Fréttablaðið - 13.01.2005, Qupperneq 25
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 7
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 146 stk.
Keypt & selt 21 stk.
Þjónusta 35 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 4 stk.
Heimilið 18 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 21 stk.
Atvinna 30 stk.
Tilkynningar 6 stk.
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagurinn 13. jan.,
13. dagur ársins 2005.
Reykjavík 10.59 13.37 16.15
Akureyri 11.05 13.21 15.38
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Margeir Ingólfsson, eða plötusnúður-
inn DJ Margeir eins og margir þekkja
hann, er í örlitlum vandræðum þegar
hann þarf að minnast á uppáhalds-
flíkina í fataskápnum.
„Ég get ekki sagt að ég tengist flíkunum í
fataskápnum mínum tryggðaböndum. Í
augnablikinu eru það þó kannski tveir hlut-
ir sem ég held svolítið upp á. Það eru annars
vegar brúnir leður Nike körfuboltaskór sem
eru annað hvort endurgerð af gamalli týpu
frá sama framleiðanda eða þá að ég hef ver-
ið plataður til þess að kaupa gamlar birgðir.
En hvað um það, þeir hrinda ótrúlega vel frá
sér öllum vökva og henta því prýðisvel í
slabbið hér í borg. Einnig eru þeir gæddir
svokölluðu „Nike Air“ kerfi sem byggist, að
ég held, á því að loftpúðum er komið fyrir í
sólanum sem á að veita aukna ánægju þegar
þrammað er um göturnar,“ segir Margeir en
skórnir rifja upp gamlar minningar. „Þeir
minna mig einhverra hluta vegna á ákveðið
tímabil í lífi mínu – þegar ég var ungur og
reiður hipphoppari í Breiðholtinu. Þá þótti
þetta nokkuð fínt – en í mjög litlum hópum
reyndar. Flestum öðrum þótti þetta ekki
vera merkilegur skófatnaður.“
„Svo er það tölvustýrða Casio-úrið mitt
sem er mörgum fínum eiginleikum gætt.
Það er úr ryðfríu stáli og þolir neðansjáv-
arköfun, allt að eitt hundrað metra, ásamt
því að vera með innbyggðum vekjara og
skeiðklukku, sem getur einnig talið niður.
Síðast en ekki síst er hægt að ýta einum af
hnöppunum inn til að lýsa úrið upp – sem
er mjög hentugt, til dæmis þegar þú vilt
vita hvað klukkan er í myrkri,“ segir Mar-
geir að lokum. ■
Hipphoppskór og úr
sem lýsir í myrkri
ferdir@frettabladid.is
Tæplega 1,6 milljónir farþega fóru
um Keflavíkurflugvöll á síðasta ári
eins og kemur fram á vefsíðunni
visit.is. Er þetta ríflega tuttugu pró-
senta fjölgun á milli ára. Farþegar
á leið frá landinu voru 672.196 en
voru 572.760 árið 2003, sem sam-
svarar 16,2 prósenta fjölgun. Far-
þegum á leið til landins fjölgaði
meira, úr 583.832 í 692.505 sem
samsvarar 18,6 prósenta fjölgun.
Skiptifarþegum fjölgaði um 26
prósent en í desember
fjölgaði einnig farþeg-
um sem fóru um Kefla-
víkurflugvöll um 12,39 pró-
sent, úr 77.450 í 87.044.
ÍT-ferðir bjóða upp á tilboðs-
ferðir á heimaleiki Chelsea í
enska boltanum þar sem
Eiður Smári spilar stórt
hlutverk. Hægt er að
gista í eina nótt og fá
miða á leik á
21.900 krónur eða gista í tvær
næstur og miða á leik á 27.500.
Einnig er hægt að fá Chelsea-pakka
á 52.500 krónur. Innifalið í honum
er flug, skattar, gisting á góðu hót-
eli í tvær nætur og miði á leik. Þá er
hægt að velja um þrjú mismunandi
hótel: Victoria Park Plaza, Novotel
London Euston og Holiday Inn
London-Regents Park. Tilboðið
gildir ekki á leik gegn Arsenal en
miðaverð miðast við tvo í herbergi.
Heimsferðir munu bjóða upp á
gönguferðir á nýjar og spennandi
slóðir á Ítalíu og Austurríki í
sumar en slíkar ferðir verða
sífellt vinsælli. Ferðirnar eru léttar
til miðlungs erfiðar og henta
flestum sem eru í þokkalegu
formi. Um er að
ræða fjórar sex til
sjö daga ferðir og
fjöldi farþega í hverri ferð er tólf til
tuttugu manns.
Margeir segist ekki bindast flíkum sínum tryggðaböndum en þó á hann
Nike-skó og Casio-úr sem eru í miklu uppáhaldi.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í ferðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA TÍSKA TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég svindlaði
eiginlega ekkert.
Mér gengur bara
betur þegar
ég vinn!
Ósviknir dýrgripir
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M