Fréttablaðið - 11.12.2004, Page 88

Fréttablaðið - 11.12.2004, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Glaðningur fyrir jólakrílin IK E 26 43 4 1 1. 20 04 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 4 350,- KACKEL mjúkdýr 25 sm Opið til 22:00 til jóla | www.IKEA.is TRANA spiladós snigill 790 kr. LILLABO lestarbraut og lest 1.290 kr. MULA perlurússibani KALAS plastglös 4 stk. 95 kr. LILLABO dúkkuhús 2 stk. 4.500 kr. LILLABO húsgögn í dúkkuhús 2.490 kr. MÅLA tússlitir 12 stk. 90 kr. KALAS hitakanna 145 kr. TASSA pappaskúffur 490 kr. PYRE leikfangakarfa 790 kr. SMILA MANE ljós 790 kr. MÅLA litakassi 590 kr. LILLABO plastdúkkur 590 kr. BYGGA kubbasett 990 kr. MATA plastsmekkur 2 stk. 290 kr. SÖT mjúkdýr 9 sm 75 kr. KANIN mjúkdýr 16 sm 190 kr. BLUND bangsi 25 sm 190,- TITTA fingrabrúður 10 stk. 890,- 1.290,- Kjúklinganaggar Barnamatseðill franskar, safi og ís 290 kr. Svart útlit Útlitið er svart. Það er ekki hægtað segja annað. Allt frá upphafi þessa mánaðar, sem á að heita mán- uður einhvers konar kærleika og vonar, út af Jesúbarninu, hafa dun- ið á manni endalausar spár um það að einhver fuglaflensa muni ganga af fólki dauðu í hundruðþúsundavís á allra næstu árum, ef ekki á næstu dögum, svei mér þá, og þetta er til- kynnt í þvílíkum staðreyndastíl að maður er orðinn nautstressaður og strax farinn að gera plön um það hvernig best verði að stúka sig af í einangrun, einhvers staðar uppi í sveit, þegar þessi fugladéskoti fer að gera vart við sig. OG svo er það miltisbrandurinn. Það er eitthvað óhuggulegt við það að hestar finnist dauðir á víðavangi með blóð úr nefinu. Þetta er eins og fyrirboði. Nú vantar bara að hrafn- ar fari að hringsóla yfir höfðinu á manni á leið úr vinnu, eða að gammar sjáist í fyrsta skipti á Ís- landi með öllum þeim válegu tíðind- um sem þeim fylgja. Miðað við tíð- arandann kæmi mér það hreint ekki á óvart, þegar ég opna útidyra- hurðina í morgunsárið þessa dag- ana, að sjá þar gamm á stigapallin- um. OG ef það er ekki einhver sjúk- dómur þá eru það efnahagsmálin. Þar er allt að fara til andskotans, segja þeir. Verðbólga, þensla, við- skiptahalli. Skattalækkanir stórlega vafasamar segja sérfræðingar, í þessu árferði, og alls ekki útskýrt hvar eigi að skera niður á móti. Það held ég nú. Skuldir heimilanna í sögulegu hámarki og allt getur farið í hund og kött í þeim efnum á hverri stundu. Ef svo fer sem horfir endum við bláfátæk með allt niðrum um okkur hér á skerinu, með fuglaflensu, miltisbrand, dauða hesta, krákur og gamma hringsólandi yfir höfðunum á okkur í sótsvörtu andrúmslofti út af Kötlugosi og Heklugosi, stelandi af hvert öðru brauði og mjólk eins og í einhvers samblandi af Íslendinga- sögunum og Dickens. Öll klædd í strigapoka. ÉG trúi nefnilega alltaf öllu svona. Svartsýnisspár hljóma sem heilag- ur sannleikur í mínum eyrum. Hitt er svo aftur annað mál að til þess að lifa af, sálfræðilega, innan um alla þessa vissu um að allt fari í kaldakol, hef ég tamið mér þá hugs- un að gera iðulega ráð fyrir að þetta reddist. En nú er ég ekki viss. Það er aðallega þetta með fuglaflensuna sem fær mig til að nötra af stressi. Ég fæ ekki setið heila mínútu á stól án þess að ég byrji að hugsa um þennan fjára, naga á mér neglurnar og stara opin- mynntur með útglennt augu í tómið, án tengsla við umheiminn. Óttasleginn. Lítill. Ráðalaus. ÉG HELD það sé í öllu falli skyn- samlegast að halda upp á þessi jól eins og þau verði þau allra síðustu, að minnsta kosti hérna megin til- vistar. BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR 88 bak 10.12.2004 20.32 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.