Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 18
18
Íslensk heimili kaupa borðbúnað, glös,
eldhús- og heimilisáhöld fyrir 18.553
krónur á ári. Íbúar dreifbýlisins verja
mun minna fé í slíkan varning en
höfuðborgarbúar.
SVONA ERUM VIÐ
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur engin
viðbrögð fengið frá olíufélögunum
vegna bréfs sem hún sendi þeim í
haust þar sem óskað var eftir því að
þau hefðu frumkvæði að því að semja
um greiðslur bóta vegna ólögmæts
samráðs sem þau viðhöfðu í útboði
bæjarins vegna olíuverslunar.
Bæjarstjórnin taldi að verðsamráðið
hefði valdið Vestmannaeyjabæ, íbúum
bæjarins og fyrirtækjum tjóni. Lúðvík
Bergvinsson, oddviti Vestmannaeyjalist-
ans, sagði þá að Vestmannaeyjabær
myndi leita réttar síns og hann vonast
eftir jákvæðum undirtektum olíufélag-
anna í samræmi við afsökunarbeiðnir
þeirra sem birtust í kjölfar úrskurðar
samkeppnisráðs um verðsamráð félag-
anna.
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segist engin svör hafa
fengið frá olíufélögunum, hvorki form-
leg né óformleg. „Við bíðum spennt. Við
reiknuðum með því að fá svör frá þeim
enda buðum við þeim að koma með
tillögur um hvernig mætti bæta bænum
tjónið. Það er líka að mínu mati lág-
markskurteisi að svara erindum sem
þessum. Einhverra hluta vegna hefur
staðið á svari.“
Bergur segir greinilegt að það þurfi að
ítreka beiðnina. Bæjarstjórnin hefur ekki
metið tjónið sem bæjarsjóður varð fyrir
vegna samráðs olíufélaganna. Skýr
dæmi um samráð eru í niðurstöðu
samkeppnisráðs og Bergur segir aug-
ljóst að olíufélögin hafi skipt með sér
verkum. „Við vildum bjóða olíufélögun-
um að setjast niður með okkur og gera
tillögu um lausn á þessu máli.“ Hann
segir hljóðið þungt í bæjarbúum vegna
samráðsins.
Olíufélögin hafa ekki svarað Vestmannaeyjabæ
EFTIRMÁL: SKAÐABÆTUR VEGNA VERÐSAMRÁÐS
13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Vestfirðingur
2004 valinn
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guð-
mundsson, sem er betur þekktur
undir listamannsnafninu Mugi-
son, er Vestfirðingur ársins 2004
að mati lesenda vefritsins bb.is.
Örn Elías hefur staðið sig frábær-
lega á tónlistarsviðinu á undan-
förnum árum og sérstaklega á því
síðasta, en þá gaf hann m.a. út
plötuna Mugimama (Is This Mon-
keymusic?), sem fjölmargir gagn-
rýnendur hafa valið bestu plötu
ársins. Þá samdi hann tónlistina
við kvikmynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar, Næsland, auk þess sem
hann er tilnefndur til fimm
verðlauna á Íslensku tónlistar-
verðlaununum sem veitt verða í
næsta mánuði. Örn Elías stóð
einnig í samvinnu við föður sinn
og fleiri aðila fyrir tónlistarhátíð-
inni Aldrei fór ég suður, sem hald-
in var á Ísafirði um síðustu páska.
Með tónlistarhátíðinni varð hin
árlega skíðavika á Ísafirði að
eftirsóknarverðum viðburði, sem
vel var sóttur. Þá hefur Örn Elías
verið duglegur við að kynna
heimaslóðirnar, eða eins og fjöl-
margir lesendur sögðu: „Mugison
er ein besta kynning sem Vest-
firðir hafa fengið um langt skeið.“
72 einstaklingar fengu atkvæði
í kosningunni, sem stóð frá miðj-
um desember og fram til áramóta.
