Tíminn - 02.03.1975, Side 40
'----------------------------
Sunnudagur 2. marz 1975
bruexi
er einnig
traust
eidva
Heildverziun Siöumúla
Símar 05694 & 85295
Guöbíörn
Guöjónsson
f
SÍS-FÓIMJIt
SUNDAHÖFN
fyrirgóöan mat
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
1 gærmorgun kl. 7.20 hófst sundkeppnin, sem kennd er við 200 metra og er löngu kunn. Hóbert, ljós-
myndari Tímans, var mættur með þeim fyrstu, og smellti af atburðum morgunsársins, þegar fánarnir
voru dregnir að húni, og þegar fyrstu sundgarparnir keyptu þátttökumiða, sem jafnframt eru happ-
drættismiðar. Svo má ekki gleyma aðaimyndinni, af fuiltrúa æskunnar, sem synti sinn sprett. Fyrsti
gesturinn, sem synti i Laugardalslauginni, var kona, Halidóra Magnúsdóttír, eins og vera ber á nýbyrj-
uðu kvennaári. Kl. 9, þegar við hringdum inneftir, höfðu um 200 manns synt 200 metrana, og þá voru
laugarnar fullar af fólki.
FJÖLBRAUTASKÓU
FYRIR SUÐURNES
BII-Reykjavik. — Á vegum sam-
starfsnefndar sveitarstjórna á
Suðurnesjum er hafinn undirbún-
ingur að þvi að koma upp fjöl-
brautarskóla svonefndum fyrir
framhaldsnám unglinga af Suður
nesjum. Að þvi er Jóhann
Einvarðsson, bæjarstjóri i Kefla-
vfk, tjáði blaðinu i gær, er mikill
áhugi á þvi, að slikur skóli taki til
starfa á Suðurnesjum og starfar
nefnd að þessum málum, skipuð
fulltrúum sveitarfélaga og skóla,
og hefur Rögnvaldur Sæmunds-
son, skólastjóri Gagnfræða-
skólans i Keflavik, haft með
höndum forstöðu nefndarinnar.
Fjölbrautarskóla sem þessum
er ætlað að spanna yfir hin fjöl-
breytilegustu svið framhalds-
námsins, og má raunar segja, að
starfssvið hans sé að fella þau
undir einn hatt. Framhaldsnám
var reynt við Gagnfræðaskólann i
Keflavik, menntadeild, sem
starfaði i tvö ár, en féll niður
vegna ónógrar þátttöku. Má þar
vafalaust ýmsu um kenna, m.a.
þvi að af hálfu hins opinbera var
menntadeildinni syðra li.tt h’amp-
að, er auglýstar voru hinar ýmsu
menntadeildir viðs vegar um
land. Hafði menntadeildin verið
rekin i samráði við Menntaskól-
ann við Hamrahlið, og þykir
mönnum syðra illt, að hún skuli
hafa fallið niður. Hins vegar
myndi Fjölbrautaskóli koma að
miklu gagni, og þvi frekar, sem
svið hans eru fjölbreytilegri.
Fitumagn loðnunnar
álíka og 7 fyrra
gébé—Reykjavik. — Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins hefur i ár,
eins og undanfarin ár, verið með
umfangsmiklar mælingar á fitu-
magni i loðnu. 1 byrjun vertiðar
var fitumagnið um 12%, en fitu-
magnið i sýnishornum sem tekin
voru i vikunni, er nú koinið niður
fyrir7%,ogef miðað er við áður
fengna reynslu fer fitumagnið allt
niður I 3% I vertiðarlok.
Björn Dagbjartsson, forstjóri
Rannsóknarstofnunarinnar,
sagði, að hrognafyllingin færi nú
að nálgast tuttugu prósent, en úr
þvi fer loðnan að hrygna. Einn
fimmti hluti af þunga hrygnunnar
eru hrogn.
