Fréttablaðið - 13.01.2005, Side 73

Fréttablaðið - 13.01.2005, Side 73
FIMMTUDAGUR 13. janúar 2005 ■ KVIKMYNDIR Rauð tónleikaröð #3 György Ligeti ::: San Francisco Polyphony Joseph Haydn ::: Sjö síðustu orð Krists Hljómsveitarstjóri ::: Ilan Volkov Upplestur ::: Pétur Gunnarsson Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Tvö ólík og afar spennandi verk „Volkov færði sig yfir í aðra vídd og tók hljómsveitina með sér. Hann mótaði einhvern magnaðasta tónlistarviðburð sem ég hef upplifað.“ (the herald í glasgow). Betri umsögn getur stjórnandi vart óskað sér. Volkov heimsækir Íslendinga í annað sinn, nú með tvö spennandi en ólík verk í farteskinu. Pétur Gunnarsson rithöfundur les valda kafla úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar á milli þátta HÁSKÓLABÍÓI Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 19.30 KRINGLUKRÁIN UM HELGINA • Fjölbreyttur sérréttamatseðill öll kvöld vikunnar • Tilboðsmatseðill fyrir Leikhúsgesti • Hópamatseðill • Sérsalur fyrir hópa Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is Geirmundur Valtýsson um helgina Heimildarmyndin Fahrenheit 9/11 eftir Michael Moore vakti mikla athygli enda fer hann þar hörðum höndum um George W. Bush og stríðsrekstur Bandaríkj- anna í Írak. Myndin hefur mótað skoðanir margra á stríðinu í Írak. Margir eru þó ósáttir við um- fjöllun og aðferðir Moores og hafa jafnvel gert sínar eigin heimildarmyndir til þess að sýna hina hliðina á málinu. Samband ungra sjálfstæðis- manna ætlar að gefa Íslending- um kost á að sjá eina af þessum andsvarsmyndum í kvöld. Sú nefnist Fahrenhype 9/11 og verð- ur sýnd í Valhöll klukkan átta. Í Farenhype 9/11 er skýrt frá því hvernig Michael Moore fór fram með hálfsannleik og ósann- sögli í umfjöllum um stríðið í myndinni Farenheit 9/11. Sögumaður myndarinnar er Dick Norris, stjórnmálaráðgjafi sem hefur starfað fyrir bæði demókrata og repúblikana. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni eru Zen Miller, þing- maður frá Georgiu, Edward I. Koch, fyrrverandi borgarstjóri í New York, og David Frum, fyrr- verandi aðstoðarvarnarmálaráð- herra. ■ Hálfsannleikur og ósannsögli MICHAEL MOORE Myndinni Fahrenhype 9/11 er stefnt gegn hinni frægu mynd Moores um Íraksstríðið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.