Tíminn - 02.03.1975, Page 33

Tíminn - 02.03.1975, Page 33
Sunnudagur 2. marz 1975 TÍMINN 33 Kötturinn Branda unir vel lifinu. veiða fugla, eins og katta er siður, og lædd- ist kænlega að smá- fuglunum á sumrin. En þegar hann var kominn i stökkfæri við þá rak hann ævinlega upp vesældarlegt mjálm, og þá flugu auðvitað f u g la r n ir ! H a n n náði aldrei neinum. Við héldum að hann yrði skyndilega óstyrkur, eða of mikill veiðihugur gripi hann og þá ræki hann upp mjálmið. öðruvisi var Stóra- Kjóa farið. Hann var kolsvartur með hvitan dil á bringunni, geysi duglegur veiðiköttur, sem fljótt eyddi rottun- um á bænum. Einu sinni fór ég niður i kjallara að sækja harðfisk og Stóri- Kjói með mér. Hertir þorskhausar hengu i kippum á bitunum. Þegar ég kom niður stigann stökk stærðar rotta úr kippunni, en hún var varla komin niður á gólf þegar Kjói hremmdi hana. Var sögu hennar þá lokið. En Kjói var lika grimmur Börnin og hundur I varpanum hjá stóru netlunni sem stingur! við ketti. Þeir voru dauðhræddir við hann. Á bænum var hátt framhús úr timbri. Einu sinni heyrðum við vesældarlegt væl ofan af þakinu og lika grimmdarlegt urr öðru hvoru. Við klifruðum upp á búrið, sem var úr torfi og sáum þá einkennilega sjón. Yzt á þakmæni framhússins kúrði guli kisi en Kjói stóð yfir honum ógnandi Guli kisi kraktist loks út af þakinu, þannig að hann hékk aðeins á framlöppunum — og Kjói færði sig alveg að honum. Við köstuðum þá moldarkögglum i Kjóa svo hann hypjaði sig burt og sá guli vóg sig upp á þakið. Annars er enginn efi á þvi að Kjói hefði hrakið hann út af þakinu og drepið þannig. Kjói varð loks svo grimmur að það varð að farga honum. Það var mikið lif þarna við fjörðinn. Hrafninn verpti I sjávarhömrunum og hvalir byltu sér úti á firðinum. Hátt lét i lómnum og hávellunni þar úti. Endur syntu fyrir landi og æðarfugl, sendlingar hlupu i fjörum og mávar svifu yfir. Landselir lágu oft uppi á skerjunum. Hrafninn striddi hundunum, flögraði rétt framan við þá krunkandi og flaug ekki upp fyrr en þeir voru alveg komnir að honum og þá stutt og lágt. Ef æti var hjá bænum ginnti krummi þannig hundana burt, flaug svo skyndilega heim og varð langt á undan þeim i ætið. Dýrin hafa sina skynsemi, ekki vantar það. Hænsni voru líka á bænum, já, „hænan gaggar með hopp og læti og haninn galar á öðrum fæti”, svartbrúnn og konunglegur uppi á fjóshaugnum! Við létum andaregg til hænunnar, og hún ungaði þejm út eins og sinum. Undafarna mánuði hafa staðið yfir gagngerar breytingar og endurbætur í fyrirtæki voru Erlendir sérfræðingar hafa breytt framleiðsluaðferðum i samræmi við það besta, sem nú þekkisf á þessu sviði Hinir vel þekktu sérf ræðingar þeir Jan Davidson og Jan Fredenlund hafa staðið fyrir endurskipu- x lagningunni. Mogens Laurentsen, innanhúsarkitekt, gerði uppdrætti að innréttingu fataverslúnarinnar, sem nú er á 2. hæð í Kjörgarði. KYNNIÐ YÐUR GÆÐIN OG GERIÐ GÓÐ KAUP! lUtínta KJÖRGARÐI Branda aö leika sér.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.