Tíminn - 23.06.1974, Blaðsíða 29
Sunnudagur 23. júni 1974
TÍMINN
33
hestasveininn:
,,Þú verður að hafa
ráðið draum minn innan
þriggja nátta, annars
læt ég hengja þig”.
Sveininum var nú
varpað i fangelsi. En
þriðju nóttina, sem hann
var i fangelsinu,
dreymdi hann, að til
hans kæmi maður vel
búinn. Maður þessi tók i
hönd honum og sagði:
,,Segðu Portúgals-
konungi, að hann skuli
vera var um sig, þvi að
tveir af bræðrum hans,
sem báðir eru hertogar,
sitja á svikráðum við
hann. Ætla þeir sér að
gera uppreisn og ná
rikinu á sitt vald”. Að
svo mæltu hvarf draum-
maðurinn.
Morguninn eftir var
hestasveinninn leiddur
fyrir konung og sagði
hann þá draum sinn.
Konungur lét rannsaka
málið, og kom þá i ljós,
að það reyndist hárrétt,
sem draummaðurinn
hafði sagt.
Hertogarnir, bræður
konungs, fengu makleg
málagjöld, en hesta-
sveinninn var settur til
mennta og átti hann
framvegis að búa i
konungshöllinni og sitja
daglega við borð
konungs.
Rauður varð nú enn
reiðari en áður og
leitaðist við að hefna sin.
Á hverju kvöldi læddist
hann að herbergisdyr-
um hestasvéinsins og
gægðist inn um skáar-
gatið. Einhverju sinni sá
hann þá, að kóngssonur,
eða hestasveinninn, sem
hann var alltaf kallaður,
dró skúffu út úr skrif-
borðinu sinu og tók úr
henni skjöl nokkur. Las
hann i þeim um stund.
Siðan tók hann upp
mynd og skoðaði hana
vandlega.
Rauður hélt, að þetta
mundu vera galdrastaf-
ir, sem kóngssonur var
að skoða, og mundi hann
vera mesti töframaður.
Fór hann nú á fund
konungs og sagði honum
frá grun sinum. Bað
hann kónginn að koma
með sér og gætu þeir svo
sjálfir séð, hvað i
skúffunni væri.
Kóngurinn varð við
bón hans og fór að hitta
hestasveininn ásamt
Rauði. Þeir börðu
harkalega að dyrum.
Kóngssonur dró þá
sverð sitt úr sliðrum, en
þegar hann sá, að það
var sjálfur kóngurinn
sliðraði hann það aftur i
skyndi og bauð honum
að ganga inn. Kóngur
skipaði honum þá að
sýna sér myndina, sem
hann hefði verið að
skoða fyrir skömmu, og
hlýddi pilturinn þvi á
augabragði. Konungur
leit á myndina og sá, að
hún var af ljómandi
fallegri stúlku.
„Hver er þetta?”
spurði konungur.
„Það er hún systir
min”, anzaði pilturinn.
„Hvar á hún heima?”
spurði konungur.
„Hún er nú sem stend-
ur rikisstjórnandi á
Spáni”, svaraði
sveinninn.
Þá rak Rauður upp
skellihlátur.
„Þetta eru ósann-
indi”, svaraði Rauður,
ég þekki þessa stúlku
mæta vel”.
„Þar sem þú þekkir
hana svo vel, þá getur
þvi vist sagt okkur,
hvaða merki hún ber á
vinstri öxlinni,” sagði
pilturinn.
„Ég hef' ekki tekið
svo vel eftir þvi”,
svaraði Rauður, „en ég
get áreiðanlega brátt
fengið að vita það.”
Konungur ákvað nú,
að gæti Rauður fengið
vitneskju um þetta að
skömmum tima liðnum,
þá skyldi hestasveinninn
verða hengdur, en að
öðrum kosti yrði Rauður
að láta lifið.
Rauður lagði undir
eins af stað til Spánar en
kónssyni var varpað i
fangelsi, svo að hann
gæti ekki flúið. Að fáum
dögum liðnum kom
Rauður að landamærum
Spánar og Portúgals og
gisti þar i veitingahúsi
einu. Rauður spurði
gestgjafann, hvort
nokkuð hefði nýlega
borið til tiðinda i
Spánarveldi.
„Tiðindi mega það
kallast”, mæti gest-
gjafinn, „og þau ekki
góð, að ungi kóngurinn
okkar er flúinn burtu, og
enginn veit, hvar hann
er niðurkominn. Systir
hans stjórnar rikinu.
Hún er að visu góð og
vitur, en hann var nú
samt rikisarfinn.
Rauður spurði nú
gestgjafann, hvort hann
vissi, hvaða merki
kóngsdóttirin bæri á
vinstri öxlinni, en hann
kvaðst ekki hafa hug-
mynd um það. En hann
visaði honum til gömlu
frúarinnar i Liljulundi,
hún hefði verið barn-
fóstra kóngsdótturinnar,
og hún ætti að vita það,
ef kóngsdóttirin hefði þá
nokkurt fæðingarmerki.
Rauður kom siðan að
Liljulundi og talaði við
gömlu konuna. Tókst
honum að fá hana til að
segja sér, að kóngsdóttir
hefði vörtu á vinstri öxl,
og út úr vörtunni yxi eitt
hár úr silfri og annað úr
gulli.
Rauður fór nú aftur
heim til Portúgal og var
heldur en ekki kátur.
Gekk hann fyrir konung-
inn og kvaðst .nú albúinn
þess, að leysa úr
spurningunni. Var nú
hestasveinninn sóttur,
og sagði Rauður frá þvi,
sem hann hafi hafði
fengið að vita, en bætti
þvi við, að hann hefði
séð það sjálfur.
Nú átti hestasveinninn
að láta lifið. En áður en
snörunni var brugðið um
háls honum, var honum
leyft, að fá siðustu ósk
sina uppfyllta. Hann
óskaði þá að fá að sjá
konungshöllina i Madrid
Var nú farið með hann
af stað til Spánar i
lokuðum vagni. Vagnin-
um fylgdu margir
vopnaðir hermenn, sem
áttu að gæta þess, að
pilturinn kæmist ekki
undan. Þeir héldu nú
áfram unz þeir komu til
konungshallarinnar i
Madrid, óku þeir þrisvar
hringinn i kringum
höllina og námu i hvert
skipti staðar fyrir utan
aðaldyr hallarinnar.
Þegar þeir námu staðar
Framhald
i Kaupfelaginu
i