Fréttablaðið - 03.02.2005, Blaðsíða 61
33FIMMTUDAGUR 3. febrúar 2005
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ SÖNGLEIKUR
Smáralind og Kringlunni
Smáralind 522 8322 Kringlunnni 568 8190
Batman
búningur
st. 120-140
grímur, tennur, andlitslitir, hársprey, skegg, gerviblóð, neglur, vopn, fjaðrir, kórónur ofl. ofl.
Spiderman
búningur
st.116,128,140
Action man
búningur
st. 120,140,160
Bratz
búningur
st. 5/7-8/10
Mjallhvítar
búningur
st. 120,140,160
Grímubúningar
margar gerðir
Leikkonan Angelina Jolie segistfá meira út úr sjálf-
boðastarfi sínu sem
fulltrúi Sameinuðu
Þjóðanna en að leika.
Jolie hefur ferðast
víða um heim ásamt
syni sínum til að
hjálpa fátæku fólki og
líkar það ákaflega vel.
Hún segist oft eiga
erfitt með að byrja
að leika í bíómynd
eftir að hafa starfað
sem sjálfboðaliði
því það starf sé
mun meira gefandi.
Sacha Baron Cohen, sem sló ígegn sem Ali G, flettir fast-
eignablöðum um þessar mundir í
leit að nýju húsi
ásamt unnustu
sinni Isla Fisher.
Ástæðan er sú
að þau skötuhjú
bjuggu í glæsi-
villu Jennifer Aniston í Hollywood,
sem vill nú fá hana til baka eftir
skilnaðinn við Brad Pitt. Cohen og
Isla ætla að ganga upp að altarinu
á þessu ári í heimabæ hennar,
Perth í Ástralíu.
Skoska hljómsveitin FranzFerdinandhefur verið tilefnd til
fimm NME-
verðlauna.
Sveitin er
m.a. tilefnd
sem besta
breska
hljómsveit-
in ásamt
Kasabian,
The
Libertines, Muse og Snow Patrol.
Verðlaunin verða afhent í London
17. febrúar.
Fyrsta smáskífulag rapparans 50Cent af nýjustu plötu sinni, The
Massacre, nefnist
Candy Shop og
kemur það út 7.
mars. Platan sjálf
kemur út tveimur
vikum síðar.
Kate Winslet hefur keypt tæp-lega þriggja milljón dollara
íbúð í New York. Hún keypti íbúð-
ina með eigin-
manni sínum,
Sam Mendes.
„Kate féll
kylliflöt fyrir
Chelsea
svæðinu í
New York
og ákvað
að kaupa
íbúð þar.
Þessi
staður
verður henni alltaf kær,“ sagði
heimildamaður. Kate fæddi son
sinn Joe síðast þegar hún bjó í
New York.
Beyoncé Knowleshefur beðið Coldplay
söngvarann Chris
Martin að syngja
dúett með sér. „Ég
hef gert nokkra
dúetta í gegnum
árin en vildi gjarn-
an vinna með
Coldplay. Það
væri frábært að
fá tækifæri til
þess að syngja
með Chris,“
sagði Beyoncé.
Chris hefur þeg-
ar sungið dúett
með söngkon-
unni Jamelia.
Rokkguðir og glyspíur í frumskóginum
Nemendamót Verzlunarskóla
Íslands er í kvöld og hafa krakk-
arnir sett upp heljarinnar sýningu
í Loftkastalanum í tilefni þess.
Tvær sýningar eru í kvöld fyrir
nemendur skólans en fyrsta sýn-
ing fyrir almenning er á sunnu-
daginn næstkomandi.
„Æfingarnar og allt í kringum
sýninguna hefur gengið svaka-
lega vel. Myndband við íslenska
útgáfu af laginu Welcome To The
Jungle er komið í spilun á Popp-
tíví en það er Friðrik Dór Jónsson
sem syngur lagið,“ segir Valgerð-
ur Halldórsdóttir markaðsstjóri
sýningarinnar. Söngleikir Verzl-
unarskólans hafa verið gífurlega
vinsælir í gegnum árin og hefur
sýningum á sumum stykkjunum
jafnvel verið haldið áfram langt
fram á sumar.
Margir hæfileikaríkustu söngv-
arar og leikarar landsins hafa
stigið sín fyrstu skref í leikritum
skólans og til dæmis er ein Idol
stjarnan, Aðalheiður Ólafsdóttir,
gömul stjarna úr sýningum Verzl-
unarskólans. Sýningin í ár nefnist
Welcome To The Jungle og er þem-
að í ár glysrokk tímabilsins þegar
hljómsveitir eins og Guns'n'Roses,
Kiss, Aerosmith og Bon Jovi voru í
eldlínunni. Krakkarnir stefna á að
sýna 19 sýningar en ef vel gengur
gætu fleiri sýningar bæst við.
Að sögn Valgerðar er sýningin
stórglæsileg í ár. „Strákarnir hafa
umbreyst í stælta rokkguði og
stúlkurnar í glyspíur og þetta er
jafnvel stærsti söngleikur Verzló
hingað til. Við vonum að flestir
mæti á þessa hressu sýningu
okkar sem er stútfull af stuð-
lögum og flottum dönsum.“
hilda@frettabladid.is
WELCOME TO THE JUNGLE Verzlunar-
skóli Íslands frumsýnir söngleikinn í dag
og er fyrsta sýning fyrir almenning á
sunnudaginn.