Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 40
Ásberg er afslappaður þegar hann tek-
ur á móti blaðamanni og ljósmyndara.
Hann býður upp á kaffi úr rauðappel-
sínugulum bollum sem eru alveg í stíl
við stólana í stofunni. Húsið hefur ver-
ið mikið í umræðunni upp á síðkastið
en það var auglýst til sölu á dögunum. Í
grein sem birtist í DV rétt fyrir jól var
sagt frá því að um væri að ræða eitt
dýrasta heimili Íslandssögunnar og það
fengist fyrir 200 milljónir með innbúi
og öllu. Ásberg vill nú ekki meina að
þetta sé dýrasta heimili landsins enda
færist það í vöxt að fólk kaupi sér dýrar
húseignir. Í hans huga er þetta bara
venjulegt hús. Hann segir jafnframt að
hann hafi eytt töluverðum fjármunum í
það og muni ekki láta það nema fyrir
rétt verð. Húsið er óselt en Ásberg er
ekki farinn að örvænta og er sannfærð-
ur um að það sé markaður fyrir slíkar
eignir hér á landi.
„Ég verð einn í heimili í lok janúar
því sonur minn er að flytja að heiman.
Mér finnst alger óþarfi að hafa þetta
stóra húsnæði fyrir mig einan. Þar fyrir
utan dvel ég mikið erlendis,“ segir Ás-
berg, sem er ættaður að vestan. Hann
var með útgerð á Ísafirði en flutti í bæ-
inn fyrir tíu árum. Nú starfar hann við
gjaldeyrisviðskipti ásamt því að vera
með fiskvinnslu í Kópavogi.
Hátt til lofts og vítt til veggja
Blikanes 20 er 470 fermetrar en þar af
er 52 fermetra bílskúr. Húsið er stein-
steypt, pússað og málað að utan en
hluti framhliðarinnar er klæddur
líparítstrendingum. Sólvarnargler
gefur gluggunum sérstakt yfirbragð.
Þegar Ásberg festi kaup á húsinu var
það fokhelt og það kom aldrei neitt
annað til greina en að láta arkitekt
hússins, Pálmar Kristmundsson, ljúka
verkinu. Húsið er á þremur pöllum. Á
jarðhæð er anddyri, gestabaðherbergi,
þvottahús, bílageymsla og þjónustu-
íbúð. Á miðpalli er stofa, borðstofa,
eldhús og miðjurými með þakglugga.
Á efsta palli eru svefnherbergin, bað-
herbergi og fjölskylduherbergi. Heim-
ilið er gríðarlega tæknivætt. Það hefur
að geyma Instabuss-stýrikerfi, en
Helgi í Lúmex hannaði lýsinguna.
Tæknileg hljómflutningstæki frá Bang
og Olufsen fá að njóta sín en alls eru
níu sjónvarpstæki frá sama merki.
Hljóðkerfið í húsinu er allt tengt sam-
an. Húsið er kynt með geislahitun,
þannig að ofnarnir eru undir gólfinu.
Geislahitunin gerir það að verkum að
ljótir ofnar þurfa ekki að eyðileggja
fegurðarskynið.
Áður en loftið var hannað var
rýmið hljóðmælt og því er hljómurinn
í húsinu stórgóður.
„Þótt það sé hátt til lofts bergmálar
ekki neitt. Á Þorláksmessu var ég með
skötuveislu og þá kom mormónakór í
heimsókn og söng. Það hljómaði mjög
vel. Í svona rýmum eins og þessu, þar
sem er mikið af hörðu efni eins og
gleri, flísum og stáli, hefur það heil-
mikið að segja að loftið sé rétt hann-
að,“ segir hann.
Það vekur athygli að það eru engin
gluggatjöld í húsinu nema í herbergj-
unum en þar eru myrkragardínur.
„Það sést ekki mikið inn um glugg-
ana á daginn en það sést örlítið betur
inn á kvöldin. Ég hef prufað að hafa
gluggatjöld en mér fannst það breyta
svip hússins algerlega og kunni ekki
við það.“
Hjartað slær í eldhúsinu
Eldhúsið er hjarta heimilisins enda einn
af uppáhaldsstöðum Ásbergs í húsinu.
Þar spilar eik stórt hlutverk í bland við
granít, burstað stál og sandblásið gler.
