Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
ÓKEYPIS
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
á hverju fimmtudagskvöldi
kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012.
ORATOR,
félag laganema við
Háskóla Íslands.NÝTT KORTATÍMABIL
BT útsölubæklingur
fylgir blaðinu í dag
Sjálfsrækt
Ég á góðan vin sem er svo óá-nægður með sjálfan sig. Honum
finnst hann svo misheppnaður.
Hann á í stökustu vandræðum með
sig. Hann er alltaf áhyggjufullur og
vonsvikinn og aðallega óánægður
með sjálfan sig. Mér hefur alltaf
fundist hann fínn. Ég hef verið mjög
ánægður með hann en ekki hann
sjálfur. Honum finnst allir aðrir
vera að gera það svo gott.
HANN HEFUR leitað ýmissa leiða
til að laga sig. Hann er fastagestur á
Dale Carnegie námskeiðum og með-
limur í ýmsum sjálfsræktarhópum,
þar á meðal fimm tólf spora sam-
tökum. Hann er aldrei heima hjá sér
en alltaf á námskeiðum og fundum.
Þetta hefur valdið fjölskyldu hans
miklum óþægindum. Konan hans er
orðin rosalega þreytt á þessu enda
er hún frá Venusi og hugsar með
öðru heilahveli en hann. En þreytt-
astur er hann sjálfur. Hann er orð-
inn uppgefinn og ringlaður og er við
það að gefast upp.
KANNSKI er ekkert að honum
eftir allt saman. Kannski er hann
bara allt í lagi. Og kannski eru aðrir
ekkert eins frábærir og hann held-
ur. Hann mundi kannski sjá það ef
hann fengi jafn mikinn áhuga á
öðrum og hann hefur á sjálfum sér.
Ég held að hann hafi misskilið þetta
hrapallega. Ef hann mundi bara
slappa af þá væri hann algjörlega
frábær. Ef hann gæti bara sætt sig
við hver hann er þá gæti hann jafn-
vel orðið hamingjusamur. Ham-
ingjan er nefnilega ekki falin í ein-
hverri kenningu úr þykkri bók eða í
gáfulegum orðum einhvers útlend-
ings heldur hér og nú í Íslenskum
hversdagsleika. Hún felst í því að
sætta sig við.
ÞAÐ ER EKKERT eins og allir í
heiminum séu með þetta allt á
hreinu og svo séu einn og einn mað-
ur sem séu ekki að fatta neitt eins
og margir virðast halda. Við getum
ekki miðað okkur við heiminn.
Heimurinn er ekki í lagi. Hann er
snarbilaður. Fólk er meira og minna
kexruglað. Þúsundir manna deyja
hungurdauða á hverjum degi. Stríð
geysa og sjúkdómar herja á heims-
byggðina. Illmenni virðast vaða
uppi útum allt. Margir jarðarbúar
hafa aldrei séð hreint og tært vatn.
Og við erum hluti af þessum heimi.
Við verðum aldrei fullkomin sama
hvað við gerum. Sá eini sem er full-
kominn er Guð. Og ef maður á gott
samband við hann þá getur maður
bara slappað af.
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR