Fréttablaðið - 21.01.2005, Qupperneq 43
Ráðlegging til ómaga samfélagsins
Takið út innistæður ykkar úr
bönkum ef þær eru einhverjar,
geymið peningana undir koddan-
um eða látið krók koma á móti
bragði og fáið börn ykkar, barna-
börn, aðra vandamenn eða vini til
að eiga innistæðuna í þykjust-
unni til að fá sömu vexti og aðrir.
Starfsfólki Tryggingastofnun-
ar ríkisins er gert skylt skv. 10
grein laga nr.117/ 1993 að reikna
okkur, sem þurfum að fá tekju-
tryggingu og heimilisuppbót
vegna lélegra eftirlauna úr líf-
eyrissjóðum eftir 30-55 ár á
vinnumarkaði, helming af vöxt-
um sem tekjur ef við eigum
peninga (inneignir) í banka.
Borgarstjórn Reykjavíkur
ákveður á hverju ári að veita
tekjulitlu eftirlaunafólki sem á
skuldlausar íbúðir, allt að 80%
afslátt af fasteigna- og hol-
ræsagjaldi. Á árinu 2004 áttu
einhleypingar sem höfðu kr.
1.610.000 eða minna í árs-
tekjur að fá afsláttinn. Ég er á
eftirlaunum, á litla íbúð, hafði
1.566.549 kr. í tekjur 2003, fékk
49.789 kr. í vexti af inneign í
banka og greiddi 307.499 kr. í
skatta.
Ég fékk 50% afslátt af um-
ræddum gjöldum vegna ómaga-
stöðu minnar árið 2002 og 2003
og sendi bréf til Framtalsnefndar
Reykjavíkurborgar í maí s.l. og
spurði hvort ég ætti ekki rétt á
80% afslætti. Svar fékk ég
dags.4. ágúst og þar með 11.027
kr. lækkun á greiðslum. En Adam
var ekki lengi í Paradís. Hinn 22.
nóv. bárust mér skrifleg boð um
að endurgreiða þessar krónur og
ég
hef ekki enn fengið svar við
bréfi dags. 22.11 þar sem ég bað
um skýringar, þ.e. hvort vinstri
höndin vissi ekki hvað sú hægri
gerði. Tuttugasta og níunda
desember var upphæðin tekin
út af greiðsluþjónustureikingi
mínum hjá Spron.
Í dag 18.jan. fékk ég upplýs-
ingar í símtali við starfsfólk hjá
Reykjavíkurborg um að Fram-
talsnefndin telur vextina sem
tekjur. 1. Helmingur af vöxtum
lækka greiðslur til okkar sem
fáum tekjutryggingu og heimilis-
uppbót vegna lélegra eftirlauna
úr lífeyrissjóðum og erum talin
ómagar. 2. Framtalsnefnd
Reykjavíkurborgar telur alla
vexti okkar beinar tekjur.
Þetta er einfalt reiknings-
dæmi fyrir mig: lækkun á
greiðslum Tryggingastofnunar
vegna vaxta er 24.899; áhrif
vaxta á tekjuskatt og holræsa-
gjald, mínus 11.027: fjár-
magnstekjuskattur 4.979. Sam-
tals: 40.905 kr. Ég fæ í minn vasa
kr.8.884, þ.e. um 15,5% af vöxtum
þegar aðrir fá 90%.
Okkur eru flestar bjargir bann-
aðar – ef við fáum greitt fyrir ein-
hverja vinnu tekur Trygginga-
stofnun 45% af upphæðinni og
skattstjóri um 39%: samtals 84%.■
23FÖSTUDAGUR 21. janúar 2005
Heimilislausir á Íslandi
Miðað við allar þær bjargir sem við höf-
um, alla fjármunina og góðan vilja helstu
ráðamanna (a.m.k. á tyllidögum) er
sorglega staðreyndin sú að hér á landi
finnast enn hópar sem eiga sér fáa sem
enga málsvara og búa við vægast sagt
ómannúðlegar aðstæður. Heimilislausir
eru gott dæmi um slíkan hóp en rétt
rúmlega hundrað manns eru flokkaðir
heimilislausir hér á landi samkvæmt
þrengstu skilgreiningu, þ.e. rúmlega
hundrað einstaklingar sofa úti eða nýta
sér þjónustu gistiskýla. Enn meiri fjöldi
er í raun heimilislaus ef tekið er tillit til
allra þeirra sem búa við ótryggt húsnæði
en ná að þrauka dag frá degi með því að
gista hjá vinum og kunningjum.
Auður Lilja Erlingsdóttir á vinstri.is
Náðu að stoppa nafnið
Sjálfur hef ég aldrei áttað mig á því til
hvers mannanafnanefnd er. Enda er ég
mannanafna-mistök, hef sloppið fram
hjá vökulu auga nefndarinnar. Ég heiti
hinu hræðilega nafni Reykfjörð eða
„Smoke-Bay“ eins og presturinn sagði.
Nefndarmönnum kemur sennilega ekki
dúr á auga vitandi að svo hræðilegt
nafn sé skrifað á debetkortakvittanir.
Hryllilegt alveg! En þeir náðu þó að
stoppa þetta! Ég fékk að bera þetta nafn
og systir mín er þessu marki brennd. En
litli bróðir minn – honum var bjargað af
mannanafnanefnd. Guði og nefndar-
mönnum sé lof! Enda hefði hann án efa
hlotið varanlegan skaða af.
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason
Hatar ekki Bandaríkin
Nokkrir bloggarar hafa haldið því fram
að ég hataði Bandaríkin vegna þess að
ég snupra Íslendinga fyrir undirlægju-
skap við þessi ríki. En það er ekki
Könunum að kenna að margir Íslend-
ingar liggja marflatir fyrir þeim. Banda-
ríkin eru dýnamískt og spennandi
samfélag sem hefur forystu á flestum
sviðum mennta og menningar. Reyndar
varði ég þessi ágætu ríki í grein í blaði
hér í Lillehammer eftir innrásina í
Afganistan. Ég var fylgjandi þeirri innrás
en á móti innrásinni í Írak. Kannski
verður maður Kanahatari ef maður
fylgir ekki Bush í einu og öllu.
Stefán Snævarr á kistan.is
HERDÍS HELGADÓTTIR
MANNFRÆÐINGUR
SKRIFAR UM KJÖR EFTIRLAUNAFÓLKS
AF NETINU
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Þingholt
Veislusalur fyrir öll
tilefni
Spennandi matseðlar
og veitingar
Skoðið verðið á
www.holt.is
• • •
• • •
• • •
Okkur eru flestar
bjargir bannaðar –
ef við fáum greitt fyrir
einhverja vinnu tekur
Tryggingastofnun 45% af
upphæðinni og skattstjóri
um 39%: samtals 84%.
,,