Tíminn - 23.06.1974, Síða 36
SIS-FOIHJR
SUNDAHÖFN
fyrir góéun mat
^ kjötiðnaoarstöð sambandsins
■ . . ■ .
FORSPRAKKAR „VIÐREISNAR '-FLOKKANNA, SJÁLFSTÆÐISFLOKKS OG ALÞÝÐUFLOKKS:
Snerust gegn málstað Islands
á viðkvæmasta augnabliki
„VIÐREISNAR”-stjórnin sat
að völdum á annan tug ára, og
á þvi timabili var ekki ýjað að
þvi einu orði af hennar háifu,
hvorki heima fyrir né á er-
lendum vettvangi, að færa
bæri fiskveiöilögsöguna út,
hvað þá að nokkuð væri að-
hafzt I þá átt, enda hafði hún
þegar árið 1961 ieitazt við að
binda hendur tslendinga með
afsalssamningi við Breta og
Vestur-Þjóöverja, svo sem al-
ræmt er.
Fyrst tók þó I hnúkana, er til
alvörunnar kom, þjóðin hafði
rekiö „viðreisnina” frá völd-
um, rikisstjórn ólafs Jóhann-
essonar fært fiskveiðilögsög-
una út í fimmtiu sjómflur og
brezka heimsveldið hafði látið
sér það sæma að senda gegn
okkur herskip og njósnarflug-
vélar, veifandi afsalssamningi
„viðreisnar”-stjórnarinnar
frá 1961. Þá sýndi sig, hvað bjó
innan rifja, og það kom ótvi-
rætt fram, þegar sízt skyldi.
grímsson, komu fram i út-
varpi til þess að hallmæla
þeim, sem reyndu af fremsta
megni að verja dýrmætustu
eign Islendinga, fiskimiðin,
fyrir útlendum sjóræningjum.
Yfirlýsing Geirs Hallgrims-
sonar var á þessa leið:
„Ég tel miður, að til svo al-
varlegra ráða var gripið”, og
hann ítrekaði þetta: „Það er
mitt álit, að ekki beri að gripa
til örlagarikra ráða.”
Dr. Gylfi Þ. Gíslason sagði:
„Nú óttast ég alvarlega, að viö
Islendingar höfum spillt mál-
stað okkar.” Og enn fremur:
,,Ég læt mér ekki detta annað i
hug en aðgerðir Ægis hafi ver-
ið gerðar með samþykki Is-
lenzku rikisstjórnarinnar. Það
er alvarlegt mál.”
Þannig brugðust þessir
flokksforingjar við á þeirri
stundu, þegar sjálfsagðast
var, að allir sýndu festu og
stæðu þétt saman gegn Bret-
anum og yfirgangi hans. Þetta
var framlag formanna „við-
reisnar”-fiokkanna á hinu við-
kvæmasta augnabliki.
Brezkt herskip og dráttarbátur halda vörð um Grimsby-togar-
ann Everton I maimánuöi 1973. t landi voru lfka bandamenn.
Morgunbiaðið, stærsta blað landsins, sótti fréttaheimildir sinar
um atburðinn I brezka sendiráðið, höfuðstöðvar óvinanna, og
Geir Hailgrlmsson og Gylfi Þ. Gislason komu I útvarpið þeirra
erinda að spilla samstöðu tslendinga I mikilvægasta lifshags-
munamáli þjóöarinnar.
,,Viðreisnar”-flokkarnir
ætluðu aö moðsjóða landhelg-
ismálið I nokkur ár I nefnd,
sem þeir samþ. aö skipa seint
á þingi 1971, en þegar þáver-
andi stjórnarandstæðingar
hófu nýja sókn á grundvelli til-
lögunnar um fimmtiu milna
útfærslu, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og Alþýðuflokkur-
inn höfðu ekki látið sig muna
um að fella á þingi, og boðuðu,
að þeir myndu beita sér fyrir
fimmtlu milna fiskveiðilög-
sögu, brást allur „viðreisn-
ar”-herinn þannig við, að ekki
væri rétt að hugsa um út-
færslu, fyrr en niðurstaða
væntanlegrar hafréttarráð-
stefnu væri fengin.
Laugardaginn 26: mai 1973
skaut varðskipið Ægir á
brezkan veiðiþjóf, togarann
Everton frá Grimsby, er þver-
skallaðist við að hlýða fyrir-
mælum varðskipsmanna, og
laskaöi hann sem kunnugt er.
Á þessari stundu, þegar
augu heimsins hvildu á okkur,
hefði sýnzt sjálfsagt, að allir
Islendingar ættu eina sál. En
það var nú eitthvað annað.
Morgunblaðið sótti heimildir
sinar um atburði i herbúðir
sjálfs höfuðóvinarins, brezka
sendiráðið I Reykjavik, og for-
menn ,,viðreisnar”-flokk-
anna, fulltrúar samningsgerð-
armannanna frá 1961, dr.
Gylfi Þ. Gislason og Geir Hall-
GEIR HALLGRÍMSSON
— taldi miður að amazt væri
við Bretanum.
GYLFI Þ. GÍSLASON
— brást lika málstað Islend
inga.
Þióðlega reisn d þjóðhdtíða róri X B
ÓLAFUR JÓHANNESSON
— forvlgismaður útfærslu
landhelginnar.
LANVEIT
INGAR
Á NÆST
UNNI
Á fundi húsnæðismálastjórnar á
föstudag voru eftirgreindar
ákvarðanir teknar um lánveiting-
ar Húsnæðismálastofnunar rikis-
ins:
Samþykkt var að fram fari nú
veiting framhaldslána til þeirra
lántakenda, sem fengu frumlán
sin greidd miðað við 20. septem-
ber s.l. Skulu framhaldslán þessi
koma til greiðslu eftir 10. júlí n.k.
Veiting framhaldslána þeim
umsækjendum til handa, er fengu
frumlán sin greidd miðaö við 1.
nóvember sl„ skal nú fara fram
og koma tii greiðslu eftir 1. ágúst
n.k.
Samþykkt var, að fram fari nú
veiting frumlána þeim umsækj-
endum til handa, er sent höfðu
stofnuninni byggingalánsum-
sóknir og fokheldisvottorð fyrir 1.
janúar 1974 og eiga nú fullgildar
og lánshæfar umsóknir hjá stofn-
uninni. Skulu lán þessi koma til
greiðslu eftir hinn 10. júll nk.
Eykon og Styrmirf sem
taki allar ákvarðanir
fyrir mig?