Tíminn - 11.05.1975, Blaðsíða 36
36
TÍMINN
Sunnudagur 11. mai 1975.
O Guðmundur
fyrir mér og honum Richard Cory
I kvæði Robinson’s.
„And Richard Cory, one calm
summer night,
went home and put a bullet
through his head” sem lausl. út-
leggst (ópr)... ,,Og Richard Cory
bjó sér væran blund, tók byssu
sina og skaut sig eins og hund”.
— Og að lokum, Guðmundur,
ertu ekki, þrátt fyrir allt, nokk-
urnveginn sáttur við lifið og sam-
ferðamenn þina?
— Jú það er ég. Ég á samferða-
mönnum minum ýmsum gott að
gjalda, þeir hafa oft gefið mér ráð
og örvað mig til dáða. Ekki hafa
þeir ávallt verið sammála: Hafi
ég lagt áherzlu á ljóðagerðina,
hafa sumir talið að mér mundi
henta betur sagnagerð. Ifafi ég
farið að þeirra ráðum, gátu þeir
eins vel bent á aðrar iistgreinar.
Hvi ekki að mála? Ég væri fædd-
ur listmálari. Og ég fór að þeirra
ráðum og tók að mála og mála i
djöfli. En þá kom upp úr kafinu,
að mér mundi henta bezt að gefa
mig að hljómlist, þar sem ég
fengi alltaf velgju ef ég heyrði
þýzk ljóðalög og sæi ekkert nema
Pétur gamla Mascagni! Og ég
hafði skipti á skiðunum minum og
nærri þvi ekta Stradivariusfiðlu
og tók að iðka fiðluleik — hvað
mæltist svo illa fyrir að ráðgjafar
minir töldu að framvegis skyldi
ég stunda allar listgreinar —
nema fiðluleik! En þá var ég orð-
inn svo þreyttur á hinum ,,að-
skiljanlegu” ráðleggingum, að ég
hélt áfram að leika og leika,
þangað til ekki var eftir nema
einn strengur á fiðlunni! Ekki
varð ég þó annar Paganini, þvi
miður, en sagt er að hafi leikið á
einstrengjafiðlu og leikið bara
vei. Og dóttir min, Hrefna, tók af
mér fiðluna og fór með hana aust-
ur á land. Svona fór það. — Áður
en ég hætti þessum skriftum, vil
égsegja þetta : 1 einkalifi minu er
ég mesti hamingjuhrólfur, —
kvongaður fallegri ágætiskonu,
sem hefur umborið mig furðuvel
og breytt mér til hins betra. Ég
efast um að önnur kona hefði
tjónkað betur við mig. Það er á-
hættusamt fyrir konu að binda
sama baggann og fjöllynt skáld.
Ég er heilsuhraustur — held öli-
um pörtum likamans nema botn-
langanum! En nú er ég „aldinn
að árum” segir Orn Arnarson, og
Iiti ég til baka, þá vil ég segja
eins og hann:
,,Samt er gaman að hafa
lifað svo langan dag”.
—VS.
7'TulKLLcl
rafmagnshandf ræsari
★ Aflmikill 1500 watta
mótor
★ 22000 snún./min.
★ Léttur, handhægur
★ Aleinangraður
★ Innifalið í verði:
★ Verkfæri
★ Karbittönn
★ Lönd o.fl. o.fl.
★ Hagstætt verð
Leitið upplýsinga um
aðrar gerðir Makita
rafmagnsverkfæra
D!
ÞÓR^
SlMI S'15aa-ARMÚLA‘I1
SVALUR
eftir
Lyman Young
Gildra okkar verður að
vera fjögur fet á hæð, við