Fréttablaðið - 20.07.2005, Síða 2
2 20. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Á annan tug Íslendinga halda til Afganistan:
Konur í fri›argæslu
UTANRÍKISMÁL „Stefnt er að því að
ein til tvær konur haldi til
Afganistan í haust,“ segir Arnór
Sigurjónsson, hjá íslensku friðar-
gæslunni. Í lok júlí halda tveir
hópar til þjálfunar í Noregi en í
september að þjálfuninni lokinni
halda friðargæsluliðarnir til
Afganistan. Hóparnir sem hvor
um sig skipa um átta til níu manns
er ætlað að starfa í um fjóra mán-
uði í Afganistan á vegum friðar-
gæsluliðs Atlanthafsbandalags-
ins. Konur verða þannig í fyrsta
skipti við friðargæslustörf í
Afganistan.
„Þetta eru tvö sambærileg
teymi sem fara til norðurs og
vesturs. Þau vinna endurreisnar-
og uppbyggingarstarf í sveitum
landsins og þetta er hluti af við-
leitni friðargæsluliðs Atlantshafs-
bandalagsins að stuðla að stöðug-
leika í landinu,“ segir Arnór.
Íslenskir friðargæsluliðar
starfa með norskum og finnskum
friðargæsluliðum í norðurhlutan-
um en með litháískum, lettnesk-
um og dönskum í vesturhlutanum.
- hb
Spennan magnast enn fyrir botni Miðjarðarhafs:
Lögregla og mótmælendur tókust á
GAZA, AP Ísraelskar öryggissveitir
vörnuðu andstæðingum brottflutn-
ings landnema frá Gaza-ströndinni
vegar í gær. Á sama tíma vex spenn-
an í herbúðum Palestínumanna.
Til pústra kom í gær milli ísrael-
skra lögreglumanna og fólks sem
leggst gegn rýmingu ísraelskra
landnemabyggða á Gaza-ströndinni
en þúsundir mótmælenda höfðu
komið sér fyrir í þorpinu Kfar
Maimon. Þeir ætluðu að halda til
Gaza en lögregla setti þeim stólinn
fyrir dyrnar. Þrír lögreglumenn
voru fluttir á sjúkrahús og allmarg-
ir mótmælendur voru handteknir.
Ríkisstjórnin boðar áframhald-
andi hörku í samskiptum sínum við
mótmælendur.
Á Vesturbakkanum felldu ísra-
elskir hermenn tvo palestínska
skæruliða sem sagðir eru hafa til-
heyrt samtökunum Heilagt stríð og
Al Aqsa herdeildunum.
Spenna fer vaxandi í samskipt-
um Mahmouds Abbas, forseta
palestínsku heimastjórnarinnar, og
Hamas-samtakanna. Abbas hefur
farið þess á leit við Al-Aqsa her-
deildirnar að þær gangi til liðs við
hann í baráttunni við Hamas til að
tryggja að brottflutningurinn frá
Gaza gangi snurðulaust fyrir sig. ■
MÝVATNSSVEIT Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra hefur heim-
ilað Nýsköpunarsjóði að ganga til
samninga um kaup á hlutum í fé-
lagi sem áformar að framleiða
vörubretti úr endurvinnanlegum
pappír í Mývatnssveit.
„Athuganir sýna að þetta geti
verið hagkvæmur og arðvænlegur
kostur. Nýsköpunarsjóður hefur
heimildina og metur sjálfstætt
nokkra áhættuþætti áður en lengra
verður haldið,“ segir Valgerður.
Frá því að starfsemi Kísiliðj-
unnar í Mývatnssveit var hætt í
desember síðastliðnum hefur iðn-
aðarráðuneytið hugað að því hvort
og hvernig unnt væri að nýta
mannvirki verksmiðjunnar og
reka stoðir undir atvinnulífið í
sveitarfélaginu. Til grundvallar lá
meðal annars samþykkt ríkis-
s t jórnar innar
frá árinu 2003
um 200 milljóna
króna framlag
til iðnaðarverk-
efnis í þágu bú-
setuþróunar á
landsbyggðinni.
