Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 48
Breski ljósmyndarinn Brian Griffin hefur
tengst Íslandi sterkum böndum eftir að
hann gekk að eiga fyrirsætuna og skart-
gripahönnuðinn Brynju Sverrisdóttur.
Þau Brynja voru ekki búin að þekkjast
lengi þegar þau gengu í hjónaband og
búa nú á tveimur stöðum, í Lundúnum
og á Íslandi. Á morgun verður ljós-
myndasýning Brians opnuð í Hafnarhús-
inu – Listasafni Reykjavíkur, en hún er
fyrsta yfirlitssýning verka hans. Hún
nefnist „Áhrifavaldar“, því í henni er ekki
farið í tímaröð yfir feril hans, heldur litið
til þeirra áhrifa sem hafa mótað þá sýn
sem kemur fram í verkum hans. Áhrifa-
valdarnir eru margir og mismunandi, allt
frá æsku hans í drungalegu iðnaðarlands-
lagi upp í trúarlegar myndir og kynni
hans af landinu í norðri, Íslandi.
„Ég ákvað að halda sýninguna á Ís-
landi fyrst og fremst út af Brynju en hún
hefur hjálpað mér gríðarlega mikið við
undirbúning hennar. Að öðru leyti
fannst mér miklu meira spennandi að
halda sýninguna hérna en í Lundúnum.
Það ætti ekki að koma fólki á óvart því
ég hef alltaf starfað á jaðrinum og hef
alltaf átt erfitt með að gera málamiðlan-
ir. Það opnaðist líka fyrir mér alveg nýr
heimur þegar Brynja kom inn í líf mitt.
Hún á stóra fjölskyldu, sem var algerlega
nýtt fyrir mér þar sem ég er einbirni. Í
nútímanum hafa fjölskyldurnar í
Englandi minnkað og í dag þykja fjöl-
skyldur mjög stórar ef það eru þrjú börn
á heimilinu,“ segir Brian. Hann viður-
kennir að það hafi haft marga kosti að
vera einkabarn en gallarnir hafi líka ver-
ið til staðar. Hann hafi til dæmis oft ver-
ið einmana sem barn.
„Þar sem ég var mikið einn lærði ég
að horfa á hluti í öðru ljósi, sem þroskaði
ímyndunaraflið. Ég gat fylgst með hlut-
um tímunum saman og skemmt sjálfum
mér yfir þeim.“
Brian, sem oft hefur verið nefndur dökki
prinsinn í ljósmyndaheiminum, tók sér
hlé frá ljósmyndun um tíu ára skeið til að
starfa við kvikmyndagerð. Eftir að hann
sneri aftur segist hann hafa orðið miklu
ánægðari með myndirnar sínar. Hann
segir jafnframt að hann sé sérlega ánægð-
ur með þær myndir sem hann hefur tekið
undanfarið ár. Aðspurður um uppáhalds-
myndina segir hann erfitt að svara því
enda hafi hann tekið ógrynni af myndum
í gegnum tíðina. Eftir langa umhugsun
nefnir hann myndina af London Bridge.
„London Bridge er alltaf jafn vinsælt
myndefni og það er búið að mynda hana
milljón sinnum. Þrátt fyrir það er ég
mjög ánægður með mína útgáfu af
myndinni enda er hún mjög klassísk.“
„Ef þú ætlar að spyrja mig um pylsur þá
get ég sagt þér að mér finnst þær vond-
ar,“ segir hann og glottir út í annað og
bætir við: „Súkkulaðikaka er uppá-
haldsmaturinn minn þegar ég er á Ís-
landi og allt sem inniheldur íslenskt
súkkulaði.“ Blaðamaður bendir honum
á þá staðreynd að súkkulaði sé ekki
matur heldur flokkist sem sætindi.
„Íslenski maturinn minnir mig á það
fæði sem ég ólst upp við og því get ég
ekki sagt að hann sé mjög hátt skrifaður.
