Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 6
6 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Heilbrigðisráðherra styttir biðlista:
Ráðherra kaupir 650 aðgerðir
HEILBRIGÐISMÁL Hafist hefur verið
handa við að stytta biðlista eftir
tilteknum aðgerðum. Jón Krist-
jánsson, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, hefur ákveðið
að taka tilboði fjögurra heil-
brigðisstofnana um kaup á
tæplega 650 aðgerðum. Heildar-
kostnaður er nær 90 milljónum
króna.
Um er að ræða hjartaþræð-
ingar, liðskipta- og augnaðgerðir.
Stofnanirnar eru Landspítali –
háskólasjúkrahús sem tekur að
sér 150 augnaðgerðir, 70 hjarta-
þræðingar og 20 liðskiptaað-
gerðir, Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri sem tekur að sér
að gera 40 liðskiptaaðgerðir,
Sjúkrahúsið á Akranesi en þar
verða gerðar 16 liðskiptaað-
gerðir aukalega og St. Jósefspít-
alann í Hafnarfirði þar sem
gerðar verða 350 augnaaðgerðir.
Ákvörðun ráðherra er liður í
að draga enn frekar úr bið eftir
þessum aðgerðum. Heildar-
kostnaðurinn við aðgerðirnar er
tæpar 87 milljónir króna.
- jss
Minni viðskiptahalli
Forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans segir viðskiptahallann
fyrstu níu mánuði síðasta árs minni en búist var við. Skýringin er hugsanlega
sú að fólk er ekki bara að eyða í neyslu heldur í húsnæði.
EFNAHAGSMÁL Viðskiptahallinn
fyrstu níu mánuði síðasta árs
nam 36,3 milljörðum króna eða
5,6 prósentum af landsfram-
leiðslu sem er 0,6 prósentum
meira en fyrstu níu mánuði
ársins 2003.
„Það er mikilvægt í þessu
sambandi að það er búið að vera
að spá miklum viðskiptahalla í
langan tíma og því á þetta ekki
að koma á óvart,“ segir Edda
Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
greiningardeildar Landsbanka
Íslands. „Það sem er í raun
merkilegt við tölurnar fyrir
fyrstu níu mánuðina er að þær
eru lægri en ég átti von á. Þannig
að það er útlit fyrir að spá
Seðlabankans gangi ekki eftir.“
Edda Rós segir hugsanlegt að
skýringin á því að viðskiptahall-
inn sé minni en spáð var sé að
fólk sé ekki að eyða þeim auknu
fjármunum sem það hefur í
neyslu heldur í húsnæði. Ef
peningunum sé varið til húsnæð-
iskaupa innanlands þýði það að
minni þörf sé á innfluttum vör-
um.
„Auðvitað er viðskiptahallinn
samt alltaf ógn við stöðugleikann
sérstaklega ef vitað er að erfitt
er að fjármagna hann. Við vitum
hins vegar að þriðjungur af
honum tengist stóriðjufram-
kvæmdum og því búið að
fjármagna þann hluta og ég get
ekki séð að það verði erfitt að
fjármagna restina.“
Edda Rós segist reikna með
því að krónan veikist um mitt
næsta ár.
„Það verður samt að hafa í
huga að það er alveg vonlaust að
spá fyrir um nákvæmar tíma-
setningar í þessum efnum. Við
hjá greiningardeild Landsbank-
ans spáum því samt að krónan
verði sterk út þetta ár og veikist
síðan um mitt árið 2006. Það
þýðir það að verðbólgan getur
farið af stað þá.“
Útflutningsfyrirtækin hafa
staðið mjög vel undanfarið mið-
að við það hvað krónan hefur
verið sterk og gert þeim erfitt
fyrir að sögn Eddu Rósar. Hún
segir að sjávarútvegsfyrirtækin
hafi náð góðum árangri þó að þau
sem flytji til Bandaríkjanna hafi
náttúrlega átt mjög erfitt upp-
dráttar. Þá segir hún hafa haft
jákvæð áhrif á viðskiptajöfnuð-
inn að fyrirtæki eins og til
dæmis Actavis hafi í mjög auknu
mæli verið að flytja út lyf. Það sé
breyting frá því sem áður var.
trausti@frettabladid.is
Átök á Gazaströnd:
Fimm féllu
MIÐ-AUSTURLÖND Fimm létu lífið í
átökum Ísraela og Palestínumanna
í gær, þeim fyrstu eftir kjör
Mahmoud Abbas sem eftirmanns
Jassers Arafats.
