Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.01.2005, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 13.01.2005, Qupperneq 34
F2 4 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Þeir sem keyra í gegnum miðbæ Hafnarfjarðar komast ekki hjá því að sjá stóran og ljótan steypuklump sem stendur við norðurbakka Hafnarfjarð- arhafnar. Það sem hins vegar færri vita er að í þessu húsi hefur verið ein aðallífæðin í menningarlífi Hafnar- fjarðar undanfarin ár, og áður var þar til húsa Bæjarútgerðin, einn helsti máttarstólpi hafnfirsks atvinnulífs. Nú hefur húsið loks sungið sinn svanasöng og verður byrjað að rífa innanstokksmuni úr því eftir helgi. Af því tilefni verða margvíslegar uppá- komur á næstu dögum sem tengjast húsinu og svæðinu í kringum það. „Margir Hafnfirðingar bera sterk- ar taugar til þessarar byggingar, enda rúmaði það í tæp fimmtíu ár Bæjarút- gerðina í Hafnarfirði,“ segir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og bendir í létt- um dúr á að hér áður fyrr hafi varla verið til sá maður í Hafnarfirði sem ekki hafi að minnsta kosti unnið eitt ár í Bæjarútgerðinni. „Maður var ekki Hafnfirðingur nema hafa fæðst á Sól- vangi og unnið í Bæjarútgerðinni.“ Lúðvík segir að húsnæðið hafi verið notað undir allt sem íbúum bæj- arins datt í hug eftir að eiginleg útgerð og fiskvinnsla lagðist af í húsinu. Það mun því hver og einn kveðja það með sínu nefi. „Þarna voru meðal annars hafnarskrifstofur bæjarins, golfklúbb- urinn Keilir var með aðstöðu í gömlu kaffistofunni og æfingahúsnæði fyrir ungar hljómsveitir var í gamla frysti- klefanum.“ Þá var leikhópurinn Her- móður og Háðvör með leikhúsið sitt í húsinu á frá árinu 1995 til ársins 2004 og setti þar upp margar af sínum vin- sælustu sýningum, meðal annars Himnaríki og Birting. Þess má svo til gamans geta að svæðið mun ekki glata mikilvægi sínu, enda mun þarna rísa nýtt og glæsilegt íbúðarhverfi með útsýni yfir höfnina. Á laugardaginn munu þeir lista- menn sem hafa haft aðstöðu í húsi Bæjarútgerðarinnar undanfarin ár halda því kveðjuhátíð. Þeir sem koma fram eru meðal annarra Kristbergur Pétursson listmálari, Valur Grettisson ljóðskáld, sem nýverið gaf út sína fyrstu ljóðabók, og þá troða upp nokkrar af þeim hljómsveitum sem hafa haft aðstöðu í húsinu. Meðal annarra má nefna hafnfirsku rokk- hljómsveitirnar Úlpu og Botnleðju. Hvernig halda þau sér í formi? Göngutúrar vinsælastir Guðrún Ögmundsdóttir þingkona Hvernig er þínum leikfimismálum háttað? „Ég hef aldrei verið hefð- bundin líkamsrækt- artýpa. Ég dríf mig yfirleitt í eitt- hvað þegar veturinn fer að létta. Mín líkamsrækt er að labba eins mikið og ég get. Ég tek til dæmis aldrei lyftu eða neitt svoleiðis. Mér finnst gaman að labba og svo er það góð hugleiðsluaðferð. Á næstunni er ég að hugsa um að skella mér í eitt- hvað skemmtilegt í Kramhúsinu. Ég vil helst vera þar og hef verið í öllu mögulegu á þeim stað eins og jóga og afródönsum. Nú langar mig mest í Tai Chi sem er kínversk jafnvægis- leikfimi. Ég þarf bara að athuga hvort tíminn henti mér.“ Þórunn Lárusdóttir leikkona Hvernig er þínum leikfimismálum háttað? „Ég fer alltaf í átak eftir jól- in eins og alþjóð. Þessa dagana er ég að æfa fyrir leikritið Klaufar og kóngsdætur og það er mín leikfimi núna enda er leikritið mjög líkamlegt. Annars fer ég mik- ið í göngutúra upp í Heiðmörk eða við Ægisíðu þegar ég hef tíma. Stundum tek ég Krumma hundinn minn með eða labba með vinum mínum, en oft fer ég bara ein.“ Ferðu í líkamsræktarstöðvar? „Já, ég geri það stundum. Mér finnst skipta máli að hreyfingin sé sem fjöl- breyttust svo ég verði ekki leið. Yfir- leitt kaupi ég mér einn og einn mánuð í líkamsræktarstöðvum og svo er ég dugleg við að sækja laugarnar.“ Egill Sæbjörnsson listamaður Hvernig er þínum líkamsræktarmál- um háttað? „Ég fer stundum út að skokka, eða eiginlega frekar sjaldan, og svo geri ég jógaæfingar. Ég hef lært jóga í gegnum árin og geri æfingar upp úr blöðum heima fyrir. Mér finnst það alveg rosalega gott.“ Hefur þú komið inn í líkamsrækt- arstöð? „Já, ég æfði töluvert í líkams- ræktarstöðvum á árunum 1997 til 1998, en ég hef ekkert farið eftir það. Ég gafst upp á því og flutti til útlanda og þá breyttist lífsrytminn. Svo fer ég mikið í sund. Mér finnst allar sund- laugar skemmtilegar í Reykjavík nema Sundhöll Reykjavíkur, mér finnst hún ekki góð.“ Bæjarútgerðin í Hafnarfirði kvödd: Fiskvinnsla, leikhús og rokksetur Bæjarútgerðin í Hafnarfirði „Margir Hafnfirðingar bera sterkar taugar til þessarar byggingar.