En það er kannski bara af því ég er orð-
inn svo spilltur. Mér finnst lambakjöt
æðislegt og ég fer oft á Jómfrúna til að fá
mér smurbrauð, á 101 til að fá mér ham-
borgara og á Austur Indía félagið. Ég fer
líka stundum á veitingastaðinn á Stokks-
eyri. Þar hef ég fengið humar og lamb
sem bragðast bæði stórvel.“
Ljósmyndabók til heiðurs langafa
Á yfirlitssýningu Brians verður eigin-
konan með innsetningu sem hún kallar
Umvafin náttúrunni. Í verkið notar hún
gull, gler, við og vatn. Hún vill ekki lýsa
því frekar heldur verður fólk að líta á
það með sínum eigin augum.
Ljósmyndabókin, Áhrifavaldar, mun
einnig líta dagsins ljós á morgun. Í henni
eru um 50 ljósmyndir eftir Brian en hún
er tileinkuð langafa Brynju, Erlingi Fil-
ippussyni, sem starfaði sem grasalæknir.
Hann var einnig ljóðskáld og eru fimm
ljóð eftir hann í bókinni. Ljósmyndabók-
in er ekki hefðbundin að neinu leyti því
hún er á stærð við sálmabók, hvít að lit
með gylltum stöfum og fjólublái liturinn
gefur henni hátíðlegan blæ.
Ísland innblástur
„Við Brian kynntumst upphaflega því
mig vantaði svo ljósmyndara til að
vinna með mér að þessu verki. Þegar
við hittumst fyrst grunaði mig ekki að
við myndum giftast,“ segir hún og
brosir út í annað. Hann er líka þakklát-
ur enda hefur Ísland fært honum nýja
sýn. „Ég fæ mikinn innblástur með því
að dvelja hérna. Ísland er heimili mitt
núna. Þó ég eyði meiri tíma í Lundún-
um þá er Ísland heimili mitt í hugan-
um,“ segir Brian. Sýningin hefur vakið
mikla athygli erlendis og við opnun
sýningarinnar koma hingað til lands
blaðamaður frá Tageszeitung í Berlín,
ritstjóri British Journal of Photo-
graphy, blaðamaður breska tímaritsins
Professional Photographer auk blaða-
manns frá Sunday Times Magazine,
sem verður með sex blaðsíðna umfjöl-
lun um Brian og sýningu hans í
febrúareintaki blaðsins. Þar að auki
kemur hingað fjöldi manns frá
Bretlandi sem tengjast Brian og Brynju
á einn eða annan hátt. Þess má geta að
sýningin hefði ekki orðið að veruleika
hefði hún ekki notið stuðnings frá
Baugi Group og Icelandair.
Skylda að
hata United
Einhverjir heitustu stuðningsmenn enskrar knattspyrnu hér á landi
munu vafalaust sitja límdir fyrir framan skjáinn á hádegi núna á
laugardaginn, en þá leiða tvö sigursælustu lið Englands, Liverpool
og Manchester United, saman hesta sína á Anfield Road í beinni
útsendingu Skjás eins. Formenn stuðningsmannaklúbbanna hér á
landi segjast þó þurfa að gæta sín, enda séu þeir skáskyldir.
Manchester United – Liverpool
Guðbjörn Þór Ævarsson, formaður Unitedklúbbsins, og Sigursteinn Brynjólfsson,
formaður Liverpoolklúbbsins.
F2 18 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Bankastræti 11
ÚTSALA
Guðbjörn Þór Ævarsson, formað-
ur United-klúbbsins, hefur haldið
með félaginu í mörg ár, og á
meðal annars ársmiða á Old
Trafford. Hann varð vitni að leikn-
um fræga í Barcelona 1999 þegar
United vann Bayern München í
frægum leik. Svo skemmtilega
vill til að Guðbjörn og fósturfað-
ir Sigursteins eru systkinabörn.
Eftirminnilegasti leikurinn milli
Liverpool og United? „Ég man ekki
alveg hvaða ár þetta var, en leikurinn
þar sem liðin skildu jöfn á Anfield Road
3-3 var ákaflega skemmtilegur.“
Hataðasti leikmaður Liverpool?
