Fréttablaðið - 13.01.2005, Blaðsíða 61
29FIMMTUDAGUR 13. janúar 2004
Líkur eru á því að dollarinn
haldi áfram að veikjast eftir
að kom í ljós að viðskiptahalli
Bandaríkjanna var mun
meiri en búist hafði verið við.
Viðskiptahalli Bandaríkjanna sló
met í nóvember og var 60,3 millj-
arðar dollara eða 3.800 milljarðar
króna. Tíðindin komu á óvart, en
búist var við því að hallinn myndi
minnka frá fyrra mánuði og
verða 54 milljarðar dollara.
Fréttirnar felldu gengi dollar-
ans, en mörgum kom á óvart að
útflutningur Bandaríkjamanna
minnkaði milli mánaða, þrátt
fyrir veikingu dollarans og aukna
samkeppnishæfni bandarískra
útflutningsfyrirtækja. Útflutn-
ingur Bandaríkjanna dróst sam-
an um 2,3 prósent.
Innflutningur jókst á móti um
1,3 prósent og olíuinnflutningur
og innflutningur almennra
neysluvara helsta ástæða aukins
innflutnings. Búist hafði verið
við því að lækkandi olíuverð
myndi draga úr viðskiptahallan-
um
Viðbrögð við fréttunum eru
mismunandi. Stjórnvöld í Banda-
ríkjunum leggja áherslu á að
vöxtur efnahagslífsins sé meiri
en í helstu viðskiptalöndum og
muni það vinna á móti hallanum
til lengdar. Fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, John Snow, segir
hallann bera vott um sterkt efna-
hagslíf og vaxandi eftirspurn í
hagkerfinu. Hann boðar óbreytt-
ar áherslur í stjórn efnahagsmála
og sagði Evrópu og Japan þurfa
að örva efnahagslífið heimafyrir.
Hagfræðingar hafa efasemdir
um að Bandaríkjamenn geti til
langframa fjármagnað svo mik-
inn halla með meiri hagvexti en í
helstu viðskiptalöndum. Flest
bendi því til þess að dollarinn
muni veikjast enn frekar að
óbreyttu. Markaðurinn virðist á
sama máli og tekur ekki undir
með ráðamönnum í Washington.
Gengi dollarans féll um 0,78
prósent á fimm mínútum eftir að
tölur um viðskiptajöfnuð Banda-
ríkjanna birtust.
Viðskiptahalli Bandaríkjanna
fyrstu ellefu mánuði ársins er
kominn yfir 35 þúsund milljarða
króna og er þegar orðinn mun
meiri en metárið 2003 þegar hann
var 31 þúsund milljarðar króna.
haflidi@frettabladid.is
LEIGJA TIL LITHÁEN Flugleiðir hafa
ásamt Gunnari Björgvinssyni og fleiri fjár-
festum stofnað flugvélaleigu sem keypt
hefur þrjár vélar og leigt til Litháen.
Ný flugvéla-
leiga Flugleiða
Flugleiðir hafa haslað sér völl á
nýju sviði flugvélaleigu með
stofnun fyrirtækis í samvinnu
við Gunnar Björgvinsson og
fleiri í Lichtenstein. Fyrirtækið
hefur keypt þrjár notaðar
Boeing 737-500 flugvélar af írska
flugfélaginu Aer Lingus og leigir
þær til litháíska flugfélagsins
Air Baltic Latwia sem er í eigu
SAS og litháíska ríkisins, til
fimm ára. Flugvélakaupin voru
fjármögnuð af Íslandsbanka.
Flugleiðir eiga 49 prósent hluta-
fjár.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða segir að á undanförn-
um árum hafi Flugleiðir byggt
upp umtalsverða þekkingu á
flugvélaviðskiptum og félagið
hafi talið mikilvægt að nýta
þessa þekkingu til að byggja upp
nýja starfsemi innan Flugleiða-
samstæðunnar. „Félagið hefur
öðlast nauðsynlega reynslu og
þekkingu við kaup, fjármögnun
og endurfjármögnun á annan tug
flugvéla sem það hefur notað
í rekstri dótturfélaga sinna.“
Sigurður segir arðsemi verkefn-
isins mjög viðunandi.
- hh
Óvæntur halli fellir dollarann
HVERT STEFNIR DOLLARINN Stjórnvöld í Bandaríkjunum og sérfræðingar á markaði
eru ósammála um stöðu dollarans. Stjórnvöld veðja á að hagvöxtur muni vinna upp á
móti viðskiptahallanum, en hagfræðingar telja líkur á því að dollarinn muni veikjast enn
frekar vegna viðskiptahallans.
M
YN
D
A
P
Hive eykur
þjónustuna
Netþjónusta Hive býður áskrif-
endum sínum upp á að horfa á
sjónvarpsstöðina PoppTíví í
gegnum netið í mun betri gæðum
heldur en áður hefur þekkst í
netútsendingu.
Hive býður upp á margfaldan
gagnaflutningshraða á við aðrar
netveitur auk þess sem notendur
þurfa ekki að greiða aukalega
fyrir niðurhal gagna frá útlönd-
um.
Fyrirtækið hyggst bjóða við-
skiptavinum sínum mun fleiri
sjónvarpsstöðvar auk kvik-
mynda.
- þk