Atkvæðin voru vel á fjórða
hundraðið og fengu þeir sem voru
í 1.-4. sæti rúmlega helming
þeirra.
Faðir Arnar Elíasar, Guðmund-
ur M. Kristjánsson, hafnarstjóri
Ísafjarðarbæjar, tók við viður-
kenningu sonarins á laugardag,
sem eru eignar- og farandgripir
sem smíðaðir eru af Dýrfinnu
Torfadóttur, gullsmið í Gullauga á
Ísafirði.
„Þetta er agalega mikill heiður.
Ég veit eiginlega ekki alveg hvað
ég hef gert svona merkilegt. Per-
sónulega finnst mér það mitt
mesta afrek á liðnu ári að hafa
barnað unnustu mína,“ sagði Örn
Elías er honum voru tilkynnt
úrslitin, en Rúna Esradóttir,
verðandi barnsmóðir hans, verður
að líkindum léttari eftir um mán-
uð. „Þar á eftir eru það kannski
þessar tvær plötur sem ég gaf út.
Svo finnst mér mjög gaman að
hafa átt þátt í tónlistarhátíðinni
Aldrei fór ég suður sem haldin
var á Ísafirði um síðustu páska.“
Aðspurður segist hann vonast
til að titillinn „Vestfirðingur árs-
ins 2004“ gefi tóninn fyrir það
sem koma skuli á þessu ári og vís-
ar þar til fimm tilnefninga sem
hann hefur hlotið til Íslensku tón-
listarverðlaunanna sem afhent
verða í næsta mánuði. „Það væri
gaman. Annars er ég furðu lostinn
yfir að hafa hlotið þessi verðlaun.
Mér finnst Jón Fanndal Þórðarson
Síðumúla 13
Opið 10 - 18
Sími 568-2870
ÚTSALA ÚTSALA
60 – 80 %
Ótrúlega lágt verð
Dæmi um verð:
Áður Núna
Riffluð peysa 6.500.- 1.400.-
Rennd peysa 5.900.- 1.900.-
Rúllukragapeysa 6.200.- 1.900.-
Vafin peysa 4.800.- 1.900.-
Peysa m/V-hálsmáli 4.700.- 1.400.-
Satín toppur 5.300.- 1.900.-
Bolur m/perlum 6.600.- 1.900.-
Bolur m/áprentun 3.700.- 900.-
Skyrta 4.000.- 1.500.-
Túnikublússa 4.700.- 900.-
Hettupeysa 4.900.- 1.900.-
Sítt pils 6.300.- 900.-
Flauelsjakki 6.400.- 1.900.-
Dömujakki 5.600.- 900.-
Vatteruð úlpa 6.800.- 2.900.-
Leðurbuxur 11.200.- 2.900.-
Kvartbuxur 4.900.- 900.-
Dömubuxur 5.800.- 900.-
Slá með tveir fyrir einn.
Fyrir þorrablótið og árshátíðina
Dúkar, servíettur og kerti í miklu úrvali
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Nýr o
pnun
artím
i
í ver
slun
RV:
R
V
20
27
Lotus TexStyle dúkarúlla
1,2 x 50 m
5.696.-
Bosíus kerti
24,5 cm, 30 stk.
598.-
Lotus NexxStyle servíettur
39 x 39 cm, 80 stk.
276.-
Verð frá
M
YN
D
IR
B
B
.IS
Lesendur bb.is völdu
tónlistarmanninn Örn
Elías Guðmundsson,
sem betur er þekktur
undir listamannsnafn-
inu Mugison, Vestfirð-
ing ársins 2004. Plata
hans Mugimama (Is
This Monkeymusic?),
er að margra mati besta
plata ársins.
VERÐLAUNIN AFHENT Guðmundur M. Kristjánsson, faðir Arnar Elíasar,
tekur við viðurkenningu og farandgrip úr hendi Arnar Torfasonar í Gull-
auga (til vinstri) og Hálfdáns Bjarka Hálfdánssonar, fréttastjóra bb.is.