Framleiðsla á
vörubrettum úr
endurvinnanleg-
um pappír var einn þeirra kosta
sem talinn var líklegur til að skila
árangri og var Nýsköpunarsjóði
falið að meta arðsemi og áhættu
verkefnisins síðla vetrar. Niður-
staða sjóðsins hefur nú borist iðn-
aðarráðuneytinu og er hugmynd
um pappabrettaverksmiðju talin
áhugaverð og arðbær. Stofnkostn-
aður fyrsta áfanga er áætlaður um
1.800 milljónir króna.
„Félagið sem vinnur að þessu
verkefni heitir Grænar lausnir og
unnið er að þessu í samvinnu við
franska aðila,“ segir Valgerður.
Ráðgert er að framleiða hátt í
fimm milljónir vörubretta úr 11
þúsund tonnum af úrgangspappír á
ári hverju. Þá er ætlunin að nýta
húsakost Kísiliðjunnar að ein-
hverju leyti en fyrst og fremst er
sóst eftir jarðgufuorkunni til fram-
leiðslunnar. Valgerður segir að í
fyrsta áfanga geti verksmiðjan
veitt um 20 manns vinnu. „Síðast
en ekki síst er þetta gríðarlega um-
hverfisvænn kostur. Þessi bretti
eru léttari og hreinlegri en venju-
leg trébretti og handhæg í notkun.
Ég er bjartsýn og vona sannarlega
að þetta verði að veruleika,“ segir
Valgerður Sverrisdóttir.
johannh@frettabladid.is
LÍKIN FLUTT Á BROTT Mijbil Issa var skot-
inn til bana ásamt lífverði sínum og ráð-
gjafa.
Hátt settur súnníi:
Skotinn vegna
nefndarsetu
BAGDAD, AP Mijbil Issa, einn fulltrúi
súnnía í stjórnarskrárnefnd Íraks,
var skotinn til bana ásamt tveimur
aðstoðarmönnum sínum í Bagdad í
gær.
Súnníar hafa verið í hópi þeirra
sem hvað harðast hafa barist gegn
hernámsliðinu og ríkisstjórninni
enda eru þeir mjög óánægðir með
sinn hag. Þeim voru tryggð nokkur
áhrif í stjórnarskrárnefndinni en
greinilegt er að öfgamenn vilja
auka enn frekar á óánægju súnn-
íanna með því að hræða þá frá þátt-
töku í stjórnmálum.
Fjöldi manns lést í hryðjuverka-
árásum í Írak í gær, meðal annars
voru 13 verkamenn skotnir nærri
Baqouba. ■
UNDIRRITUN SAMKOMULAGSINS Franz
Árnason forstjóri Norðurorku, Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri og Gunn-
ar Björn Þórhallsson, framkvæmdastjóri
Tengis.
Lagning ljósleiðara:
Bylting í
gagnaflutningi
TÆKNI Akureyrarbær hefur samið
við Tengi hf. um lagningu á 250 kíló-
metra löngu ljósleiðaraneti um nær
alla Akureyri á næstu árum. Kostn-
aðurinn verður um einn milljarður
króna og segir Gunnar Björn Þór-
hallsson, framkvæmdastjóri Teng-
is, að með tilkomu ljósleiðaranets-
ins opnist Akureyringum margvís-
legir möguleikar varðandi gagnvirk
samskipti, aðgengi að fjölmiðlum og
afþreyingu.
