Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 2
DÓMSMÁL Umhverfisráðuneytið hefur þegar ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í gær, um að álver Reyðaráls þurfi að sæta umhverf- ismati. Með dómnum var úrskurði umhverfisráðherra um að álver Reyðaráls, fyrir allt að 322 þús- und tonna ársframleiðslu þyrfti ekki að sæta umhverfismati dæmdur ómerkur, að kröfu Hjörleifs Guttormssonar, fyrr- verandi alþingismanns. Dómurinn vísaði frá dómi þremur kröfum Hjörleifs, af fjór- um. Þar á meðal kröfu um ómerk- ingu útgáfu starfsleyfis fyrir álver Reyðaráls ehf., þar sem Um- hverfisstofnun, sem gaf út starfs- leyfið var ekki stefnt til varnar. Magnús Jóhannesson, ráðu- neytisstjóri í umhverfisráðuneyt- inu, segir ráðuneytið búið að ákveða að áfrýja dómnum. „Þessi dómur kemur á óvart og við telj- um hann rangan. Það var mat Skipulagsstofnunar á sínum tíma að ekki þyrfti nýtt umhverfismat. Það byggði hún á sérfræðimati um að þessi breyting væri það mikil að það útheimti nýtt mat.“ Magnús segir jafnframt að hann geti ekki séð að dómurinn hafi fellt úr gildi starfsleyfi Reyðar- áls, líkt og Hjörleifur Guttorms- son heldur fram. - ss STJÓRNMÁL Alfreð Þorsteinsson ætlar að gefa kost á sér í næstu borgarstjórnarkosningum eftir hálft annað ár og styður áfram- haldandi framboð R-listans. Borg- armálaráð Framsóknarflokksins ákvað á fundi sínum í gær að hefja sem fyrst umræður um framboðsmál flokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar vorið 2006. Umræðurnar hófust raunar á vefsíðu flokksfélagsins í Reykjavík um síðustu helgi þegar Gestur Gestsson, formaður Framsóknarfélagsins í Reykjavík norður, sagðist vilja sérstakt framboð flokksins og sagði Alfreð Þorsteinsson ótrúverð- ugan: „Við erum að týn- ast inni í R-listasam- starfinu og ég tel að okk- ar fulltrúi, ef ég tek sem dæmi Alfreð Þorsteinsson, hefur haft 35 ár í pólitík til að koma sínu fram.“ Alfreð segir að árafjöldinn skipti ekki máli. „Ýmsir stjórn- málamenn eiga langan og farsæl- an feril í stjórnmálum að baki eins og Halldór Ásgrímsson.“ Halldór hefur sem kunnugt er verið nær sleitulaust þingmaður og ráð- herra í rúm þrjátíu ár. Anna Kristinsdóttir, hinn borg- arfulltrúi framsóknarmanna í Reykjavík, hefur líka blandað sér í umræðuna. Um gagnrýni á Alfreð Þorsteinsson segir hún: „Enginn er eilífur í pólítik“ en segist sjálf ekki hafa skoðun á því hvort hann eigi að halda áfram: „Hann verður að gera það upp við sig sjálfur.“ Anna segist ekki heldur vilja kveða upp úr um hvort hún fylgi áframhaldandi R-listasamstarfinu en bendir þó á að kjörfylgi flokks- ins í síðustu alþingiskosningum hefði dugað til að fá einn mann kjörinn en þyrfti að aukast úr um 11,5 prósentum í fjórtán til að fá annan mann kjörinn og óvíst væri hvort flokkurinn kæmist í meiri- hlutasamstarf. Alfreð segir að Framsóknar- flokkurinn fengi 10 til15 prósent atkvæða í borginni byði hann fram sér. „Hins vegar myndu at- kvæði flokkanna sem standa að R-listan- um nýtast illa byðu þeir fram hver í sínu lagi. S j á l f s t æ ð i s - flokkurinn hef- ur af þessum sökum marg- sinnis fengið meirihluta borg- arfulltrúa þótt hann hafi ekki meirihluta at- kvæða.“ - as SPURNING DAGSINS Nei, veistu, ég er ekki drekinn. Útvarpsþátturinn Tvíhöfði með Sigurjóni Kjartans- syni og Jóni Gnarr í forsvari hefur runnið sitt skeið á enda. Þeir ætla að snúa sér að öðrum vettvangi, „öðrum en útvarpi,“ samkvæmt Sigurjóni. Segir hann að þátturinn hafi ekki borið sig þrátt fyrir fimmtán til tuttugu þúsund hlustendur. Sigurjón, ertu drekinn? 2 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Héraðsdómur Reykjavíkur: Reyðarál í umhverfismat ÍRAK Bandaríkjamenn eru hættir leit sinni að gereyðingarvopnum í Írak. Þetta hafa bandarískir embættismenn staðfest við frétta- menn sjónvarpsstöðvanna CNN og BBC. Áfram verður þó farið í gegnum skjöl sem meðlimir þeirra sveita sem leitað hafa að gereyðingarvopnum hafa undir höndum. Meint eign Íraka á gereyðingar- vopnum var ein helsta ástæðan sem gefin var fyrir innrásinni í Írak en þrátt fyrir mikla leit hafa engin gereyðingarvopn fundist önnur en leifar vopna sem fram- leidd voru á níunda áratugnum. Fyrri yfirmaður bandarísku vopnaleitarsveitarinnar sagði af sér fyrir ári og sagði engin ger- eyðingarvopn að finna í Írak. Eftirmaður hans sagði í bráða- birgðaskýrslu í fyrra að Írakar hefðu ekki átt nein gereyðingar- vopn þegar innrásin var gerð í Írak en leitast við að hafa tök á því að hefja framleiðslu þeirra á ný. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra vildi ekki tjá sig um tíðindin í gær. ■ Alfreð segist ekki hætta Alfreð Þorsteinsson segir kröfu um að hann víki vegna langrar reynslu í póli- tík út í hött og bendir á að hann hafi verið álíka lengi að og Halldór Ásgríms- son. Hann styður áframhaldandi líf R-listans og ætlar að bjóða sig fram. ■ GEREYÐINGAVOPN BREYTIR ENGU „Ég sé ekki að þessar upplýsingar breyti áhersl- um okkar eins og staðan er nú. Þær hafa verið að halda áfram með uppbygginguna í Írak og styðja við lýðræðisþróunina sem ríki heims eru meira og minna sammála um að þurfi að standa vel að,“ segir Siv Friðleifsdóttir, varaformaður utanríkismála- nefndar Alþingis. ÓUMFLÝJANLEGT „Þetta kemur ekkert á óvart. Þetta var óumflýj- anlegt. Það lá í augum uppi fljót- lega eftir að innrásin var afstaðin að engin vopn voru af þessu tagi í Írak. Þarna eru menn að horfast í augu við veruleikann,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, þing- maður Samfylkingar í utanríkis- málanefnd. Hjörleifur Guttormsson: Reyðarál er án starfsleyfis DÓMSMÁL Hjörleifur Guttormsson segir að meta þurfi framkvæmd Reyðaráls upp á nýtt með dómi h é r a ð s d ó m s Reykjavíkur um að Reyðarál þurfi að sæta umhverfismati. Með því þurfi að vinna þær leyf- isveitingar sem byggja á mati á umhverfisáhrif- um upp á nýtt og Reyðarál sé því í raun án starfsleyfis. Hann segir dóminn mikilvæg- an fyrir umhverfisvernd í landinu og sýni þeim sem hafa staðið að þessum ákvörðunum að það sé betra að vanda sig og fylgja settum lögum, en ekki knýja fram ákvörðun með handafli. ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR HÁLT Í HÚNAVATNSSÝSLUM Ökumaður rann út af þjóðvegi eitt í Víðidal í Austur-Húnavatns- sýslu um ellefu leytið í gærmorg- un. Enginn slasaðist. Lögreglan á Blönduósi hvetur ökumenn að fara varðlega. Mjög hált sé á vegum og snjór. SNJÓFLÓÐAHÆTTU AFLÉTT Hættu á snjóflóði í Reynishverfi í Mýrdal hefur verið aflétt. Lög- reglan í Vík segir síðasta ábúand- ann á Garði, síðasta bænum sem eftir var á hættusvæði, vera kominn heim. BÍLL FASTUR Í SNJÓFLÓÐI Ökumaður keyrði inn í snjóflóð rétt norðan við Sauðanes í Ólafs- fjarðarmúla um hádegi í gær og þurfi aðstoð lögreglu til að losna. Flóðið var um hálfur metri á þykkt og tíu til tuttugu metrar á breidd, samkvæmt lögreglunni á Dalvík. Íslenska útvarpsfélagið: Þrjár stöðvar lagðar niður FJÖLMIÐLAR Útsendingu þriggja útvarpsstöðva Íslenska útvarps- félagsins, Skonrokks, X-sins og Stjörnunnar, var hætt klukkan níu í gærkvöldi. Þá mun talmál minnka á útvarpsstöðinni Létt FM. Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri ÍÚ, segir að um tíu manns hafi verið sagt upp störfum, auk verktaka. Aðrir starfsmenn verði fluttir til í starfi. Ástæðan fyrir lokununum sé langvarandi taprekstur út- varpsstöðvanna. Jóhann Hlíðar Harðarson, trúnaðarmaður Blaðamannafé- lagsins hjá ÍÚ, hafði ekki heyrt um málið í gærkvöldi. Í tilkynningu frá ÍÚ segir að auk útsendingar nýrrar útvarps- stöðvar, verði starfsemi Bylgj- unnar og FM957 efld. Þá er ráð- gert að hefja fjótlega endurvarp á erlendri fréttarás í útvarpi. - ss 14 stöðvar HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON ÓLJÓST HVORT REYÐARÁL HAFI STARFSLEYFI Umhverfisráðuneytið ætlar að áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. Bandaríska vopnaleitarsveitin í Írak: Hættir leit að gereyðingarvopnum BANDARÍSKIR HERMENN Í ÍRAK Tæpum tveimur árum eftir að Bandaríkja- menn leiddu innrásina í Írak hafa þeir hætt leit að gereyðingarvopnum. Þeir hafa engin vopn fundið. Mannréttindadómstóll: Ríkið áfrýjar dómi DÓMSMÁL Í fyrsta sinn hefur Íslenska ríkið ákveðið að áfrýja dómi Mannréttindadómstóls Evr- ópu. Fyrir þremur mánuðum komst dómstóllinn að þeirri niður- stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn ákvæðum Mannrétt- indasáttmála Evrópu þegar ís- lenskir dómstólar staðfestu að Lífeyrissjóði sjómanna væri heimilt að svipta Kjartan Ás- mundsson bótum vegna slyss sem hann varð fyrir. Í fréttum Stöðvar 2 í gær sagði Skarphéðinn Þórisson ríkislög- maður að eingöngu skaðabóta- þætti málsins væri áfrýjað. Ekki er víst að Mannréttinda- dómstóllinn samþykki að taka málið til skoðunar öðru sinni. - ss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.