Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 4
4 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Allawi viðurkennir vandamál við framkvæmd kosninga:
Ekki hægt að kjósa alls staðar
ÍRAK, AP Iyad Allawi, forsætisráð-
herra bráðabirgðastjórnar
Íraks, hefur í fyrsta sinn viður-
kennt opinberlega að ekki verði
hægt að kjósa á nokkrum stöðum
í Írak vegna óaldarinnar sem
ríkir þar.
„Það verða vissulega nokkur
afmörkuð svæði sem geta ekki
tekið þátt í kosningunum af
þessum sökum, en við teljum að
það verði ekki víða,“ sagði
Allawi og vísaði til þess að óvin-
veittir vígahópar reyndu að
koma í veg fyrir framkvæmd
kosninganna.
Lítið hefur verið um kosn-
ingaundirbúning í Anbar-héraði
sem liggur vestur af Bagdad og
nær til jórdönsku, sýrlensku og
sádi-arabísku landamæranna.
Sömu sögu er að segja af
borginni Mosul í norðurhluta
landsins.
Árásum vígamanna fer fjölg-
andi í höfuðborginni Bagdad og
er talið að íbúar í nokkrum
hverfum sem hafa orðið verst
fyrir barðinu á árásum kunni að
veigra sér við að fara á kjörstað.
Jórdanski sendiherrann í
Bandaríkjunum er öllu svart-
sýnni en Allawi og varaði við því
að 40 prósent Íraka gætu ekki
kosið. „Þetta vekur spurningar
um réttmæti kosninganna.
Anders Fogh Rasmussen:
Talinn flýta
kosningum
DANMÖRK Búist er við því að And-
ers Fogh Rasmussen boði til þing-
kosninga fljótlega þó að níu
mánuðir séu enn eftir af kjörtíma-
bili þingmanna.
Samkvæmt fréttastofu Danske
Radio var talið að forsætisráð-
herrann hefði ætlað sér að boða til
þingkosninga í ársbyrjun en að
hann hefði orðið að breyta þeim
áætlunum vegna jarðskjálftans og
flóðbylgjunnar í Asíu. Rasmussen
fjallaði ítarlega um mál sem
kunna að verða að kosningamálum
á blaðamannafundi og þótti með
því ýta undir vangaveltur um að
hann ætli að flýta kosningum. ■
Norskur banki:
Milljónir
í brotajárn
NOREGUR, AP Litlu munaði að
norskur banki yrði nokkrum
milljónum króna fátækari þegar
verið var að taka gamla hrað-
banka úr umferð og senda þá í
brotajárn og bræðslu.
Talsverður peningur var enn
eftir í einum hraðbankanum
þegar starfsmenn fyrirtækisins
sem áttu að eyða hraðbönkunum
komu til að sækja hann. Að því er
fram kemur í blaðinu Romsdals
Budstikke varð ruglingur í því
hvenær átti að sækja hraðbank-
ann og þurfti öryggisvörður
bankans að elta flutningamennina
uppi til að bjarga peningunum.
Upphæðin liggur ekki fyrir en
sagt er að fyrir hana hefði mátt
kaupa einbýlishús, fara í lúxus-
ferðalag og eiga drjúga fjárhæð
eftir. ■
■ HEILSURÆKT
FÆRRI Í SUND Gestum í Sund-
laugarmiðstöð Keflavíkur fækk-
aði um sautján prósent á árinu
2004 frá árinu á undan. Heim-
sóknir í laugina voru 84.844 á
árinu. Á vef Reykjanesbæjar er
talið að ástæður minni sóknar
hafi meðal annnars verið lokun
vegna endurbóta á sundlauginni í
september. Verkfall grunnskóla-
kennara hafi einnig haft áhrif á
aðsóknartölur.
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,95 63,25
117,89 118,47
82,40 82,86
11,07 11,14
10,04 10,10
9,11 9,16
0,61 0,61
95,76 96,34
SALA
GENGI GJALDMIÐLA 12.01.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
113,15 -0,45%
HAUKUR ÍS
Verðmæti aflans sem
landað var í Þýska-
landi er samkvæmt
heimildum á bilinu
ellefu til fjórtán millj-
ónir króna. Söluverð-
mæti fíkniefnanna er
um fimmtíu milljónir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FÍKNIEFNI Sérstaklega er leitað í
skipum og flugvélum á leið til
Íslands, að sögn upplýsingafull-
trúa hjá tollinum í Bremerhaven,
en tveir Íslendingar sitja í gæslu-
varðhaldi í Þýskalandi eftir að sjö
kíló af fíkniefnum fundust um
borð í Hauki ÍS. Upplýsingafull-
trúinn segir Íslendingana ekkert
hafa gefið upp í yfirheyrslum sem
gæti gert það að verkum að dóm-
urinn yfir þeim yrði þyngri en ella.
