Fréttablaðið - 13.01.2005, Side 74

Fréttablaðið - 13.01.2005, Side 74
42 13. janúar 2005 FIMMTUDAGUR FRÁBÆR SKEMMTUN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Nýársmyndin 2005 Nýársmyndin 2005 Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 10 Sýnd í LÚXUS VIP kl. 8.30 POLAR EXPRESS SÝND KL. 3.30 m/ísl. tali Sýnd kl. 3.30 & 6 m/ísl. tali Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 m/ens. tali "séríslenskt Fönn, fönn, fönn!" HHH SV Mbl "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..." Sýnd kl. 4 og 6 Sýnd kl. 10.15 B.i. 14Sýnd kl. 3.30 og 5.45 Í takt við tímann er tekjuhæsta jóla- myndin, yfir 20.000.000 kr. í tekjur frá öðrum degi jóla til dagsins í dag. Yfir 23.000 áhorfendur Sýnd kl. 10.15 Sýnd kl. 5.45 og 8 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15 B.i. 10 Sýnd kl. 10.15 B.i. 14 Hvað er málið með Alfie? Pottþétt rómantísk gamanmynd með Jude Law sem nýlega var kosinn kynþokkafyllsti karlmaðurinn. Frábær tónlist. kl. 5.30 m/ísl. tali kl. 8 & 10.20 ens. tali Ein stærsta opnun frá upphafi í des í USA. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Yfir 27.000 gestir HHH kvikmyndir.com HHHHH Mbl Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 & 10.10 Sýnd kl. 4, 6, 8, 9, 10 og 11 Sýnd í LÚXUS kl. 6, 8 og 10 "Nístir inn að beini!" - Elle "Upplifun! Meiriháttar!" - Leonard Maltin "Snilldarþriller! Skuggalega hrollvekjandi!" - Variety Forsýning kl. 8 Hvað er málið með Alfie? ■ KVIKMYNDIR Vinir Hollywood-hjónanna Brad Pitt og Jennifer Aniston, sem hættu saman fyrir skömmu, eru sann- færðir um að sambandsslitin séu aðeins örlítið skref aftur á bak áður en þau stofna fjölskyldu. Pitt hefur margoft lýst því yfir í viðtölum að hann sé tilbúinn að eignast börn en Aniston vill einbeita sér að kvikmyndaferlinum. Telja vinir þeirra að aðskilnaðurinn sé gott tækifæri fyrir þau til að íhuga framtíðaráform sín. „Þau vilja ekki að fólk haldi að skilnaðurinn sé slæmt mál,“ sagði einn vinurinn. „Þetta var góð ákvörðun fyrir þau. Þau eru ennþá mjög góðir vinir og þeim þykir vænt um hvort annað. “ Í viðtali við tímaritið Vanity Fair á síðasta ári gaf Pitt í skyn að skiln- aður væri hugsanlegur. „Hvorugt okkar vill vera talsmaður fyrir hamingjusamt hjónaband. Jen og ég gerðum með okkur samkomulag um að við myndum sjá til hvernig sam- bandið myndi þróast,“ sagði hann. Hvorki Pitt né Aniston hafa leitað til skilnaðarlögfræðinga og gefur það orðrómi þessum byr und- ir báða vængi. Eftir að þau hættu saman þann 7. janúar hafa þau einnig haldið áfram að búa saman í glæsihýsi sínu í Hollywood. ■ Ekki er öll von úti PITT OG ANISTON Brad Pitt og Jennifer Aniston höfðu verið gift í fjögur ár þegar þau ákváðu að hætta saman. Tölvuteiknimyndin The Incredibleser að taka íslenska bíómarkaðinn með áhlaupi en hún nálg- ast nú 30 þúsund sæta markið óð- fluga og ekkert lát virðist vera á vinsæld- um henn- ar. Hún var vinsælasta og tekju- hæsta myndin í íslenskum miða- sölum um síð- ustu helgi en þá sáu fleiri mynd- ina en helgina áður þannig að þrátt fyrir kröftuga byrjun virðist myndin enn vera í uppsveiflu. ÁLFRÚN ÖRNÓLFSDÓTTIR Vakti athygli í myndinni Dís og hefur nú verið valin ásamt 21 öðrum ungum leikurum í „Shooting Star“ hópinn. Á hverju ári velur Europian Film Promotion hóp ungra leikara sem vakið hafa sérstaka athygli á árinu. Nú hefur Álfrún Örnólfsdóttir verið valin í „Shooting Star“ hópinn 2005. Alls er 21 ungur leikari og leikkona frá Evrópu valin í þennan hóp sem er kynntur á hverju ári á kvikmyndahátíðinni í Berlín sem hefst í byrjun febrúar. „Ég er auðvitað mjög sátt og þetta verður örugglega skemmti- legt. Íslenska kvikmyndamiðstöðin sér um að velja fulltrúa frá Íslandi. Þetta eru allt ungir leikarar sem hafa verið að gera góða hluti í sínu landi,“ segir Álfrún. Álfrún vakti athygli fyrir stuttu þegar hún lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni um stúlkuna Dís. Hún hefur leikið í fleiri kvikmynd- um eins og Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhannesdóttur. Hún er útskrifuð frá Webber Douglas Academy of Dramatic Art og hefur stundað leiklist síðan hún var sjö ára. Með því að vera valin í þennan hóp bætist Álfrún í fríðan flokk leikara en áður hafa Hilmir Snær Guðnason, Ingvar E. Sigurðsson, Baltasar Kormákur, Margrét Vil- hjálmsdóttir og Nína Dögg Filipp- usdóttir verið valin í Shooting Stars hópinn. Í fyrra var það Tómas Lemarquis sem varð fyrir valinu eftir að hafa vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í Nóa albínóa. „Þetta er að sjálfsögðu glæsi- legur hópur leikara en það kemur í ljós hvað þetta þýðir fyrir mig. Ég hef fengið grófar upplýsingar frá þeim sem hafa farið áður. Aðallega held ég að þetta sé gert til þess að kynna mann fyrir stórum hópi fólks úr þessum bransa, leikstjór- um, framleiðendum og þess háttar. Það verður líka gaman að hitta alla þessa ungu leikara og spjalla við þau um það sem þau eru að gera.“ Álfrún er þessa dagana að æfa fyrir leikritið Segðu mér allt eftir Kristínu Ómarsdóttur. Álfrún fer þar með hlutverk tólf ára stelpu sem er lömuð og í hjólastól. Borg- arleikhúsið frumsýnir leikritið 18. febrúar næstkomandi. hilda@frettabladid.is FRÉTTIR AF FÓLKI Upprennandi stjarna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.