Björn sagði, að Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins, tæki
sýnishorn úr hverjum einasta
bát, sem landar á fjórum stöðum
á landinu, en þeir eru Reyðar-
fjörður, Hornafjörður, Vest-
mannaeyjar og Akranes, og sjá
fiskmatsmenn um synatökur á
hverjum stað. Mæla þeir bæði fitu
og þurrefni loðnu-sýnishornanna.
Þvi meira af þurrefni sem mælist
i loðnunni, þess meira af mjöli
fæst úr henni. Einnig gefa þessi
sýnishorn visbendingu um, hve
mikið af sjó eða vatni landast
með loðnunni.
Loðnan, sem veiðzt hefur vest-
ur af Garðskaga undanfarna
daga, er einnig um 7% feit og
samkvæmt okkar mælingum,
bendir ekkert til þess að loðnan sé
feitari eða betur á sig komin held-
ur en i fyrra, sagði Björn Dag-
bjartsson að lokum.
Þjóðleikhúsið 25 ára i vor:
Silfurtunglið sett á
svið á 25 ára afmælinu
gébé Reykjavik — Þjóðleikhúsið
á tuttugu og fimm ára afmæli
þann 20. april n.k. Akveðið hefur
verið að afmælisleikritið verði
Silfurtunglið eftir Halldór Lax-
ness. Leikritið er talið vera eitt af
Unga fólkið sækist
eftir ríkisjörðum
— tíu umsóknir um Langsstaði í
Hraungerðishreppi
FB-Reykjavflí. Á vori komanda
losnar ríkisjörðin Langsstaðir I
Hraungerðishreppi, og liggja nú
þegar fyrir um 10 umsóknir um
ábúð og auk þess hafa allmargir
fleiri spurzt fyrir um jörðina hjá
Jarðeignadeild ríkisins, sam-
kvæmt upplýsingum Gisla Brynj-
úlfs.
Ekki vildi Gisli fullyrða, að
mikil eftirspurn væri eftir rikis-
jörðum um þessar mundir, þótt
alltaf kæmi nokkuð af ungu fólki
og spyrðist fyrir um jarðir lausar
til ábúöar. Sagði hann, að sér
virtist sem margt af þessu fólki
gerði sér ekki fulla grein fyrir
þvi, hvað það þarf mikið átak til
þess að hefja búskap, og spyrði
þvi meira af áhuga en raunveru-
legri getu til að hefja búskapinn.
Þegar ríkisjörð losnar verður
ábúandinn að láta vita fyrir ára-
mót, að hann hyggist hætta bú-
skap. Ekki eru rikisjarðir, sem
losna, auglýstar strax lausar til
ábúðar, þar sem það spyrzt
venjulega um sveitirnar I kring,
ef jörð losnar, að þvi er GIsli
sagði. Ríkisjarðir eru 820 talsins,
og er leiga af þeim miðuð við 3%
af fasteignamati jarðarinnar, en
auk þess tekur ábúandinn við
greiöslum af áhvilandi skuldum
jarðarinnar, en þær eru að sjálf-
sögðu þvi meiri, sem meira hefur
verið gert á jörðinni.
Einhverjar fleiri jarðir munu
vera lausar, aðrar en Langsstað-
ir. Til dæmis er laus smájörð i
Skorradalnum. Þar hefur búið
einbúi, en húsakostur á jörðinni
mun ekki vera slikur, að þar verði
um búskap að ræða, heldur er lik-
legra að jörðin verði leigð lausri
leigu. I Fljótum I Skagafirði er
einnig jörð, sem losnaði I haust,
og I Axarfirði er jörð, sem hefur
verið I eyði I 10 ár, en ekki er vit-
að, hvort þessar jarðir munu
byggjast aftur.
beztu leikritum nóbelsverðlauna-
skáldsins, mannlegt verk i raun-
verulegum stil og jafn tlmabært
nú, eins og þegar það var skrifað.
Silfurtungllð var áður sýnt I Þjóð-
leikhúsinu fyrir um það bil
tuttugu árum.
