Fréttablaðið - 11.12.2004, Page 74

Fréttablaðið - 11.12.2004, Page 74
62 11. desember 2004 LAUGARDAGUR FRÉTTIR AF FÓLKI Jólalest Coca-Cola heldur í árlega hringferð sína um höfuðborgarsvæðið í dag. Ekið verður frá höfuðstöðvum Vífilfells við Stuðlaháls kl. 16:00, um Grafarvog og sem leið liggur niður Laugaveg, um Vesturbæ og Seltjarnarnes. Þaðan verður haldið í Kópavog með viðkomu í Smáralind um kl.18:00, þar sem boðið verður upp á jólaskemmtun. Þaðan liggur leiðin um Garðabæ, í Hafnarfjörð, Breiðholt og Árbæ. Fylgstu með í beinni á Jólastjörnunni FM 94,3 Að góðfúslegri beiðni lögreglunnar leggjum við höfuð áherslu á öryggi áhorfenda og af þeirri ástæðu verður því miður ekki unnt að dreifa gosi og sælgæti úr lestinni. Nánari upplýsingar á www.coke.isi l i . .i Jólalest Coca-Cola kemur í dag! Fylgstu með hvar lestin er stödd og hvert ferðinni er heitið í beinni útsendingu á Jólastjörnunni FM 94,3. Pönksveitin Vonbrigði gaf ný- verið út plötuna Eðli annarra, sem er þeirra fyrsta plata síðan hin 6 laga Kakofonia kom út fyrir 21 ári, nánar tiltekið í sept- ember árið 1983. Sú var tekin upp á 24 tímum en mun meiri vinna var lögð í nýja gripinn. Pönksveitin Vonbrigði vakti fyrst verulega athygli í heimild- armynd Friðriks Þórs Friðriks- sonar, Rokk í Reykjavík, sem kom út árið 1982. Þar átti hún lögin Ó, Reykjavík og Guðfræði. Nýja platan hefur að geyma sautján lög og eru fjórtán þeirra óútgefin. Lögin Sjálfsmorð, Eðli annarra og afskiptasemi og Af- skræmdar myndir hafa áður komið út. Að sögn trommuleik- arans Þórarins Kristjánssonar og bassaleikarans Gunnars E. Knudsen átti sveitin svo mikið efni frá því á árum áður að ákveðið var að gefa þau út. Flest lögin þróuðust síðan í hljóðver- inu, mest þó lagið Á mörkum hinna heimspekilegu hvunn- dagskennda. Vonbrigði hitaði upp fyrir bresku sveitina The Fall á dög- unum. Voru það fyrstu tónleikar Vonbrigða síðan í janúar árið1986, eða í átján ár. „Það gekk mjög vel og það var líka mikil ánægja hjá fólki sem við heyrðum í eftir tónleikana,“ seg- ir Gunnar. „Þetta var alveg rosa- legt,“ bætir Þórarinn við. „Það er merkilegt að við skulum hafa haft þetta af. Það var mikil spenna í gangi en við mættum vel undirbúnir til leiks.“ Þeir félagar segjast ekkert vera farnir að spá í að gefa meira efni út með sveitinni. Það verði bara að koma í ljós. „Við eigum fullt af lögum og mynd- um væntanlega breyta þeim eitthvað. Það er vel hugsanlegt að við förum aftur í hljóðver. Við eigum 20 til 30 lög og um 13 til 15 þeirra eru skotheld. En við viljum ekki hugsa lengra en þetta.“ Útgáfutónleikar vegna nýju plötunnar verða þann 15. desem- ber á Gauki á Stöng. Hljómsveit- in Bacon hitar upp. Aðgangseyr- ir er 1500 krónur og fylgir plat- an með í kaupunum. freyr@frettabladid.is VONBRIGÐI Pönksveitin Vonbrigði hefur gefið út plötuna Eðli ann- arra. Frá vinstri: Jóhann Vilhjálmsson, Árni Kristjánsson, Þórarinn Kristjánsson og Gunnar E. Knudsen. Fyrsta platan í 21 ár Leikkonan Julia Roberts er loksinskomin heim af sjúkrahúsi eftir að hafa eignast tvíbura á dögunum. Tví- burarnir, sem heita Phinnaeus Walt- er og Hazel P a t r i c i a , fæddust fimm vikum fyrir t í m a n n . Dóttirin Hazel átti við ein- hverja heilsu- erfiðleika að stríða fyrstu dagana en er nú á batavegi. Roberts, sem er 37 ára, hef- ur ekki enn ákveðið hvenær hún mun snúa aftur til starfa en nýjasta mynd hennar, Ocean’s Twelve, var frumsýnd í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Hjartaknúsar-inn Colin Farrell ætlar að fara með gesta- hlutverk í gaman- þáttunum Scrubs. Þetta verður í fyrsta sinn sem Farrell leikur í bandarísku sjón- varpi. Þátturinn verður sýndur þar í landi þann 25. janúar. Rokkarinn Ozzy Osbourne er íöngum sínum yfir dauða gítar- leikarans „Dimebag“ Darrell Abbot, sem var skotinn til bana á tónleikum fyrir skömmu. Ozzy fór oft með „Dimebag,“ sem var fyrrverandi g í t a r l e i k a r i rokksveitarinnar Pantera, í tónleika- ferðir. „Ég er heltek- inn af sorg. Ég skil ekki hvernig nokkur getur gert svona lag- að,“ sagði Ozzy. James Brown, guðfaðir sálartón- listarinnar, hefur greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli. Brown, sem er 71 árs gamall, fer í aðgerð þann 15. desember til að losna við meinið. „Ég hef náð að yfirstíga ýmis- legt í lífi mínu. Ég mun líka yfir- stíga þetta,“ sagði Brown, sem einnig er sykursjúkur. Brown kom hingað til lands ekki alls fyrir löngu og hélt eftirminni- lega tónleika í Laugardalshöll- inni. Hann hafði nýlokið við tveggja vikna tónleikaferð um Kanada þegar meinið uppgötvað- ist. Ævisaga kappans er væntan- leg í janúar og á næsta ári ætlar hann einnig í tónleikaferð um Asíu og Ástralíu. Það er því mik- ið framundan hjá James Brown þrátt fyrir veikindin. ■ Brown með krabbamein JAMES BROWN Guðfaðir sálartónlistarinnar, James Brown, á tónleikum sínum hér á landi í ágúst. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI 74-75 (62-63) Fólk 10.12.2004 19:34 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.