Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 46
F2 16 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Ný stutt kvikmynd eftir Bjargeyju
Ólafsdóttur verður sýnd á einkasýn-
ingu Bjargeyjar, sem opnuð verður á
föstudagskvöld í Listasafni Reykja-
víkur í Hafnarhúsinu. Með hlutverkin
í myndinni fara þau Kristján Franklín
Magnús og Þrúður Vilhjálmsdóttir.
Söguhetjan í myndinni fær það
sem hún hefur alltaf óskað sér, en þá
bregður svo við að hún saknar þess
sem hún hafði. Eiginmaður hennar
lenti í slysi sem breytti skapgerð
hans.
Hann sem áður var erfiður í sam-
búð er nú ljúfur sem lamb en eigin-
konan sem hafði óskað sér persónu-
leikabreytinga er miður sín og ósátt
við manninn nú þegar hann er loks
orðinn blíður og meir. Að lokum
kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist
og hún átti ekki að láta blekkjast af
viðkvæmu útliti hans.
Myndin nefnist Ég missti næstum
vitið og er hluti af innsetningunni
Láttu ekki viðkvæmt útlit mitt
blekkja þig, sem samanstendur af ljós-
myndum og umræddri mynd.
Á föstudagskvöldið verða einnig
opnaðar tvær aðrar sýningar í Lista-
safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu.
Önnur þeirra er fyrsta yfirlitssýn-
ing hins kunna breska ljósmyndara
Brian Griffin, sem hefur á löngum
ferli starfað fyrir tímarit, tískufyrir-
tæki, auglýsendur, tónlistarfólk og
stórfyrirtæki, auk sjálfstæðra verkefna.
Loks kynnir myndlistarmaðurinn
Þórður Ben Sveinsson hugmyndir
sínar um borg náttúrunnar en mark-
mið listamannsins er að benda á þau
djúpu og afgerandi áhrif sem skipulag
borgarinnar hefur fyrir það samfélag
sem hún fóstrar.
Fimmtudagur...
... í hádeginu verða tónleikar í sal
Tónlistarskóla Garðabæjar að Kirkju-
lundi. Gunnlaugur Þór Briem leikur á
píanó, en þessir tónleikar eru hluti af
tónleikaröð sem efnt er til nú í janúar og
febrúar í tilefni af fertugsafmæli skólans.
... lögin hans Sig-
valda Kaldalóns
eiga sér djúpar rætur
í þjóðarsálinni. Í
Salnum í Kópavogi
ætla þau Ólafur
Kjartan Sigurðar-
son barítón, Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópran, Sigríður Að-
alsteinsdóttir mezzósópran, Sess-
elja Kristjánsdóttir mezzósópran,
Jóhann Friðgeir Valdimarsson ten-
ór, Snorri Wium tenór og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari að flytja lög
Sigvalda á tónleikum, sem haldnir eru
klukkan 20 í tilefni af útgáfu geisla-
disksins Svanasöngur á heiði.
... þeir sem hafa
gaman af djassgítarleik
ættu að bregða sér á
Nasa við Austurvöll þar
sem franski gítarleikar-
inn Sylvain Luc kemur
fram ásamt hinum íslenska Birni
Thoroddssen.
Föstudagur...
... rokkunnendur ættu endilega að
bregða sér á Grand Rokk þar sem
hljómsveitirnar Darkhammer, Hot
Damn og Shadow Parade láta
gamminn geisa. Tónleikarnir hefjast
klukkan 23.
... listunnendur gætu gert margt vit-
lausara en að leggja leið sína í Kubbinn,
sem er sýningarsalur Myndlistardeildar
Listaháskóla Íslands að Laugarnesvegi
91. Klukkan 15 opnar Þóra Gunnars-
dóttir sýningu sem ber heitið „Hvísla-
Öskra“ og hefst með gjörningi. Í saln-
um verða síðan til sýnis skúlptúrar, sem
verða til á gjörningnum.
... um kvöldið verða síðan opnaðar
þrjár sýningar í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu. Bjargey Ólafsdóttir
sýnir kvikmynd sína Láttu ekki við-
kvæmt útlit mitt blekkja þig. Áhrifa-
valdar nefnist yfirlitssýning á ljósmynd-
um eftir Brian Griffin. Loks sýnir
Þórður Ben Sveinsson hugmyndir
sínar um Borg náttúrunnar.
Laugardagur...