Borðstofuborðið er alveg í stíl við inn-
réttinguna úr graníti en stólarnir við
borðið eru úr Exó.
„Þar sem ég er í gjaldeyrisviðskiptum
get ég nánast unnið hvar sem er svo
framarlega sem nettenging, GSM-sími
og tölva eru til staðar. Ég vinn mikið
heima og þá finnst mér einna best að
vinna í eldhúsinu,“ segir Ásberg, sem er
með flatan tölvuskjá áfastan við eld-
húsinnréttinguna. Undir innréttingunni
er hægt að draga út lyklaborð.
Veglegur glerveggur aðskilur stofu og
borðstofu. Hann er yfirleitt opinn en það
er hægt að loka glerhurðunum þegar það
hentar og þá er hann algerlega hljóðein-
angrandi. Í húsinu eru tvær tegundir af
gólfefnum; sandsteinn og gegnheilt
eikarparkett. Hurðirnar ná allar upp í
loft og eru ýmist sprautulakkaðar eða úr
eik. Í húsinu eru þrjú baðherbergi og eru
þau öll í sama stíl; marmaramósaíkflísar
á veggjum og sandsteinn á gólfunum. Á
baðherbergjunum er mikið lagt í öll
smáatriði. Þrátt fyrir að sturtan á efsta
pallinum sé úr gleri sjást hvergi sjampó-
brúsar því þeir eru faldir í sérstökum
hirslum og við klósettið er flottur blaða-
rekki. Í húsinu er lögð mikil áhersla á
skápa og í borðstofunni eru til dæmis
sérhannaðir skápar fyrir öll hleðslutæki,
myndavélar og tölvur. Það er sem sagt
ekkert sem truflar auga fagurkerans.
Aðspurður um áhuga á hönnun og
arkitektúr segist Ásberg fyrst og fremst
vera fagurkeri.
„Mér finnst betra að arkitektar og
fagmenn vinni verkið. Þetta hefði ekki
komið svona vel út ef það hefði verið
húsmóðir sem hefði verið að skipta sér
af,“ segir hann og glottir út í annað.
Hann vill meina að konur séu verstu
vinir arkitektanna því þær hafi alltaf svo
sterkar skoðanir á öllu.
„Ég hef mjög góða reynslu af því að
gefa arkitektum frjálsar hendur og
myndi gera slíkt hið sama ef ég myndi
byggja aftur. Það eina sem ég myndi
fara fram á væri að hafa stóran bílakjall-
ara í húsinu.“
Húseignin Blikanes 20
í Garðabæ hefur fengið
gríðarlegt lof fyrir
fallega hönnun og var
tilnefnt til Mies van der
Rohe verðlaunanna
2004. Einnig hafa
myndir af húseigninni
birst í erlendum fag-
tímaritum eins og Plaza
Magazine og Wall-
paper. Heiðurinn á arki-
tektinn Pálmar Krist-
mundsson, sem fékk
algerlega frjálsar hend-
ur við hönnun hússins.
Eigandinn, Ásberg Pét-
ursson, setti honum þó
nokkur skilyrði, húsið
yrði að vera mínímalískt
og laust við allt óþarfa
prjál. Marta María Jón-
asdóttir heimsótti Ás-
berg og kynnti sér inn-
viði hússins.
Innlit í 200 milljóna húsið í Arnarnesinu:
EKKERT ÓÞARFA PRJÁL
F2 10 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Flottheitaeldhús Eldhúsið er hjarta heimilisins og sérhannað fyrir húsbóndann, sem vinnur mikið heima. Hann er með sérstakan tölvuskjá festan við borðplötuna og undir
henni er vel falið lyklaborð. Innréttingin er sérsmíðuð hér heima og er úr eik. Ásberg segir þó að eldhúsið sé ekki sérlega mikið notað við matreiðslu því hann borðar yfirleitt
niðri í þjónustuíbúðinni. Þegar hann heldur veislur kemur þetta myndarlega eldhús að góðum notum.
Myndarlegt rými Hægt er að horfa nið-
ur í anddyrið af pallinum á þriðju hæð.
Hrái veggurinn setur svip sinn á rýmið.
Allt sérsmíðað Sturtuklefinn er sérsmíð-
aður hérlendis. Á veggjunum eru marm-
aramósaíkflísar en á gólfinu er sand-
steinn eins og í stofunni og eldhúsinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
JÓ
N
AS
SO
N