Tíminn - 02.03.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 2. marz 1975
TÍMINN
5
• •
Omurlegar leifar
stuðlabergsins í Beilstein
Okkur finnst ekkert sérlega
nýstárlegt a6 sjá stuðlaberg.
Það getur svo viða að lita á
landi hér, jafnt austur i Siðu,
sem norður við Hofsós, svo að
dæmi séu nefnd. A meginlandi
Noröurálfu gegnir öðru máli.
Þar má slikt fyrirbæri undan-
tekning heita. Mikið af stuðla-
bergi er þó i Beilstein i Vestur-
Þýzkalandi, og mun mörgum
þykja furðu gegna, að Vestur-
Þjóðverjar hafa gert þetta
náttúrufyrirbrigði að
verzlunarvöru á þann hátt að
rifa stuölabergið niður og selja
þaö i bilförmum úr landi.
Þaö feru Hollendingar, sem
ekkert grjót eiga heima fyrir, er
kaupa það og nota það i sjó-
vamargarða og öldubrjóta.
Hundrað og fimmtiu lestir af
stuðlabergi eru fluttar dag
hvem frá Beilstein til Linz, þar
sem það er sett á skip og flutt
eftir Rinarfljóti til Hollands.
Þegar er búið að brjóta upp tvo
þriöju hluta þess stuðlabergs,
sem til er i Beilstein, og það er
ekki sjón að sjá það, sem eftir
er. Það verða að teljast litlar
sárabætur fyrir þau spell, sem
þama hafa verið unnin, að fá-
einir drangar hafa verið teknir
frá handa safni i Frankfurt.
★ ★
Stóra sovézka alfræðiorðabókin
gefin út í USA
Bandariska útgáfufyrirtækið
Macmillan hefur hafið útgáfu
Stóru sovézku alfræðiorðabók-
arinnar á ensku. Fyrsta bindið,
sem þegar er komið út hefur
vakið mikinn áhuga almennings.
Þegar áður en sala hófst, höfðu
★
Löng
gönguferð
Georgi Busjujev er eftir-
launaþegi. Hann kom fyrir
skömmu til Vladivostok á
sovésku Kyrrahafsströndinni
eftir að hafa lagt að baki rösk-
lega ellefu þúsund kilómetra
langa leið frá Riga við Eystra-
salt fótgangandi. Hann segir, að
i fyrsta lagi sé hann að láta
rætast ósk afa sins um að koma
sem frjáls maður til
Vladivostok, en afinn var á
dögum zarsins sendur i útlegð
til Siberiu. í öðru lagi hafði
Busjujev hjartasjúkdóm, sem
læknarnir segja nú að hafi
læknazt algerlega.
25% af upplaginu verið. seld til
áskrifenda. Þýðingunni á alfræði-
oröabókinni hefur verið mikið
hælt, en hún er unnin af ritstjór-
um sovézku Visindaakademiunn-
ar. Fimm bindi munu koma út ár-
lega.
★
Aukin ending
pappírs
og skjala
Endingu gamalla verðmætra
bóka og skjala má lengja mikið
með nýrri aðferð til þess að
vernda pappir, sem starfsmenn
Saljkov-Sjedrinbókasafnsins i
Leningrad og Sovézkir efna-
fræðingar hafa fundið upp. Þeir
hafa fundið nýtt ráð til varnar
gegn örverum, sem vinna
pappirnum tjón.
Leningradbókasafnið hefur nú
fengið heila pappirsverksmiðju
til umráða með sérstökum
útbúnaði til viðgerða á bókum
og skjölum, þannig að menn
þurfa ekki að snerta pappirinn
sjálfan. Eftir meðferðina fá
bækurnar sitt upprunalega útlit.
★
■■
'jf , ■ ; "
v > > ' , . * '■
'
Liprar stúlkur
iþróttaskóli einn fyrir stúlkur,
sem bera af i leikfimi i barna-
skólum, er starfræktur i
Moskvu. Þessar telpur eru vald-
ur úr sinum hópi strax og þær
byrja leikfiminám um 5-7 ára
aldur. Sú sem er aðalþjálfari við
skólann heitir Olimpiada
Yershova, og er hún talin sér-
staklega góður þjálfari, sem
tekur fullt tillit til aldurs og getu
telpnanna, og gætir þess að
ofreyna þær ekki. Úrvalshópur
frá þessum skóla þykir sýna
sérstaklega skemmtileg atriði,
með „sippiböndum”, borðum og
slæðum, sem ganga skraut-
sýningum næst. Hér sést á
myndinni, þar sem verið er að
velja 10 ára stúlkur i úrvalsflokk
inn, en þær eru að sýna listir
sinar með mislitum borðum,
sem þær sveifla af mikilli leikni.