Málið stórt á þýskan mælikvarða
Þrjú og hálft kíló af kókaíni og
sama magn af hassi fundust í
skipsklefum mannanna þar sem
efnunum hafði
verið pakkað í
f e r ð a t ö s k u r.
Hann segir
skip og flug-
vélar á leið til
Íslands undir
meira eftirlit
eftir að stórt mál kom upp í Þýska-
landi á síðasta ári. Fimm til sex
sinnum hærra verð fæst fyrir
fíkniefni á Íslandi en í Þýskalandi.
24 ára karlmaður var handtekinn í
Þýskalandi seinni hluta síðasta árs
með tíu kíló af hassi í bílaleigubíl
sem maðurinn og kærasta hans
ferðuðust í. Kærastan fékk að fara
heim til Íslands en hann er í gæslu-
varðhaldi. Þá sitja Rúnar Ben
Maitsland og Þjóðverjinn Clause
Friehe af sér fang-
elsisdóma hér á landi
sem þeir fengu fyrir
innflutning á tæpum
900 grömmum af am-
fetamíni og tæpu kílói af
kannabis. Mál Maitsland
og Friehe tengdist þýsk-
um smyglhring þar sem
höfuðpaurinn Shröder
var dæmdur til margra
ára fangelsis í Þýska-
landi.
Upplýsingafulltrúi tollsins í
Bremerhaven segir aðra skipverja
á Hauki ÍS ekki liggja undir grun.
Þeir sem voru teknir eru 50 ára og
38 ára gamlir og hefur sá yngri
áður komið við sögu lögreglu.
Mennirnir eru í gæsluvarðhaldi og
hafa engin samskipti við aðra fanga
en geta þó fengið heimsóknir undir
eftirliti og samkvæmt ákveðnum
reglum. Upplýsingafulltrúinn seg-
ist ekki geta sagt til um hversu
lengi mennirnir verða í haldi en það
verði þó þar til dómur gengur í
málinu. Hann segir málið vera al-
varlegt, einkum vegna magns kóka-
ínsins. Málið sé þó ekki í hópi alvar-
legustu málanna þar í landi heldur
sé það meðalstórt á þýskan mæli-
kvarða.
Hámarksrefsing við brotinu er
fimmtán ára fangelsi en upplýs-
ingafulltrúinn segir ólíklegt að
mennirnir fái svo þungan dóm.
Maður sem var tekinn með eitt og
hálft kíló af kókaíni í Þýskanlandi
hlaut nýverið sjö ára fangelsi en
hann hafði margoft brotið af sér
áður.
Fíkniefnin verðmætari en aflinn
„Ég hef ekkert um málið að segja,
mér finnst það bara sorglegt,“
segir Eiríkur Böðvarsson, eigandi
Hauks ÍS, og bætir við að honum
finnist óviðeigandi að blanda út-
gerðinni í málið þó að tveir starfs-
menn hennar hafi brotið af sér.
Eiríkur segir að ekki hafi
fiskast vel að undanförnu. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins fór
Haukur ÍS með rúm sjötíu tonn af
karfa og tíu kíló af þorski til
Þýskalands. Verðmæti aflans er
talið vera á bilinu ellefu til fjórtán
milljónir. Reyndur sjómaður sagði
í samtali við blaðið að margir teldu
hæpið að sigla til Þýskalands með
ekki meiri verðmæti en þetta. Mat
þýska tollsins er að söluverðmæti
fíkniefnanna, sem tekin voru um
borð í Hauki ÍS, sé um fimmtíu
milljónir ef þau eru seld á Íslandi.
hrs@frettabladid.is
gudsteinn@frettabladid.is
Þjóðverjar fylgjast vel
með ferðum til Íslands
Upplýsingafulltrúi hjá tollinum í Bremerhaven segir íslensk skip og flugvélar vera undir sérstöku eftir-
liti. Fíkniefnin sem tekin voru í Hauki eru margfalt verðmætari en aflinn sem var landað í Þýskalandi.
Á GANGI Í BAGDAD
Ahmed leiddi blindan afa sinn fram hjá
kosningaveggspjöldum sem höfðu verið
límd á vegg í Bagdad, höfuðborg Íraks.
■ EVRÓPA
MUNAÐARLEYSINGJAHÆLI BÍTL-
ANNA LOKAÐ Hjálpræðisherinn
í Liverpool hefur ákveðið að
loka munaðarleysingjahælinu
Strawberry Field sem Bítlarnir
gerðu frægt í einu laga sinna,
Strawberry Fields Forever.
Fá börn eru eftir á munaðar-
leysingjahælinu því flestum
börnum er komið fyrir hjá fóst-
urforeldrum.