Tíminn - 11.05.1975, Side 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 11. mal 1975.
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
18
hér. Ekki á fjandans lögreglustöðinni. Hann vildi
aðeins taka af þeim rakhnif inn. En Galt var náföl-
ur í andliti og starði á rakhnifinn. Hann fálmaði
eftir byssunni.
— Galt — nei, engin skotvopn, hrópaði Teasle.
En Galt fálmaði enn eftir byssu sinni og greip um
hana óf imlega. Hann hlaut að vera nýliði. Svo virt-
ist sem hann tryði því ekki, að hann miðaði byss-
unni. Hönd hans skalf og hann þrýsti á gikkinn.
Rambo mundaði rakhnifinn og risti þvert yfir
magann á honum.
Galt góndi heimskulega á djúpan og snyrtilegan
skurðinn, sem teygði sig þvert yfir magann á honum.
Skyrtan var gegndrepa af blóði, sem streymdi niður
buxur hans. Innyflin bunguðu úteinsog uppblásin slanga
á götóttu bíldekki. Hann reyndi að troða þeim inn
aftur, en þau bunguðu út eftir sem áður. Buxurnar voru
gegndrepa af blóði og rann niður um skálmarnar. Frá
hálsi hans kom skrýtið hrygluhljóð og hann féll um
stólinn og dró hann með sér í fallinu.
Rambo var þegar á leið upp stigann. Hann æddi
áfram. Hann hafði litið á Teasle og Singleton. Annar
þeirra var hjá klefunum, og hinn við vegginn. Rambo
vissi, að of langt var á milli þeirra, til að
hann gæti náð til þeirra beggja með hnífnum, áður en
annar næði að grípa til byssunnar og skjóta. Hann var
hálfnaður upp stigann, þegar fyrsta skotið glumdi að
baki hans. Það grófst í steinsteyptan vegginn við stiga-
pallinn. Efri hluti stigans sneri öfugt við þann neðri.
Hann var því úr sjónmáli. Rambo æddi upp stigann yf ir
höfðum þeirra og stef ndi að dyrunum, sem lágu að aðal-
salnum. Að baki sér heyrði hann hróp og köll. Þeir voru
neðst í stiganum. Dyrnar. Hann hafði gleymt dyrunum.
Teasle hafði ítrekað við Galt, að gleyma ekki að læsa
þeim. Hann þaut upp stigann og bað Guð þess í hl jóði, að
þeir Galt og Singleton hefðu gleymt dyrunum í látunum.
— Stanz, heyrði hann sagt að baki sér, um leið og bógur
var dreginn upp á byssu. Hann rykkti í hurðarhúninn og
þeytti opnum dyrunum. Já, þær opnuðust. Guði sé lof.
Hann var tæpast horf inn fyrir hornið, er tvær byssukúlur
grófust á kaf í skínandi hvítan vegginn andspænis hon-
um. Rambo velti vinnupalli málaranna um koll. Hann
skall niður framan við dyrnar. Plankar, málningarfötur
og stálbitar lentu í einni kös og lókuðu leiðinni.
— Hvað gengur á? spurði einhver í salnum að baki hans.
Rambo sneri sér við og sá lögreglumann, sem stóð steini
lostinn og starði á hann kviknakinn. Þar næst greip hann
til byssunnar. Rambo þaut að honum í f jórum snöggum
skrefum og sló með handarjarkanum á nefbein
mannsins. Hann greip byssuna úr höndum mannsins, er
hann hné niður. Hann heyrði að verið var að róta til
hrundum vinnupallinum. Rambo skaut tvisvar og heyrði
Teasle hrópa upp yf ir sig. Hann vonaði að skotin myndu
tef ja Teasle svo lengi, að hann kæmist að útidyrunum.
Hann komst þangað og skaut enn einu sinni að
vinnupallinum áður en hann hentist út í heita kvöld-
sólina, kviknakinn. Á gangbrautinni var gömul kona, hún
æpti upp yfir sig. Maður nokkur hægði á bíl sínum og
starði. Rambo hljóp niður útidyraþrepin og út á gagn-
stéttina, fram hjá gömlu konunni, sem enn öskraði af
skelf ingu og í átt að vinnuklæddum manni á mótor hjóli.
