Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 22
22 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR HJÁLPARSTARF Uppbyggingarstarf af áður óþekktri stærðargráðu er framundan á hamfarasvæðunum við Indlandshaf. Ríkisstjórnir, alþjóðastofnanir og fjölþjóðleg hjálparsamtök leggjast nú á eitt við að hjálpa fórnarlömbunum en auk þess hafa smærri samtök og jafnvel einstaklingar látið til sín taka. Vilhjálmur Jónsson hefur verið búsettur í Indlandi um ára- tuga skeið og nú hefur hann ásamt hjálparsamtökum sem hann veitir forystu tekið að sér uppbygging- arstarf í litlu þorpi sem varð mjög illa úti þegar aldan reið yfir. Sálin marin „Þegar við komum niður á strönd- ina var ég alls ekki viðbúinn þeirri hrikalegu sjón sem við mér blasti. Máttur flóðsins hafði hreinlega sópað öllu burtu og skilið eftir hrúgur af braki og rusli eftir allri strandlengjunni. Bátarnir höfðu undist utan um tré eða farið í gegnum húsin og leifar af fiskinetum lágu á víð og dreif á margra mílna svæði. Það sem snerti mig mest var tilfinningin um að vonin væri horfin. Það er mjög erfitt að útskýra þetta en kannski er þetta eins og að vera laminn og barinn en það kemur ekki niður á líkamanum heldur sálinni. Hér og þar sátu íbúarnir eða fjölskyldur inni í miðri hrúgu af braki og rusli og störðu út í tómið.“ Svona lýsir Vilhjálmur Jónsson aðkomunni að þorpinu Thazhankuda sem er um 160 kíló- metra suður af borginni Chennai (Madras) í Indlandi. Hjálpar- starfið og uppbyggingin í þorpinu er nú í höndum Vilhjálms og félaga hans í líknarsamtökunum Fjölskyldan eða The Family International. Tíu barna faðir frá Akureyri Vilhjálmur er 51 árs gamall Akur- eyringur en hefur verið búsettur á þessum slóðum í 23 ár. Hann er giftur indverskri konu og saman eiga þau tíu börn. „Það var bara þráin að gera eitthvað fyrir aðra,“ svarar hann aðspurður um ástæð- ur þess að hann fór af landi brott fyrir tæpum þrjá- tíu árum. Family Inter- national eru al- þjóðleg regnhlíf- arsamtök sem starfa á kristileg- um grunni en víða um heim eru sjálfstæð svæðis- félög að störfum. „Við stofnuðum okkar félag hérna í Coimbatore og okkar aðalstarf er á vettvangi menntamála og sérstaklega á meðal heyrnarlausra,“ segir Vilhjálmur. „Þótt starfið sé kristi- legt þá erum við alls ekki trú- boðar í hefðbundnum skilningi þess orðs enda tilheyrum við ekki neinni sérstakri kirkjudeild.“ Íbúarnir í losti Coimbatore er um tvö hundruð kílómetra inni í landi en þegar Vilhjálmur og hans fólk frétti af jarðskjálftunum og flóðunum sem þeim fylgdu biðu þau ekki boðanna heldur þustu af stað. Fimm dögum síðar höfðu þau fengið leyfi yfirvalda til að taka að sér neyðaraðstoð og hjálpar- starf í þorpinu Thazhankuda í Cuddalore-sýslu í félagi við nokkra kaþólska presta. Í þorpinu búa 3.000 manns en þar stóð ekki steinn yfir steini þegar Vilhjálmur kom á vett- vang. Eyðileggingin var algjör og eftirlifandi íbúar voru í losti. „Þegar ég kom fyrst inn í þorpið vakti maður nokkur athygli mína sem sat starandi í sandinum. Í kjöltunni var hann með matar- pakka og smá brauðhleif sem hjálparstarfsmenn höfðu komið þar fyrir en það var greinilegt að það hafði ekkert að segja fyrir hann.“ Mikið verk framundan Fyrstu dagana einbeittu samtök Vilhjálms sér að dreifingu matar og annarra hjálpargagna til íbú- anna en nú sjá þau fyrir endann á neyðaraðstoðinni og eru farin að huga þess í stað að uppbyggingar- starfinu. „Aðalverkefnið núna er að útvega fólkinu báta og net því það getur auðvitað ekki sótt sjó- inn, það getur ekki stundað sína atvinnu án þess að hafa þessa hluti í höndunum,“ segir Vilhjálmur en mestallur útbúnaður þorpsbúa til sjósóknar eyðilagðist í flóðunum. „Maður nokkur sem við töluðum við hafði komið til að ná í lík móður sinnar og mágkonu. Þegar bylgjan skall á var hann að gæta að netum sínum, hann tókst á loft og barst þvert yfir skagann og endaði á ströndinni hinum megin við fjörðinn.“ Samtökin láta ekki þar við sitja heldur áforma þau að reisa þak yfir hundrað fjölskyldur og setja upp jarðbora til að dæla upp hreinu vatni en vatnsból svæðis- ins spilltust í flóðunum. Allt kost- ar þetta peninga og því vinnur Vilhjálmur að því að afla fjár til þessara brýnu verkefna. Hann segir framlög frá Íslendingum mjög vel þegin en hægt er að leggja peninga á reikning sam- takanna í Íslandsbanka, Kirkju- sandi. Númerið er 515-26-3470 og kennitalan 630300-3470. sveinng@frettabladid.is Íbúarnir sátu og störðu út í tómið Vilhjálmur Jónsson frá Akureyri hefur ásamt félögum sínum tekið að sér uppbyggingarstarf í litlu þorpi á austurströnd Indlands. Mikið verk er framundan enda er eyðileggingin þar algjör. THAZHANKUDA RÚSTIR EINAR Íbúarnir sitja niðurlútir með hendur í skauti enda stendur ekki steinn yfir steini í þorpinu þeirra. Reisa þarf ný hús fyrir rúmlega eitt hundrað fjölskyldur en auk þess þarf að bora eftir hreinu vatni því vatnsból spilltust í flóðunum. GJÖRÓNÝTUR BÁTUR „Maðurinn tókst á loft og barst þvert yfir skagann og endaði á ströndinni.“ ALDAN BRAUT ALLT SEM FYRIR VARÐ Í það minnsta hundrað fjölskyldur þurfa ný húsakynni. BÁTAR BÁRUST HUNDRUÐ METRA INN Í LANDIÐ. Vilhjálmur Jónsson sést hér í hópi samstarfsmanna sinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.