Fréttablaðið - 13.01.2005, Side 26

Fréttablaðið - 13.01.2005, Side 26
[ LISTASMIÐJAN KERMIK OG GLERGALLERÝ Kothúsum, Garði , s: 422-7935 Opið alla daga: Mánudaga- föstudaga 10-18 Laugardaga og sunnudaga 13-18 Námskeið að hefjast í glerbræðslu og keramikmálun. Einnig fyrir hópa Kringlunni - sími : 533 1322 Pottar og pönnur 20% afsláttur Vandaðar heimilis og gjafavörur Mikið úrval af viðarörnum og eldstæðum Arinbúðin Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið) Sími 567 2133 · www.arinn.is Hvernig líður þér á heimili þínu? Litavalið skiptir máli. Litavalið ræður sennilega mestu um það hvernig andrúmsloftið er í hverju herbergi í húsinu. Best er að nota hlýja og róandi liti í herbergjum þar sem fólk á að dvelja eins og í stof- unni, borðstofunni og fjölskylduher- berginu. Ef fjölskyldan á að komast í gang á morgnana er sniðugt að hafa bjarta pastelliti í eldhúsinu. Svefnher- bergi er svo best að hafa í daufum og hlutlausum lit svo að fólk nái þeirri slökun þar sem æskileg er. Það er líka hægt að notast við mismun- andi yfirbreiðslur og púða til að skapa öðruvísi andrúmsloft, einkum þegar von er á gestum eða eitthvað sérstakt stendur til. Þó er vert að hafa það í huga hvernig húsið er í laginu svo fólk upplifi ekki óþægilega mörg geðbrigði milli herbergja. Sterkir litir geta hjálpað fjölskyldunni í gang á morgnana „Ég er oft spurð að því hvort það kvikni ekki auðveldlega í blómun- um,“ segir Hélene og hlær en vill meina að það sé enginn eldhætta á ferð, að minnsta kosti ekki meiri en á seríum með pappa og plasti utan um ljósin. Fallegu seríurnar hennar sáust fyrst á jólasýningu Handverks og hönnunar en nú eru þær einnig til sölu í Iðu húsinu og í Jólahúsinu á Skólavörðustíg og kosta 3.500 krónur. „Það eru um tvö ár síðan ég bjó til þessar seríur og þær hafa bara hangið í glugganum hjá mér þang- að til ég kom þeim loksins í sölu,“ segir Hélene og tekur fram að hún láti þær hanga allt árið og þær séu ekkert sérstaklega hugsaðar fyrir jólin. „Ég bjó í risi og fólk spurði mig oft hvaða sérstöku blóm ég væri með í glugganum, en þetta leit út fyrir að vera einhverskonar blómstrandi klifurjurt,“ segir Hélene sem segist þó aldrei kveik- ja á seríunni á sumrin því þá sé að sjálfsögðu of bjart. Hélene þæfir aðeins íslenska ull en hún er sérstaklega hrifin af henni. „Íslenska ullin er svo lif- andi og hefur svo fallegan glans í sér sem næst ekki fram þegar er- lend ull er þæfð,“ segir Hélene sem stefnir á að vinna enn frekar með þæfðu ullina en síðasta verk hennar var úlpa á dóttur hennar. „Hún er búin að vera í henni í all- an vetur og henni er aldrei kalt,“ segir Hélene. kristineva@frettabladid.is Nýr heimur í gluggatjöldum Nútíma gluggatjöld á Suðurlandsbraut 8 í Reykjavík býður upp á gríðarlegt úrval gluggatjalda sem sum hafa ekki sést áður. „Gluggatjöldin okkar koma frá hollenska fyrirtækinu Hunter Douglas sem er gríðarstórt fyrir- tæki. Það má segja að það sé eigin- lega eini risinn í gluggatjalda- bransanum. Þeir framleiða Luxa- flex-gluggatjöld sem við seljum. Þetta er afskaplega vönduð vara og mikið úrval, hvort sem um ræð- ir efni eða lit,“ segir Ólafur Kr. Sigurðsson, eigandi Nútíma gluggatjalda og Nútíma húsgagna. Og ekki vantar úrvalið í Nú- tíma. „Við erum með rúllugard- ínur, rimlagardínur úr áli, strim- lagardínur, felligardínur og svokölluð screen-gluggatjöld. Þetta er nýr heimur í glugga- tjöldum því sjaldan hefur sést eins mikið úrval í útfærslum, lit- um og efni og þvílík gæði. Upp- setningin er líka aðgengileg og afskaplega góð.“ Nútíma hefur selt glugga- tjöld í um tvo til þrjá mánuði og hefur verslunin fengið gríðar- lega góðar viðtökur. „Ég hef ver- ið í verslunarbransanum ansi lengi og hef aldrei haft eins ánægða viðskiptavini. Við selj- um líka skrifstofuhúsgögn í Nú- tíma húsgögn í sama húsnæði og sú vara er líka skemmtileg og vönduð og fólk hefur tekið henni afskaplega vel,“ segir Ólafur að lokum. ■ Hélene Magnússon hefur búið til fallegar ljósaseríur með blómum úr þæfðri ull. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Borðdúkar Veldu borðdúk sem auðvelt er að þrífa eða setja í hreinsun, þá þarf enginn að fara á taugum þó það fari á hann sósuslettur eða smá rauðvín og kaffi. Dúkar með miklu mynstri geta einnig verið hentugir því ef blettirnir nást ekki alveg úr, þá falla þeir jafnvel bara inn í mynstrið. Elísabet Ásgeirsdóttir er starfsmaður í versluninni Nútíma gluggatjöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Nothæfar allt árið Fallegar ljósaseríur Hélene Magnússon hafa vakið athygli en utan um perurnar eru túlípanablóm úr þæfðri ull. ]

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.