Manninum urðu á þau mistök að hægja ferðina, til að
skoða þetta jiánar. Þegar hann ákvað að auka á ný
ferðina,var þaðof seint. Rambo var kominn að honum og
lamdi hann af hjólinu. Maðurinn féll á götuna Hann skall
með höfuðið fyrst og gulur öryggishjálmurinn skoppaði
yf ir gangbrautina. Rambo snaraði sér á mótorhjólið og
nakin húð hans snerti svart og heitt sætið. Hjólið þaut af
stað. Hann skaut þremursíðustu kúlunum að Teasle, sem
kom hlaupandi út um stöðvardyrnar rétt í þessu. Hann
kastaði sér inn aftur, er hann sá Rambo miða. Mótor-
hjólið brunaði fram hjá dómshúsinu. Rambo tók
sikksakk króka og ruggaði hjólinu til að Teasle næði ekki
að miða á hann. Framundan var götuhorn. Þarna stóð
hópur fólks og fylgdist með. Rambo vonaði, að óttinn við
að slasa fólkið kæmi i veg f yrir að Teasle skyti. Að baki
sér heyrði hann hróð, og fólkið á götuhorninu f ramundan
hrópaði einnig. Maður nokkur hljóp f rá horninu og ætlaði
að stöðva hann. Rambo sparkaði honum frá og snögg-
beygði svotil vinstri. Hann var óhultur i bili, og nú setti
hann mótorhjólið á fulla ferð.
Tólfti kafli
Teasle taldi þrettán skot. Byssa unga mannsins var
tóm. Teasle þaut út og leit í kringum sig. Hann sá Rambo
bregða fyrir sem snöggvast, er hann hvarf fyrir horn.
Singleton miðaði byssu sinni, Teasle beindi henni niður.
— Jesús, rninn sérðu ekki fólkið þarna?
— Ég hefði getað skotið hann.
— Þú hefðir getað skotið fleiri en hann. Teasle hljóp
aftur inn á lögreglustöðina. Hann þeytti upp útidyrun-
um. Þrjár kúlur höfðu grafizt inn í álklæðninauna.
Þessi myndarlegi
keisari hefði gert
hvaö sem er fyrir
okkur... .
Við erum ekki ,Fyrst_er _ *■
ennfarin'/ . ‘iviðgerð í"flma
. Vicki. y\ vélinni.’
Og þii vildir fara!
Geiri, þú ert leiðinda
dugur.’_.
Sunnudagur
11. mai
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morguniög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar (10.10
Veðurfregnir).
tilbrigði eftir Rameau.
Rosalyn Tureck leikur á
sembal. b. Konsert i A-dúr
fyrir óbó d’amore og hljóm-
sveit eftir Bach / Tovey.
Leon Goossens og hljóm-
sveitin Philharmonia i
LundUnum leikur, Walter
Susskind stjórnar. c. Cass-
ation i G-dUr (K63) eftir
Mozart. Mozarteum hljóm-
sveitin i Salzburg leikur,
Bernhard Paumgartner
stjómar. d. Pianókonsert
nr. 4 i G-dUr op. 58 eftir
Beethoven. Wilhelm
Kempff og Filharmóniu-
hljómsveitin i Berlin leika.
Ferdinand Leitner stjórnar.
11.00 Messa i Kópavogskirkju.
Prestur: Séra Þorbergur
Kristjánsson. Organleikari:
Guðmundur Gilsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Um Landnámabók. Dr.
Sveinbjörn Rafnsson flytur
siðara hádegiserindi sitt.
14.00 ,,Að trúa á. þann gula”.
Veiðiferð með togaranum
Snorra Sturlusyni RE 219.
Þriðji og siðasti þáttur Páls
Heiðars Jónssonar.
15. Miðdegistónleikar.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Bein lina. Sigurður E.
Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri HUsnæðis-
málastofnunar rikisins,
svarar spurningum hlust-
enda. Umsjónarmenn: Arni
Gunnarsson og Vilhelm G.
Kristinsson.
17.25 Hljómsveit Franks
Chacksfieids leikur létt lög
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Borgin við sundið” eftir
Jón Sveinsson (Nonna).
Hjalti Rögnvaldsson les
þýðingu Freysteins Gunn-
arssonar (15).
18.00 Stundarkorn með banda-
riska pianóleikaranum
Doris Pines, sem leikur
verk eftir Leopold Godow-
sky.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Hvað er jóga? Sigvaldi
Hjálmarsson flytur erindi.
19.50 Unglingakór Gautaborg-
ar syngur i útvarpssal.
Stjórnandi: Gunno Palm-
quist.
20.20 Bréf frá frænda. Jón
Pálsson frá Heiði flytur.
20.40 ,,Úr myndabók Jónasar
Hallgrimssonar” eftir Pál
ísólfsson. Sinfóniuhljóm-
sveit Islands leikur, Bohdan
Wodiczko stjórnar.
21.00 ,,Það vorar á ný”
Sigriður Eyþórsdóttir og
Jón Hjartarson lesa ljóð.
21.25 Strengjakvartett nr. 3 I
es-moll eftir Tsjaikovský.
Vlach kvartettinn leikur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Heiðar Astvaldsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Mánudagur
12. mai
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.15: Valdimar örnólfsson
leikfimikennari og MagnUs
Pétursson pianóleikari (alla
virka daga vikunnar).
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. landsmálabl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55: Séra Bragi Friðriksson
flytur (a.v.d.v.). Morgun-
stund barnanna kl. 8.45:
Jóna RUna Kvaran byrjar
að lesa söguna ,,DIsu ljós-
álf” eftir Rothman. 9.05