góð-
kunna, á förnum vegi. Að-
spurður kvaðst Jörundur vera
nýkominn frá Kaupmanna-
höfn, þar sem hann skemmti á
fagnaði íslendingafélagsins,
ásamt þeim Sigurveigu Hjalti-
steð og Svölu Nielsen. Hljóm-
sveit Þorsteins Guðmundsson-
ar lék fyrir dansi. Jörundur
kvaðst hafa veriö ánægður
með móttökurnar, enda hafði
stemmningin verið sérstak-
lega góð.
Næsta LP plata Hljóma
verður meö Islenzkum textum
Það var minnzt á Kaup-
mannahöfn hér fyrr I pistlin-
um. I framhaldi af því má
geta þess, að nýlega fóru þau
Svanhildur og óli Gaukur til
þeirrar mjög svo góðkunnu
borgar, ásamt Reyni Jónas-
syni. Erindið var hljómplötu-
upptaka fyrir SG-hljómplötur.
Svanhildur söng inn á barna-
plötu, en Reynir fæddi af sér
nýja harmónikuhljómplötu, að
sjálfsögðu með aðstoð
danskra hljóðfæraleikara og
tæknimanna. Þær ku vera vin-
sælar nikku-plöturnar.
Yngstu sjónvarpsáhorfend-
urnir kannast við fyrirbærið
Róbert bangsa. Nú eru
væntanlegar plötur, þar sem
byggt er á þessari sjónvarps-
stjörnu Ilagaformi. Já, plötur,
en ekki plata, þvi það eru tveir
aðilar um hituna A.A. hljóm-
plötur gefa út LP plötu með
lögum um þennan bangsa, en
hljómplötuútgáfa, sem
Magnús Kjartansson stendur
að, gefur aftur á móti út fjög-
urralaga hljómplötu, og nú er
spurningin, hvor veröur á
undan.
Það hefur verið frekar hljótt
um úrslitin I trimm dægur-
lagakeppninni, en þátturinn
hefur sannfrætt, að væntanleg
sé LP hljómplata með lögum
úr keppninni.
Undirritaður ætlar að enda
þennan pistil með þvl að beina
þvl til Hannesar Jóns, að hann
hafi samband við þáttinn hið
fyrsta.
B.V.