Fréttablaðið - 30.06.2005, Page 21
FIMMTUDAGUR 30. júní 2005 21
VERÐLAUN Kristján Friðrik Alex-
andersson og Sigurður Örn
Stefánsson hlutu 750 þúsund
krónum hvor, úr Verðlaunasjóði
Guðmundar P. Bjarnasonar frá
Akranesi.
Verðlaunin hljóta þeir vegna
framúrskarandi námsárangurs.
Báðir útskrifuðust úr BS-námi
við Háskóla Íslands um helg-
ina; Kristján Friðrik úr efna-
fræði og Sigurður Örn úr eðlis-
fræði.
Þeir eru þakklátir og ánægð-
ir með verðlaunin en hyggjast
verja fénu hvor á sinn hátt. Sig-
urður Örn ætlar að leggja sitt í
banka og nota til húsnæðis-
kaupa þegar þar að kemur en
Kristján Friðrik ætlar að nýta
peningana til þess að létta sér
lífið í framhaldsnámi í Oxford,
sem hann hefur í haust.
Tvímenningarnir voru
bekkjarfélagar í Menntaskólan-
um á Akureyri og kepptu saman
á Ólympíuleikunum í eðlis-
fræði.
Í Oxford ætlar Kristján Frið-
rik að læra fræðilega eðlisefna-
fræði en Sigurður Örn ætlar í
fræðilega nútímaeðlisfræði í
HÍ.
Í sumar vinnur Kristján
Friðrik á Raunvísindastofnun
Háskólans en Sigurður Örn hjá
Íslenskum orkurannsóknum.
-bþs
Afburðanemar fá vegleg peningaverðlaun:
Ver›laununum vari› í húsnæ›iskaup og nám
ÁNÆGÐIR Sigurður Örn og Kristján Friðrik fengu 750 þúsund krónur hvor úr Verðlauna-
sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar. Guðmundur fæddist á Sýruparti á Akranesi árið 1909 en
býr nú á dvalarheimilinu Höfða. Hann átti þess ekki kost að stunda háskólanám en vann
að netagerð, fiskmati og útgerð.
ANNO 2012 Svona sér listamaður
Ólympíuleikvanginn í New York-borg árið
2012 fyrir sér. Fjórar borgir hafa sótt um
að halda leikana það ár.
LÖNG LEIÐ Hestarnir sem fara milli Ont-
ario og Gimli hafa þegar verið sendir utan.
Þeirra bíður 400 kílómetra reiðtúr.
Riðið í vesturheim:
Frá Eyrar-
bakka til Gimli
Á morgun leggja fimm reiðmenn
upp í ferð frá Eyrarbakka til
Gimli í Kanada. Förin er farin til
að efla tengsl Íslendinga og Vest-
ur-Íslendinga og minnast sögu ís-
lenskra landnema í Vesturheimi.
Fimmmenningarnir heita Elín
Ósk Þórisdóttir, Karl Ágúst Andr-
ésson, Friðþjófur Ragnar Frið-
þjófsson, Lauren Arnason og Val-
ur Örn Gíslason og eru öll þaul-
vanir hestamenn. Riðið verður
sem leið liggur frá Eyrarbakka til
Hveragerðis, þaðan til Þingvalla
og loks í Mosfellsbæinn. Hópur-
inn flýgur svo utan og hefur ferð-
ina á ný í Ontario 16. júlí og áætl-
ar að vera í tvær vikur á baki uns
komið er til Gimli en 400 kíló-
metrar skilja borgirnar að.
Ungur Kanadamaður, Declan
O'Driscoll, er upphafsmaður ferð-
arinnar og ætlar hann að gera
henni skil í heimildarmynd.
Hátíð verður við pósthúsið á
Eyrarbakka á morgun þegar
hestamennirnir leggja í hann og
þeim meðal annars afhent bréf
frá Byggðasafninu í bænum til
Vestur-Íslendinga. Hátíðin og
reiðtúrinn langi hefjast klukkan
16 á föstudag. - bþs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N