Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 66

Fréttablaðið - 13.01.2005, Síða 66
34 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli                                       !    "   "  #$ #  #      "                     %  #    &                              Sími 581 1281 • www.gitarskoli.is Einka- tímar Skráning stendur yfir Þrátt fyrir að við mæðgurnar borðuð- um á okkur gat nú um hátíðarnar og ég hafi stundum velt því fyr- ir mér hvort ég ætti að taka upp róm- verska siði átveislna, til að troða meira góð- gæti ofan í mig, komst ég að því að ekki voru allir meðlimir heimilisins sama sinnis um hversu veglegar veitingarnar voru. Kötturinn á heimilinu, sem rétt er nýkominn á það stig að breima og láta eins og andsetin vera, komst að þeirri nið- urstöðu að hún væri orðin stór og ætti því að uppfylla þá skyldu að færa björg í bú. Ég veit nú ekki hvort hún var með þessu að mótmæla fæðinu sínu eða hvort hún ætlaði bara að vera sérstaklega góð við mig. En snemma í janúar birtist dauður smáfugl á ganginum hjá mér. Þóttist ég nú strax vita að köttur- inn hefði fundið þessa bráð á vappi sínu um húsþökin í nágrenninu. Þetta hafði hún nú reyndar aldrei gert áður, en þeim mun stoltari var hún yfir dugnaði sínum. Hún sat því þarna hjá fuglshræinu ofboðslega ánægð með sig og beið þess að ég tæki við þessari rausnargjöf og þakkaði henni vel fyrir. Ég var nú ekki alveg jafn hrifin af gjöfinni og gefandinn, og sýndi jafnvel af mér nokkuð vanþakklæti þegar ég vafði hræið í eldhúspappír og henti í ruslið, án þess að sýna nokkra tilburði til þess að hamfletta fuglinn og skella á pönnu. Kettir eru ekki þekktir fyrir skáksnilli sína, eða aðra þá list sem felst í að sjá hluti fyrir. Kötturinn minn er ekk- ert öðruvísi og starði því á mig í for- undran yfir þessu vanþakklæti mínu. En hún gafst ekki upp. Dóttir mín hringdi í mig í angist sinni dag- inn eftir. Kötturinn hafði breytt að- eins um taktík og kom nú færandi hendi með lifandi fugl. Skömmu síð- ar hafði fuglinn flogið út um glugg- ann og þar með var málið leyst. Kötturinn hefur ekki síðan reynt að aðstoða mig við að afla matar og gert sér kattamatinn að góðu. Við fyrstu tilraun lærði hún að van- þakklæti eru laun heimsins. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SVANBORG SIGMARSDÓTTIR FINNUR FYRIR VELVILJA Á NÝJU ÁRI Að færa björg í bú M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Mamma! Er í lagi að ég fái mér nýtt gæludýr? Nýtt gæludýr? Hvað með Bjarna? Hvaða dýr ertu með í huga? Þegar ég var yngri virkaði allt svo augljóst... Jabb . ...en eftir því sem ég eldist því óöruggari er ég. Ég skil þig. Veistu hvað ég á við? Því lengur sem við lifum, því færri svör erum við örugg um.. ...allavega spyrjið þig mig aldrei álits. Þetta líkist rigningu. Jabb Fyrst gleypir þú slatta af lofti, svona.... Síðan bara ROOOOOPPP! Solla! Þetta er ógeðslegt. Sá sem gleypir loft svona viljandi er ógeðslegur, barnalegur og algjör dóni! Mamma er þarna inni að uppnefna þig.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.