Fréttablaðið - 21.01.2005, Síða 25
3FÖSTUDAGUR 21. janúar 2005
Trúarmyndir,
töskur og skart
Verslunin Gjafa gallerý er með
útsölu á ýmsum handunnum vörum.
Spænskar gjafavörur svo sem kerta-
stjakar, speglar, trúarmyndir og kross-
ar eru meðal þess sem fæst á útsölu
í Gjafa gallerýi á Frakkastíg 12.
Ruggustólar úr tré og járni og
spænskt eldfast matarstell má líka
nefna, svo og töskur og skart. Mikið
af þessum vörum er handunnið og
sumt antik, svo sem trúarmyndirnar.
Matarstellið og antíkvaran eru með
20% afslætti en annað 40-50%.
Aukaafsláttur upp á 15% er veittur af út-
söluverði á öllum vörum hjá Hrafnhildi að
Engjateigi í Reykjavík. Hjá Hrafnhildi fæst
alls kyns kvenfatnaður; úlpur, kápur,
dragtir og gott úrval af peysum. Enn
fremur samkvæmisfatnaður, sem kemur
sér heldur betur vel nú þegar þorrablót
og árshátíðir eru að hefjast af fullum
krafti. Útsalan stendur fram í byrjun
febrúar svo segja má að síðari hálfleikur
sé að byrja.
Aukaafsláttur
hjá Hrafnhildi
Síðari hálfleikur útsölunnar að byrja.
Tvö sérstök tilboð
Í versluninni Hestar og menn á
Lynghálsi í Reykjavík standa nú
yfir hnakkadagar.
Allir sem kaupa nýjan Hrímnishnakk í
versluninni Hestar og menn fá með
honum flugmiða sem gildir fyrir einn fram
og til baka á einhvern af áfangastöðum
áætlunarflugs Icelandair í Evrópu. Hrímnir
er hnakkur í hæsta gæðaflokki enda not-
aður af stórum hópi bæði atvinnumanna
og almennings í útreiðum og keppni.
Einnig er svokallað „uppítökutilboð“ í
gangi. Það virkar þannig að verslunin tekur
alla hnakka sem greiðslu upp í nýja
hnakka frá Top Reiter sem framleiðir
nokkrar gerðir af gæðahnökkum. Uppí-
tökuverðið er háð mati starfsmanna en
verður þó aldrei lægra en 5.000 krónur.
Breskar
heimilisvörur
Pipar og salt er með útsölu á
Klapparstíg.
Allt að helmingsafsláttur er á völdum
vörum í versluninni Pipar og salt á
Klapparstíg 44. Um er að ræða heimilis-
vörur frá Bretlandi og eru til dæmis 4-6
diskamottur sem áður kostuðu 2.900 nú
á 1.500 og glasabakkar í stíl sem voru á
995 settið en nú á 300. Pressukönnur
fyrir 8 bolla með 24 karata gyllingu er
voru á 6.500 kosta nú 3.700 og sams
konar könnur fyrir fjóra bolla sem áður
voru á 6.200 eru nú á 3.500. Eldföst föt
og skálar eru líka til í úrvali í Pipar og
salti og seljast nú með 25% afslætti.
TAI CHI
8. vikna Tai chi
námskeið hefst
24. janúar
Kennt verður á mánudögum
og miðvikudaga kl. 17:15 –
18:15 í Hæðargerði 31
Á þriðjudögum og fimmtudög-
um kl. 12:05 – 13:05 í
Kramhúsinu
Leiðbeinandi Guðný Helgadóttir
Innritun og upplýsingar í síma:
860-1921 og 551-9792
dunna@hotmail.com