Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 13. janúar 2005 33
Real Madrid í spænska boltanummun ganga frá samningi við
Thomas Gravesen hjá Everton, sam-
kvæmt nýjustu
fregnum frá Spáni.
Kaupverðið er tvær
milljónir punda eða
um 236 milljónir ís-
lenskra króna. Tals-
maður Everton
sagðist hins vegar
ekki vita til þess að
liðin hefðu rætt saman um hugsan-
lega sölu. David Moyes, fram-
kvæmdastjóri Everton, sagði að
Gravesen væri ekki á förum frá félag-
inu. „Við spjöllum reglulega saman
og vitum hvar við stöndum. Við vilj-
um ekki missa hann og ég held að
komi ekki til þess,“ sagði Moyes.
Daninn Henrik Pedersen hjáBolton var settur á lista yfir leik-
menn sem verður skipt út, aðeins 5
vikum eftir að samningur hans við fé-
lagið var framlengdur. Pedersen,
sem hefur skorað 9 mörk hjá Bolton,
var vonsvikinn með
ákvörðun félagsins.
„Það er sérstaklega
svekkjandi að heyra
að liðið vilji selja
mig eftir svona gott
tímabil,“ sagði Ped-
ersen. „Ég mun
halda áfram að
skora til að sýna það í verki að ég vilji
vera áfram hér.“ Sjö aðrir leikmenn
eru á listanum og samkvæmt Phil
Brown, aðstoðarframkvæmdastjóra
Bolton, má búast við miklum breyt-
ingum áður en lokað verður fyrir leik-
mannaskipti.
Það er ekki tekið út með sældinniað vera kylfusveinn hjá einum
besta golfara heimsins. Þetta fullyrðir
Dave Renwick sem hefur starfað
sem kylfusveinn hjá Fiji-búanum
Vijay Singh, sem er í efsta sæti
heimslistans um þessar mundir.
Renwick, sem er
skoskur, er sagður
hafa fengið 1 millj-
ón dollara í laun á
síðasta ári eða rúm-
lega 63 milljónir ís-
lenskra króna. „Við
erum ennþá ágætis
vinir en þetta var
enginn dans á rósum, þrátt fyrir að
launin væru góð,“ sagði Renwick.
„Eftir að metnaður Vijay jókst varð
hann mjög harður húsbóndi. Þegar
ég vaknaði á morgnana var ég mjög
langt frá því að vera fullur tilhlökkun-
ar að fara í vinnuna.“
Tveir keppendur í Dakar-mótór-hjólarallakstrinum í Afríku létu lífið
á fyrstu tveimur dögum keppninnar.
Spánverjinn Jose
Manuel Perez lést
af völdum áverka
þegar hann lenti í
árekstri. Ítalinn
Fabrizio Meoni
hneig niður af hjóli
sínu og í ljós kom að
hann hafði fengið
hjartaáfall. Keppnin hefur farið fram
árlega síðan 1979 og hafa rúmlega
30 manns látið lífið til þessa.
Ökumaðurinn Juan PabloMontoya í Formúlu 1 kapp-
akstrinum, hefur lofað félaga sínum
hjá McLaren, Kimi Raikkonen, að
hann muni veita honum harða
keppni í vetur. „Það
var mjög erfitt að
eiga við Kimi þegar
við vorum hvor í
sínu liðinu. Núna
erum við á sama
báti en munum
samt heyja harða
baráttu hvor við
annan,“ sagði Montoya. „Þegar ég
var í sama liði og Ralf Schumacher
þá héldu allir að hann væri aðalmað-
ur liðsins. Hann fékk himinháar fjár-
hæðir og eftir það var ég miklu betri
en hann,“ sagði hinn kólumbíski
Montoya, kokhraustur að vanda.
Íár heldur íslenska kraftlyftingasam-bandið upp á 20 ára afmælið sitt
sem og keppnina Sterkasti maður Ís-
lands. Að því tilefni hefur Auðunn
Jónsson heitið því
að taka 300 kíló á
Íslandsmótinu í
bekkpressu sem
fram fer 29. janúar í
Valsheimilinu. Þá
hefur sjónvarpsstöðin Sýn hafið sýn-
ingar á keppninni Sterkasti maður
heims. Einnig má geta þess að kraft-
lyftingasambandið vinnur nú að
heimildarmynd um Jón Pál Sigmars-
son heitinn en stefnt er að frumsýn-
ingu í lok þessa árs.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Spáð í spilin fyrir 13. umferð Intersportdeildarinnar
KÖRFUBOLTI Fimm leikir fara fram í
kvöld í 13. umferð Intersport-
deildarinnar í körfuknattleik.
Skallagrímur mætir KR, Fjölnir
tekur á móti KFÍ, Grindvíkingar
sækja Hamar/Selfoss heim,
Njarðvík etur kappi við ÍR og
Tindastóll og Haukar eigast við á
Sauðárkróki.
Deildin hefur verið með
fjörugra móti í vetur og er að-
eins eitt lið af tólf sem virðist
ekki eiga möguleika á sæti í
úrslitakeppninni.
KFÍ hefur átt í miklu basli í
vetur og ekki enn náð að hala inn
stigum enn sem komið er. Fjölnir
er hins vegar búið að skipa sér í
hóp bestu liða deildarinnar og
fer auðveldlega með sigur af
hólmi gegn Ísfirðingum í
Grafarvogi í kvöld.
Viðureign Skallagríms og KR
verður með jafnara móti en ekki
er ólíklegt að Vesturbæjarliðið
fari heim með sigur í farteskinu.
Bæði lið eru með nýjan erlendan
leikmann í sínum herbúðum og
einhver verður aðlögunartíminn
þangað til að þeir falla betur inn
í lið sín.
Gengi Grindavíkurliðsins hef-
ur verið upp og ofan og það varð
fyrir enn einu áfallinu í síðustu
viku þegar Guðlaugur Eyjólfs-
son ákvað að hætta að leika með
liðinu vegna óánægju með ráðn-
ingu erlends leikmanns. Ham-
ar/Selfoss hefur gengið vel undir
stjórn Péturs Ingvarssonar og
nær að leggja lið Grindavíkur að
velli í kvöld.
Lið ÍR er óútreiknanlegt og
hefur boðið sínum stuðnings-
mönnum upp á mjög köflótt
gengi í vetur. ÍR-ingar leika eins
og stjörnur einn daginn en detta
svo niður á botnssætisplan þess
á milli. Njarðvíkingar eiga auð-
veldan sigur fyrir höndum ef
þeir leika sinn leik.
Stólarnir eru komnir með
Kristinn Friðriksson á nýjan leik
og menn þar á bæ sætta sig ekki
við tap á eigin heimavelli. Kapp-
inn vill vafalítið sanna að endur-
koma hans er engin tilviljun og
Haukarnir munu horfa dolfallnir
á sýningu frá Kristni í kvöld sem
leiðir Norðanmenn til sigurs.
Stórleikur umferðarinnar
verður á mánudaginn þegar nú-
verandi Íslands-
meistarar, Kefl-
víkingar, taka
á móti Snæ-
felli.