“ Frá borginni minni Mílanó Áki Harðarson stundar mastersnám í viðskiptafræði og hefur dvalið í Mílanó síðustu misserin. „Mílanóbúar fara mikið á barinn eftir vinnu og það eru allir staðir fullir milli sjö og níu á kvöldin. Flest- ir fá sér drykk og eitthvað snarl með. Það er líka hægt að fá sér fulla máltíð en þegar maður er náms- maður lætur maður snarlið oft duga,“ segir Áki. Það koma þrír staðir upp í huga hans þegar hann er beðinn um að nefna bestu barina í Mílanó. „NOBU bar er hipp og kúl enda í eigu Armani. Það er til sams konar staður í Lundúnum. NOBU bar er til húsa í Armani-byggingunni í Mílanó og hann er oft sjálfur að tjilla á barnum. Það er mjög góður matur þarna. Hann er ítalskur með austur- lensku tvisti og svo er mikið úrval af góðum drykkjum. Í sumar var Bar Milano opnað- ur og er það einn flottasti staður sem ég hef komið á. Hann er risa- stór og inn- réttaður eins og húsgagna- verslun. Það er hringlóttur bar á miðjum staðnum og húsgögnunum er raðað upp þannig að staðurinn er eins og margar litlar stofur. Öll húsgögnin eru eftir frægustu og flottustu hönnuðina. Staðurinn Il Gattopardo café er einnig mjög glæsilegur. Hann er til húsa í gamalli kirkju sem búið er að breyta í bar. Þarna er hægt að fara eftir vinnu og fá sér drykk og snarl og svo breytist hann í klúbb þegar líða fer á kvöldið. Þetta er mjög trendí staður.“ Tíska, hönnun og skemmtun Þórunn Ernaer þessadagana önn- um kafin við leik í s ö n g l e i k n u m Óliver Twist á Akureyri. Einnig leikur hún í leikritinu Þetta er allt að koma í Þjóð- leikhúsinu en fáar sýningar eru eftir af því frábæra stykki. Gæludýrin mín Eru mér bráðnauð- synleg. Við fjöl- skyldan eigum tvo hesta og tvo hunda. Það er fátt gleðilegra en að láta hund eða hest taka á móti sér. Það er svo yndislegt að finna þessa skilyrðislausu ást. Bíll Á þessu landi er erfitt að vera bíllaus. Ég finn mikið fyrir þessu þegar ég er að vinna á Akureyri og er bíllaus, þá finnst mér það rosalega erfitt. Mér er eiginlega alveg sama hvaða bíll það væri, bara einhver bíll. Tannbursti og tannkrem Ég ákvað að setja mig í spor Survivor-keppenda og at- huga hvað það væri sem ég myndi síst vilja missa ef ég væri í þeirra sporum. Hreinlætisvörur eru nokkuð sem mér þætti erfitt að missa. Gunnar Hans-son má sjá ásviðinu í Hí- býlum vindanna, Línu Langsokki og Héra Hérasyni. „Svo er það eitt og annað sem ég er að gera þessa dagana og bráð- lega taka við æfingar fyrir nýja leiksýn- ingu,“ segir hann. Fyrst og fremst er það fartölvan mín sem er ómissandi. Í henni er ég með allt mitt plan, alla mína tónlist og fullt af ljós- myndum. Ég vinn líka vinnuna mína að miklu leyti í tölvunni og í henni kemst ég í samband við um- heiminn. Ég vil líka taka það fram að ég á PowerBook-tölvu en ekki eitthvað PC drasl. Golfsettið er sá hlutur sem ég myndi aldrei selja. Golf er alveg sjúklegt sport. Ég hef stundað golfið síð- an ég var níu ára gamall og þá var það hún amma mín sem fór með mig í golf. Hún spilar ennþá í dag, áttræð og blæs ekki úr nös! Sá sem sér um að koma mér og mín- um á milli staða á ör- uggan hátt er bíllinn minn. Hann er mjög góður bíll og þjónar sínu hlutverki gríðarlega vel. Hann er rúmgóður og heldur vel utan um fjölskylduna. Ég vildi samt stundum óska að hann hefði helmingi meiri kraft. En annars er hann mjög fínn. Gæludýr og golfsett Leikararnir Þórunn Erna Clausen og Gunnar Hans- son völdu þrjá hluti sem þau geta ekki verið án. Ilmandi vetrardrykkur Ragnheiður Gísladóttir kaffibarþjónn á Kaffitári fékk verð- laun fyrir drykkinn Gust á Íslandsmeistaramóti kaffibarþjóna 2004. Hugmyndin var að búa til hlýjan og þéttan vetrardrykk sem hentaði bæði til sjávar og sveita og myndi ylja hverju mannsbarni í vetrarkulda. Drykkurinn smakkast ógurlega vel og yljar svo sannarlega. Í honum er 1 stykki lítið 70 prósent súkkulaði og einfaldur expressó, 1 matskeið mascarpone-ostur, 2 matskeiðar rjómi, 2 matskeiðar nýmjólk, 1 teskeið hunang og 1/2 teskeið malað múskat. Expressóið er látið leka yfir súkkulaðið og því blandað saman. Svo er ostur- inn, rjóminn og mjólkin hituð upp og blandað saman og hellt yfir kaffið. Drykkurinn er borinn fram í staupi. Þeir sem eru mjög ævintýragjarnir í eldhúsinu geta haft bak við eyrað að Ragnheiður vann út frá sjávarþema á Íslandsmeistaramótinu og notaði meðal annars roð og varning úr sjónum til að skreyta drykkinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.