Fréttablaðið - 13.01.2005, Page 10
10 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
FYRIR RÉTTI EFTIR 41 ÁR
Edgar Ray Killen, liðsmaður Klu Klux Klan,
er nú fyrir rétti, sakaður um að hafa myrt
þrjá menn í Mississippi árið 1964 sem
unnu að jafnrétti svartra og hvítra í suður-
ríkjum Bandaríkjanna.
Breytingar á mótum Suðurlands- og Þrengslavegar:
Gatnamótin
færast til norðurs
SAMGÖNGUR Gatnamót Suðurlands-
vegar og Þrengslavegar færast til
um 1,5 kílómetra til norðurs þegar
byggð verða ný mislæg gatnamót.
Þá verður lagður nýr vegkafli í
tengslum við breytinguna, sem
verður um þriggja kílómetra langur.
„Suðurlandsvegurinn færist tals-
vert til við þetta,“ segir Svanur G.
Bjarnason, svæðisstjóri Vegagerð-
arinnar á Suðurlandi. Hann segir til
standa að opna útboð vegna gatna-
mótanna og vegarins 1. febrúar
næstkomandi, en verklok eigi svo
að vera í október á þessu ári.
Í útboðsgögnum er hins vegar
fyrirvari vegna þess að ekki liggur
fyrir álit Skipulagsstofnunar á því
hvort mislægu gatnamótin séu
matsskyld, en verði sú raunin geta
framkvæmdir tafist um marga mán-
uði. „Við eigum nú síður von á því að
þetta þurfi að fara í umhverfismat,
því við vorum búin að fá svar varð-
andi veginn sjálfan að þess þyrfti
ekki, þannig að nú snýr fyrirspurnin
bara að mislægu gatnamótunum.“
- óká
Banaslysið við Kárahnjúka:
Ríkissaksóknari
óskar frekari gagna
LÖGREGLURANNSÓKN Að ósk ríkis-
saksóknara er sýslumannsemb-
ættið á Seyðisfirði að afla viðbót-
argagna vegna banaslyssins á
virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka
aðfaranótt 15. mars í fyrra. Að
þeim gögnum fengnum mun ríkis-
saksóknari taka ákvörðun um
hvort ákært verður í málinu.
Sýslumannsembættið á Seyðis-
firði fer með rannsókn málsins og
sendi embættið ríkissaksóknara
rannsóknargögn 5. október síðast-
liðinn. „Í þeim gögnum bentum
við á að ákveðnir þættir hefðu
ekki verið rannsakaðir. Hefur rík-
issaksóknari nú óskað eftir að við
öflum frekari gagna en hvenær
þeirri vinnu lýkur get ég ekki sagt
til um,“ sagði Helgi Jensson, full-
trúi sýslumannsins á Seyðisfirði.
Hálfþrítugur Íslendingur lést í
slysinu þegar hann varð fyrir
grjóti sem féll úr Fremri-Kára-
hnjúk. Vinna á slysstað var bönn-
uð um tíma eftir slysið og í kjöl-
farið var öryggi starfsmanna
aukið.
Viku fyrir banaslysið höfðu
eftirlitsaðilar Landsvirkjunar
sent Impregilo og undirverktök-
um skriflegar athugasemdir þar
sem varað var við hættu á grjót-
hruni á vinnusvæðinu. - kk
Sameining sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu:
Héðinsfjarðargöng
forsenda sameiningar
SAMEININGARKOSTIR Bæjarstjórn
Ólafsfjarðar hefur ákveðið að
leggja til að kosið verði um sam-
einingu allra sveitarfélaganna tíu
í og við Eyjafjörð í sameiningar-
kosningunum 23. apríl næst kom-
andi.