... Íslenski dans-
flokkurinn efnir til
fjölskyldusýningar í
Borgar leikhúsinu
þar sem sýnd verða
þrjú verk sem öll
ættu að geta höfðað
til yngri kynslóðarinnar ekki síður en
hinna sem eldri eru. Verkin eru Bolti
eftir Katrínu Hall, Æfing í Paradís eft-
ir Stijn Celis og The Match eftir
Lonneke van Leth. Sýningin hefst
klukkan 14.
... Salonhljómsveit Sigurðar
Ingva Snorrasonar efnir til nýárs-
tónleika í Salnum í Kópavogi klukkan
17 á laugardaginn, eins og hefð hefur
skapast fyrir undanfarin ár. Hljóm-
sveitin flytur ásamt Guðrúnu Ingi-
marsdóttur sópransöngkonu Vínar-
ljóð, óperettuaríur, polka, valsa og aðra
gleðitónlist. Sigrún Eðvaldsdóttir
leikur einleik og er jafnframt konsert-
meistari.
... klukkan fimm
hefjast svo aðrir nýárs-
tónleikar í Kirkjulundi
í Reykjanesbæ þar sem
Óperukór Hafnar-
fjarðar syngur á síð-
kjólum, bregður á leik og skapar sanna
Vínarstemningu. Stjórnandi kórsins er
Elín Ósk Óskarsdóttir sópran. Hún
syngur einnig einsöng ásamt Snorra
Wium tenór og nokkrum öðrum
söngvurum úr röðum kórfélaga. Píanó-
leikari er Peter Máté og fiðluleikari
Guðný Guðmundsdóttir.
3 dagar...
Í tilefni bóndadagsins 21. janúar veitum
við konum einstakt tækifæri á að gera vel við bónda
sinn.
Frí gisting á Hótel Örk ef keyptur er þriggja
rétta hátíðarkvöldverður hússins. Einnig boðið upp á
þorramat.
Verð einungis 4.900,- krónur á mann.
Morgunverður af hlaðborði innifalinn.
Tilboð gildir fyrir föstudaginn 21. janúar og
laugardaginn 22. janúar. Sé keyptur
hátíðarkvöldverður (eða þorramatur) bæði kvöldin er
verðið einungis 9.500,- krónur á mann og gisting frí
frá föstudegi til sunnudags.
Rómantísk lifandi tónlist fram eftir nóttu.
Tökum að okkur þorrablót fyrirtækja, átthagafélaga, vinahópa og félagasamtaka.
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 483 4700
www.hotel-ork.is, info@hotel-ork.is
Ekki er allt sem sýnist
BÍÓ
Kvikmyndin
Finding
Neverland
verður frum-
sýnd annað
kvöld. Hún er
byggð á ævi
skoska leikrita-
skáldsins
James Matthew Barrie sem er
þekktur fyrir söguna um Pétur
Pan.
Myndin fjallar um aðdragandann
að sögunni um Pétur Pan. Matt-
hew (Johnny Depp) hefur gengið
nokkuð illa að semja vinsælt leik-
rit. Þegar hann hittir ekkju
nokkra (Kate Winslet) og dreng-
ina hennar fjóra fær hann smám
saman hugmyndina að sögunni
um dreng sem vill ekki eldast.
Aðalhlutverk: Johnny Depp,
Kate Winslet, Dustin Hoffman,
Julie Christie, Joe Prospero,
Ian Hart og Luke Spill.
Leikstjóri: Marc Forster sem
síðast leikstýrði Óskarsverðlauna-
myndinni Monster ‘s Ball með
Halle Berry í aðalhlutverki.
Orðspor: Myndin fær prýðisgóða
dóma. Hefur hún þegar verið
sögð líkleg til afreka á næstu
Óskarsverðlaunahátíð.
Á föstudag verður einnig frum-
sýnd gaman-
myndin
Lemony
Snicket’s A
Series of Un-
fortunate Ev-
ents með Jim
Carrey í aðal-
hlutverki.
Myndin fjallar
um hin þrjá
munaðarlausa krakka. Fjarskyldur
ættingi þeirra, Olaf greifi, vill
hrifsa frá þeim auðæfi sem for-
eldrar þeirra létu eftir sig og beit-
ir til þess öllum brögðum.
Aðalhlutverk: Jim Carrey,
Meryl Streep, Jude Law, Emily
Browning, Liam Aiken, Kara
Hoffman og Shelby Hoffman.
Leikstjóri: Brad Silberling sem
er nokkuð óreyndur í faginu.
Orðspor: Myndin hefur fengið
góðar viðtökur og Jim Carrey
þykir fara á kostum í aðalhlut-
verkunum í sínum fjölmörgu
gervum.