„Undanfarin þrjú ár höfum við
lagt 100 kílómetra af ljósleiðurum í
götur bæjarins. Um 200 íbúðir eru
nú þegar tengdar ljósleiðaranetinu í
tilraunaskyni en næst munum við
tengja 430 íbúðir í Naustahverfi. Að
ári reiknum við með að 1.000 íbúðir
verði tengdar ljósleiðaranetinu en
fjölbýlishúsahverfi verða í for-
gangi,“ segir Gunnar Björn. - kk
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Tjöld
-landsins mesta úrval
í Tjaldalandi við Glæsibæ
Simex Coho
2ja manna
Einfalt og skemmtilegt
göngutjald.
Þyngd 2,6 kg
Verð 12.990 kr.
SPURNING DAGSINS
Benedikt, hefur›u eitthva› á
móti almenningssundlaug-
um?
„Alls ekki, ég stunda þær líka grimmt.“
Benedikt S. Lafleur sjósundkappi ætlar að synda
í öllum fjörðum Vestfjarðakjálkans í ágúst.
NÝR RITSTJÓRI
M
YN
D
/A
P
PÚSTRAR OG ÁTÖK Í brýnu sló milli lögreglumanna og mótmælenda nærri Gaza í gær.
Ekki liggur fyrir hversu margir mótmælendurnir voru, þeir segjast hafa verið um tuttugu
þúsund en lögreglan telur að þeir hafi verið um sjö þúsund.
KÍSILIÐJAN Í MÝVATNSSVEIT Húsakynni og ýmis búnaður verksmiðjunnar kann að nýtast í nýju hlutverki.
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Ætla a› framlei›a
vörubretti úr pappír
I›na›arrá›herra segir framlei›slu á vörubrettum úr pappír álitlegan kost fyrir
M‡vetninga og hefur gefi› N‡sköpunarsjó›i heimild til kaupa á hlut í slíkri
verksmi›ju.
FRIÐARGÆSLULIÐAR Í KABÚL Konur
halda nú í fyrsta sinn til Afganistans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
FJÖLMIÐLAR Magnús Björn Ólafs-
son stjórnmálafræðinemi hefur
verið ráðinn ritstjóri Stúdenta-
blaðsins næsta vetur og tekur við
af Helgu Arnardóttir. Sjö sóttu um
starfið. Magnús hóf að skrifa
greinar í blaðið á vorönn 2004 og
var í ritstjórn blaðsins síðasta vet-
ur. Stúdentablaðið, sem varð varð
nýverið áttatíu ára, kemur út mán-
aðarlega yfir veturinn og hefur
undanfarin ár verið dreift á öll
heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Nýtt sendiráð:
Indland næst á
dagskrá
SENDIRÁÐ Davíð Oddsson utanríkis-
ráðherra gerði grein fyrir undir-
búningi að nýju sendiráði Íslands á
Indlandi á ríkisstjórnarfundi í gær.
Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður
hans, segir að hugsanlega taki það
til starfa um næstu áramót. „Þetta
er í samræmi við aukna áherslu á
samskipti við Asíu og markaði þar,“
segir Illugi. Hann bendir á tvíhliða
viðskiptasamninga sem þjóðirnar
hafi gert og samninga sem gerðir
hafa verið í nafni EFTA.
Hugsanlegt er að starfsemin í
Strassborg verði flutt til Parísar í
sparnaðarskyni um leið og kostnað-
ur utanríkisþjónustunnar í Asíu
eykst. ■
Hús í Kópavogi:
Sólarhitinn
sprengdi rú›u
ÓHAPP Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins fékk um kvöldmatarleytið í
gær tilkynningu um að sprenging
hefði orðið á þrettándu hæð fjölbýl-
ishúss við Rjúpnasali í Kópavogi.
Íbúar á tólftu hæð heyrðu
sprenginguna, sáu glerbrot falla til
jarðar og hringdu í neyðarlínuna.
Allt tiltækt lið var sent á vett-
vang en þegar að var komið sást
enginn eldur og litlar skemmdir,
einungis rúða hafði sprungið. Svo
virðist sem sólarhitinn hafi valdið
sprengingunni. - shg
02-03 19.7.2005 22:26 Page 2