Í umsögn bæjarstjórnar Ólafs-
fjarðar til nefndar um sameiningu
sveitarfélaga segir meðal annars:
„Bæjarstjórn Ólafsfjarðar er
sammála því sem komið hefur
fram í bókunum og skilyrðum
sem bæjarráð Akureyrarbæjar,
Siglufjarðarkaupstaðar og Dal-
víkurbyggðar hafa sett fram þess
efnis, að af sameiningu sveitarfé-
laga við Eyjafjörð geti ekki orðið
nema að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar leggur þunga áherslu á
samgöngubætur og þá sérstak-
lega staðfestingu á framkvæmd
við gerð Héðinsfjarðarganga. Þá
verður að liggja fyrir samkomu-
lag milli ríkis og Sambands
íslenskra sveitarfélaga um verk-
efnatilfærslu og tekjustofna sem
og trygging fyrir því að ekki komi
til skerðingar á tekjum úr jöfnun-
arsjóði. Bæjarstjórn Ólafsfjarðar
fagnar sérstaklega bókun bæjar-
ráðs Dalvíkurbyggðar þar sem
fram kemur krafan um stofnun
framhaldsskóla við utanverðan
Eyjafjörð og tekur heilshugar
undir þá kröfu.“
- kk
Ferðaþjónusta fatlaðra hjá Reykjavíkurborg:
Umdeildar reglur
ekki komnar í gildi
HEILBRIGÐISMÁL Umdeildar breyt-
ingar á reglum ferðaþjónustu fatl-
aðra aldraða taka ekki gildi
fyrr en settar verða reglur um
akstursþjónustu
aldraðra, að
sögn Bjarkar
Vilhelmsdóttur
borgarfulltrúa.
Hún segir að
staðan sé því
óbreytt frá því
sem var fyrir
áramót, þar sem
s í ð a r n e f n d u
reglurnar öðlist
ekki gildi fyrr en
í næsta mánuði.
Umræða reis þegar þremur
einstaklingum í endurhæfingu á
Grensási var á nýju ári synjað um
ferðaþjónustu fatlaðra á vegum
borgarinnar þar sem þeir væru
orðnir 67 ára. Var þetta sagt byggt
á reglum sem tekið hefðu gildi um
áramót. Einstaklingarnir þrír sem
sóttu endurhæfingu á göngudeild
kváðust vera í miklum vanda, þar
sem þeir hefðu treyst á ferða-
þjónustuna. Guðrún Karlsdóttir,
læknir á Grensási, taldi þetta á
skjön við þá þróun sem unnið
væri að, það er að efla göngu-
deildarþjónustu á Landspítala há-
skólasjúkrahúsi.
„Þessar reglur hafa enn ekki
hlotið staðfestingu borgarráðs og
eru því ekki komnar í gildi,“ sagði
Björk, sem kvaðst ekki geta tjáð
sig um höfnunarmál einstakling-
anna þriggja þar sem hún þekkti
ekki nægilega vel til þeirra. - jss
Góðkunningi lögreglu:
Stal fjórum
fartölvum
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í versl-
unina Office 1 við Glerárgötu á Ak-
ureyri um klukkan hálf þrjú í fyrr-
inótt. Rúða var
brotin í
verlsuninni og
fjórum fartölvum
hafði verið stolið
að verðmæti 700
til 800 þúsund
króna.
Lögreglan veitti karlmanni at-
hygli sem var á hlaupum við versl-
unina. Manninum var veitt eftirför
og hann handtekinn á gistiheimili
stutt frá. Tölvunum henti hann frá
sér á hlaupunum.
Maðurinn hefur oft komið við
sögu lögreglunnar. Hann var færð-
ur í fangageymslur og þykir málið
vera upplýst. - gag
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
• Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír og plast,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
• Allt að 62mm breidd
• 50 miðar á mínútu*
• USB tenging
• Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
*Staðlaðir póstfangamiðar
Fljótvirkasti miðaprentarinn
Umboðsaðili:
QL-550
NÝTT !
Kynningarverð 12.999 kr. Augl. Þórhildar 1390.40
NÝJU GATNAMÓTIN OG ÞAU GÖMLU
Ný mislæg gatnamót inn á Þrengslaveg verða um 1,5 kílómetrum norðar en gömlu gatna-
mótin, en í tengslum við þau verður lagður um þriggja kílómetra langur nýr vegspotti á
Suðurlandsvegi.
BJÖRK VIL-
HELMSDÓTTIR
Beðið verður eftir
gildistöku reglna
um ferðaþjónustu
aldraðra.
VIÐ KÁRAHNJÚKA
Fulltrúi sýslumanns á Seyðisfirði segir að ákveðnir þættir hafi ekki verið rannsakaðir þegar
banaslys varð á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka í mars.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TÍ
N
B
O
G
AD
Ó
TT
IR
Su
ðu
rl
an
ds
ve
gu
r
Ný gatnamót
Nýr veg
kafli
Þrengslavegur
Gömlu gatnamótin