Æfingar eru þegar hafnar á
leikritinu, en leikstjórar verða
þau Sveinn Einarsson og Briet
Héðinsdóttir og Sigurjón
Jóhannsson sér um leikmyndir.
Með aðalhlutverk fara Anna
Kristin Arngrimsdóttir, sem leik-
ur Lóu, Erlingur Gislason fer með
hlutverk Feilan Ó. Feilan og Sig-
mundur Örn Arngrimsson fer
með hlutverk Óla, eiginmanns
Lóu, en alls koma yfir tuttugu
leikarar fram í leikritinu.
„Aldrei fyrr jafnhart
vegið að verzlun"
— segir Félag íslenzkra stórkaupmanna
FÉLAG islenzkra stórkaup-
manna segir I greinargerð, sem
það hefur sent frá sér ,,að aldrei
fyrr hafi verið vegið jafnhart að
verzlun og verzlunarþjónustu i
landinu með beinum, opinberum
aðgerðum og nú”.
Mótmælir það meðal annars
„slendurtekinni skerðingu á álagn
ingu verzlunarinnar”, er það tel-
ur nema 25% á siðustu fimm
mánuðum, sem og „þeim vinnu-
brögðum að nota fimmtán ára
gamla reikningsreglu við niður-
skurð álagningar”, þótt á þessu
timabili hafi bæði orðið tolla-
lækkun og vaxtahækkun. Þá er
talið, að hömlur á lánum i
viðskiptabönkum muni hafa i för
með sér, að verzlunin geti ekki
fjármagnað vörukaup, er til þarf
25% meira islenzkt fé eftir siðustu
gengisfellingu, „og er þvi mikill
samdráttur fyrirsjáanlegur i um-
svifum verzlunarinnar”.
1 greinargerð Félags islenzkra
stórkaupmanna er einhig átalinn
seinagangur við ákvörðun svo-
nefndra hliðarráðstafana, sam-
fara gengisfellingunni, sem og
dráttur, sem orðið hefur á yfir-
færslu gjaldeyris siðan i janúar,
með þeim afleiðingum, að
islenzkir innflytjendur hafa orðið
vanskilamenn erlendis. Enn
fremur segir, að innflytjendur
eigi ekki annars kost en segja upp
starfsfólki, ef þessi mál komist
ekki brátt i viðunandi horf.
Loks er lagt að rikisstjórninni
að draga verulega úr rikisút-
gjöldum og skattheimtu og sagt
að „félagsmenn skorist ekki und-
an að taka á sig þær byrðar, sem
þeim ber, til jafns við aðra þegna
þjóðfélagsins, og sanngjarnar
mega teljast”.
HEFJAST FRAMKVÆMDIR
VID HITAVEITU SUÐUR-
NESJA Á SUMRIKOMANDA ?
BH-Reykjavik. — Hin nýkjörna
stjórn llitavcitu Suðurnesja hefur
þegar lialdið sina fyrstu fundi og
er nú unnið að gagnasöfnun með
tilliti til þess, að unnt verði að
hefja fraamkvæmdir á sumri
komanda, að þvi er Jóhann Ein-
varðsson, bæjarstjóri I Keflavik
tjáði blaðinu, er það hafði sam-
band við hann i gær.
Taldi Jóhann liklegt, að gagna-
söfnun lyki innan tiðar og yrði þá
málið lagt fyrir rikisstjórnina,
sem að sjálfsögðu réði ferðinni,
þar eð fjármögnun framkvæmd-
anna væri að mestu leyti á hennar
valdi.
1 stjórn Hitaveitu Suðurnesja
sitja bæjarstjórarnir þrir, Jóhann
Einvarðsson, Eirikur Alexand-
ersson og Alfreð Alfreðsson og
fulltrúar ráðuneytanna, Ólafur G.
Einarsson og Þóroddur Th. Sig-
urðsson, en varamenn þeirra eru
Jón Skaftason og Arni Þ. Árna-
son. Stjórnin hefur skipt með sér
verkum á þann veg, að Jóhann
Einvarðsson er formaður fyrsta
árið.