„Ég held að ég geti ekki tekið neinn
einn út, ætli manni sé ekki jafn illa eða
jafn vel við alla leikmennina þeirra.“
Af hverju United? „Þetta gerðist á
hálfgerðu mótþróaskeiði, það héldu
allir með Liverpool, svo ég fór bara að
halda með United.“
Af hverju þetta hatur? „Ég held að
þetta hatur sé nú bara á einn veginn, frá
Liverpool-mönnum. Leikurinn á laug-
ardaginn er bara einn leikur á langri
leið. Ætli þetta svíði ekki dálítið hjá
Púllurum, að það taki því ekki hjá
United að vera illa við þá. Rígurinn er
nú samt ekki meiri en svo að við höfum
tekið flugvél saman til þess að fara leiki.
Þetta skilja Englendingarnir ekki.“
Hvar er heimavöllur United á Ís-
landi? „Við höfum hist í Klúbbnum
uppi á Höfða, en þar hafa komist færri
að en vilja.“
Hverjir verða meistarar ef ekki
United? „Ég held að Chelsea eigi
ekki eftir að klára þetta, heldur verði
það Arsenal. Chelsea er að byggja allt
sitt spil í kringum fáa leikmenn.“
Sigursteinn Brynjólfsson, formað-
ur Liverpool-klúbbsins á Íslandi,
segir að þrátt fyrir að Everton sé
náttúrlega óvinur númer eitt
komi United þar skammt á eftir.
Hann segir að sakir náinna tengsla
verði þeir að halda sig á mottunni.
Eftirminnilegasti leikurinn? Það
er án nokkurs vafa leikur þessara liða
árið 2000 þegar ég var ásamt félögum
mínum í klúbbnum á Anfield og varð
vitni að 2-0 sigri Liverpool. Steven
Gerrard og Robbie Fowler skoruðu
þá mörkin og þetta var alveg ólýsan-
legt.“
Hataðasti leikmaðurinn í röðum
United? „Gary Neville, ekki nokkur
spurning, hann hefur líka verið dug-
legur með yfirlýsingarnar um hversu
mikið hann hatar Liverpool.“
Af hverju Liverpool? „Ég man nú
bara ekki eftir mér öðruvísi en að
halda með Liverpool, held að ég hafi
verið kominn í búninginn strax við
fjögurra ára aldurinn.“
Af hverju þetta hatur? „Liverpool
og Manchester eru nágrannaborgir
og úti í Englandi er þetta alveg rosa-
legur rígur. Hérna heima er þetta
kannski svolítið í nösunum á mönn-
um, þó að oft geti orðið heitt í kolun-
um. Samt hefur það nú verið skylda
hjá okkur Púllurum að hata United.“
Hvar er heimavöllur Liverpool á
Íslandi? „Við höfum undanfarin ár
hist á Players í Kópavogi, hlustað á
lagið okkar „You’ll Never Walk
Alone“ og stutt okkar lið. Þetta kemst
svona næst því að vera á Anfield.“
Hverjir verða enskir meistarar
ef ekki Liverpool? „Ég held að
Chelsea eigi eftir að taka þetta.“
Ljósmyndarinn Brian Griffin valdi Ísland til að halda sína fyrstu yfirlitssýningu:
Ísland færði mér nýja sýn
Brynja Sverrisdóttir og Brian
Griffin voru búin að þekkjast
örstutt þegar þau gengu upp
að altarinu. Á morgun opnar
hann yfirlitssýningu á verkum
sínum. Hún verður með inn-
setningu á sýningunni og sam-
an hafa þau búið til ljósmynda-
bókina Áhrifavaldar, sem er til-
einkuð langafa Brynju, Erlingi
Filippussyni grasalækni. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
Áhrifavaldar Brians Griffin
Sýningin er ekki línulegt yfirlit yfir verk
ljósmyndarans heldur litið til þeirra
áhrifa sem hafa mótað þá sýn sem
kemur fram í verkum hans.
H
AR
I