Ísraelskar hersveitir umkringdu
hús í Ramallah-flóttamannabúð-
unum á Gaza í gær og réðust til inn-
göngu gegn tveimur palestínskum
vígamönnum sem voru þar fyrir.
Því lauk með því að báðir Palestínu-
mennirnir lágu í valnum.
Ísraelskur landtökumaður og
tveir palestínskir vígamenn létust í
árás Palestínumannanna nærri
ísraelskri landnemabyggð á Gaza
síðar í gær.
Vígamennirnir sprengdu
sprengju en voru síðan skotnir af
ísraelskum hermönnum. ■
HÆTTA Á BROTTREKSTRI Erlendir
hjálparstarfsmenn og fréttamenn
eiga á hættu að verða reknir frá
Aceh-héraði í Indónesíu ef þeir
gera stjórnvöldum ekki grein
fyrir ferðum sínum. Embættis-
menn greindu frá þessu í gær og
báru fyrir sig öryggissjónarmið
vegna áralangs borgarastríðs í
héraðinu.
VARAÐ VIÐ SKJÁLFTA Taílensk
stjórnvöld vara við því að jarð-
skjálfti geti valdið miklum skaða
í höfuðborginni Bangkok. „Í dag
getum við ekki hugsað líkt og í
fortíðinni. Það sem hefur aldrei
gerst getur einhvern tíma gerst,“
sagði Suraphong Suebwonglee
upplýsingaráðherra.
GUÐDÓMLEG FORSJÓN Trúaðir
Indónesar lofa margir Allah og
túlka það sem guðdómlega for-
sjón að moskur skuli hafa staðið
af sér flóðbylgjuna 26. desember
þrátt fyrir að öll híbýli í kring
þurrkuðust út. Aðrir benda þó á
að moskurnar eru byggðar úr
steini en heimilin sem eyðilögð-
ust voru flest timburbyggingar.
LÆRA Á LÚXUSHÓTELI Hluta
fjögurra stjörnu hótels á Kamala-
strönd í Taílandi hefur verið
breytt í skóla. Starfsmenn þess
segja lítið um gesti núna og því
tilvalið að setja upp námsaðstöðu
í stað skóla sem eyðilögðust af
völdum flóðbylgjunnar. Börnin
læra nú við sundlaug hótelsins og
snæða hádegismat í matsalnum.
FISKSALA HRYNUR Fisksala
hefur dregist saman um helming
á eyjunni Penang í Malasíu síð-
ustu daga. Ástæðan er orðrómur
um að fisksali hafi fundið fingur
í maga fisks. Lögreglan hefur
varað við því að hverjum þeim
sem dreifi slíkum sögum verði
refsað enda séu þær lygi.
■ AFRÍKA
■ FLÓÐBYLGJANDavíð í mánaðarleyfi:
Geir fer
á tvo fundi
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra hleypur í skarðið
fyrir Davíð
Oddsson á
tveimur fund-
um erlendis í
forföllum utan-
ríkisráðherra,
í Finnlandi og í
Tansaníu. Hall-
dór Ásgrímsson
f o r s æ t i s r á ð -
herra fer þó
formlega með
málefni utanríkisráðuneytisins í
fjarveru Davíðs.
Davíð verður í mánaðarleyfi
frá störfum erlendis að sögn
Gunnars Snorra Gunnarssonar
ráðuneytisstjóra.
Davíð mun mæta á utanríkis-
ráðherrafund NATO, sem haldinn
verður 9. til 10. febrúar, og kemur
í framhaldi af því til starfa í ráðu-
neytinu að nýju. - ás
Horfðir þú á þátt The Amazing Race,
sem tekin var upp á Íslandi?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú í leikhús á árinu?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
49.57%
50.43%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
GEIR H. HAARDE
Í BRUNARÚSTUM HEIMILISINS
Trudy Barrowcliffe reyndi að hugga Sue
Smith í brunarústum heimilis þeirrar síðar-
nefndu.
Skógareldar:
Verstu í
tuttugu ár
ÁSTRALÍA, AP Níu hafa látið lífið og
sex er saknað í kjölfar verstu
skógarelda sem geisað hafa í
Ástralíu síðustu tuttugu árin. Átta
fórnarlambanna létust þegar
kviknaði í bílum sem þau reyndu
að flýja í. Tvö börn, tveggja og
fjögurra ára, eru yngst þeirra
sem hafa látist af völdum skógar-
eldanna.
Skógareldarnir hafa brunnið á
145 þúsund hektara svæði á rækt-
uðu svæði á Eyreskaga í Suður-
Ástralíu. Eldarnir brutust út á
mánudag í kjölfar mikillar hita-
stækju þar sem hitinn hefur
mælst yfir 44 gráðum á Celsius. ■
ÚKRAÍNUHER Á BROTT Úkraínsk
stjórnvöld hafa ákveðið að kalla
alla 500 hermenn sína sem eru
við friðargæslu í Síerra Leóne
heim fyrir lok mars. Ástæðan er
að samþykki þingsins fyrir veru
hersins í Síerra Leóne er útrunn-
inn og aðstæður þar óhentugar
hermönnunum. Ellefu þúsund
friðargæsluliðar eru í Síerra
Leóne.
JÓN KRISTJÁNSSON Heildarkostnaður
við aðgerðirnar sem stofnanirnar
keyptu er nær 90 milljónum króna.
EDDA RÓS
Reiknar með að krónan veikist um
mitt næsta ár.
UPPSKIPUN Í SUNDAHÖFN
Meðalinnflutningur á mánuði í fyrra nam 20 milljörðum króna en var árið 2003 um 17 milljarðar króna. Raunaukning milli ára er því 18 prósent.
GENF, AP Ríki og samtök sem leggja
fram fé til neyðarhjálpar í Asíu í
kjölfar náttúruhamfaranna þar
ættu frekar að verja því í vel
þjálfaðar sveitir heimamanna en
að senda erlendar hjálparsveitir á
vettvang. Þetta sögðu talsmenn
Rauða krossins í gær og sögðu að
vel þjálfaðir heimamenn væru
betur til þess fallnir að bjarga
lífum en aðkomumenn.
„Við urðum vitni að því í lönd-
unum sem urðu fyrir flóðbylgj-
unni að sjálfboðaliðar voru þegar
á fyrstu mínútunum komnir ná-
grönnum sínum til hjálpar eftir að
flóðbylgjan reið yfir,“ sagði Susan
Johnson, aðgerðastjóri Alþjóða
Rauða krossins. „Það er nauð-
synlegt fyrir ríkisstjórnir heims
og aðra þá sem leggja fram fé að
gera sér grein fyrir þörfinni á að
leggja fé í uppbyggingu viðbún-
aðar samfélaganna ef þeir vilja í
raun og veru milda áfallið,“ sagði
hún.
Johnson sagði að flóðbylgjan
hefði sýnt fram á hversu erfitt
væri að koma hjálparsveitum á
milli landa, ekki væri aðeins við
eyðileggingu að eiga heldur
einnig tólf ólíkar ríkisstjórnir og
tólf tollayfirvöld. ■
Rauði krossinn leiðbeinir um aðstoð vegna náttúruhamfara:
Best að treysta á heimamenn
LEITAÐ AÐ LÍKUM FÓRNARLAMBA
Þrátt fyrir að rúmar tvær vikur séu liðnar
frá því flóðbylgjan skall á löndum Asíu og
Afríku er enn leitað að líkum þeirra sem
fórust. Í Indónesíu vinna hvort tveggja
hermenn og sjálfboðaliðar að leitinni.