Fréttablaðið - 20.07.2005, Síða 16

Fréttablaðið - 20.07.2005, Síða 16
Maðurinn hefur alltaf haft gríðar- lega þörf fyrir að segja og heyra sögur sem standa á veikum fótum og byggja á fáum eða engum stað- reyndum. Stundum eru þær sagð- ar til gamans og þá er öllum skemmt. Stundum eru þær notað- ar til að varpa ljósi á eitthvað óþekkt og dularfullt. Stundum er ótti útskýrður með ýmsum sögum sem eiga mismikið við rök að styðjast. Eitt er samt víst að sagnagleðin er til staðar og á bak við hana eru margar mismunandi ástæður. Ein sagnanna sem gengur milli manna í íslensku samfélagi í dag er sú að á Íslandi séu sífellt færri að eignast sífellt stærra hlutfall eigna á Íslandi. Bent er á Baugs- feðga, Björgólfsfeðga, Jón Ólafs- son, Bakkabræður, eigendur Sam- herja og bankastjóra KB banka og þeir sagðir hafa efnast svo mikið á síðustu árum að furðu sætir. Því ber ekki að neita að þessir einstaklingar eru efnaðir á ís- lenskan mælikvarða og að auður þeirra hefur vaxið mjög á síðustu árum. Hins vegar hafa þeir hafa ekki sankað að sér neinu sem aðr- ir áttu tilkall til og því fer líklega fjarri að samanlagðar eignir þeirra séu að vaxa í hlutfalli við eignir allra annarra á Íslandi. Staðreyndin er sú að á Íslandi hef- ur aldrei verið til meiri auður en í dag og þótt nokkrir menn séu nafngreindir breytir það engu um þá staðreynd að aldrei áður í sög- unni hafa fleiri Íslendingar átt jafnmiklar eignir. Sú þjóðsaga að á Íslandi séu ör- fáir menn að sanka að sér sífellt stærra hlutfalli eigna á Íslandi er röng. Kakan er einfaldlega að stækka og um leið allar sneiðar hennar, þar með taldar þær stóru. Önnur vinsæl sögusögn á Ís- landi á rætur sínar að rekja til upphafs kvótakerfisins á Íslandi. Sagt er að þeir sem sóttu sjóinn þegar kvótakerfinu var komið á hafi fengið eitthvað gefins, jafn- vel verðmæti. Verðmætin voru þó engin á meðan þeir sóttu ekki sjó- inn. Óplægður akur gefur lítið af sér og hið sama gildir um óveidd- an fisk. Fólk gerir sér alla jafna grein fyrir því að með því að breyta timbri og steypu í hús hafi verðlitlum hráefnum verið breytt í verðmæti og eign með notkun vinnu og erfiðis. Hví höfðu þáver- andi sjómenn ekki sama tilkall til óveidds fisksins og við höfum til launa okkar eftir langan vinnudag? Auðvitað voru sumir sem fengu meira en aðrir og aðrir sem fengu minna en sumir en heildarmyndin ætti að standa fyrir það. Sama saga er sögð af þeim sem keyptu íslensku ríkisbankana, sama hverjir þeir svo sem voru. Var ríkið ekki að gefa þeim bank- ana úr því þeir hafa hækkað svona mikið í verði síðan þeir voru seldir? Svarið er nei. Bank- arnir urðu fyrst verðmætir þegar ríkið hafði sleppt þeim úr klóm sínum og eigendur þeirra hafa eðlilega notið þess. Þegar ríkið á eitthvað er það einfaldlega verð- minna en þegar ríkið á það ekki. Við lifum í samfélagi sem byggist á einstaklingsframtakinu, dugnaði og viljanum til að vinna. Sumir geta samt ekki notið árang- urs annarra og telja að eins manns gróði hljóti að vera annars manns tap. Ef einn auðgast hlýtur annar að verða fátækur. Þegar einn skapar verðmæti úr verð- leysu hlýtur annar að hafa misst spón úr aski sínum. Gott er þá að vita til þess að ekkert slíkt á við rök að styðjast. Þeir fáu og ríku draga bátinn fyrir okkur öll og þegar þeir berjast áfram í lífinu við að skapa verðmæti og eignir handa sjálfum sér eru þeir að stækka kökuna sem við hin höfum til umráða. Engin saga eða goð- sögn breytir þeirri stað- reynd. 20. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR SJÓNARMIÐ JÓN KALDAL FRÁ DEGI TIL DAGS Í DAG ÞJÓÐSAGNAGLEÐI GEIR ÁGÚSTSSON VERKFRÆÐINGUR Sú fljó›saga a› á Íslandi séu örfáir menn a› sanka a› sér sífellt stærra hlutfalli eigna á Íslandi er röng. Kakan er ein- faldlega a› stækka og um lei› allar snei›ar hennar, flar me› taldar flær stóru. Tvær fljó›sögur Jón og Guðrún Sú var tíð í þessu landi að ekkert var flókið við nafngiftir. Foreldrar barna völdu þeim nöfn og presturinn sá um blessunina og bókfærsluna. Fólk var vanafast og allur þorri foreldra kaus hefðbundin nöfn eins og Jón og Guð- rún; í fyrsta manntali sem tekið var 1703 hét fjórði hver maður Jón og fimmta hver kona Guðrún. Svo voru auðvitað auðvitað litríkari nöfn eftir tísku og tíðar- anda hverju sinni. Þegar Napóleon keis- ari var til dæmis dáður og dýrkaður um alla Evrópu kom fyrir að börn við ysta haf væru látin heita í höfuðið á honum. Þótti sjálfsagt enda litið svo á að nafn- gift væri einkamál hverrar fjölskyldu og hvers einstaklings. Ekki hvarflaði að fólki á þeim tíma að slíkt höfðingjanafn gæti skaðað „málkerfi tungunnar“, enda hefðu menn þurft að láta segja sér tvisvar að slíkt fyrirbæri væri til. Enginn Napóleon Nú eru aðrir tímar. Mannanafnanefnd rík- isins vakir yfir nafngiftum í landinu. Gefur út lista yfir nöfn sem heimilt er að bera. Úrskurðar um nýmæli og vafaatriði. Bannar og fordæmir. Ekki er Napóleon á nafnaskrá ríkisins. Og ekki nútímahöfð- ingjar eins og Bush og Blair. Meginreglan fyrir samþykki nafna er að þau samræm- ist beygingarkerfi íslenskr- ar málfræði. Ef ekki, verða þau að minnsta kosti að eiga sér óslitna hefð í málinu. Hið síðar- nefnda er skýringin á því að á hinni opin- beru nafnaskrá eru ýmis útlend manna- nöfn eða óbeygjanleg. Óvinsæl lög Úrskurðir Mannanafnanefndar eru gjarn- an tilefni frétta í fjölmiðlum. Ástæðan er líklega sú að mörgum finnst að ósam- ræmis – jafnvel ósanngirni – gæti stund- um í úrskurðum nefndarinnar. Hitt vegur ekki síður þungt að meðal landsmanna virðist engin sátt um reglur mannanafna- laganna. Á vefnum politik.is var rifjað upp í vikunni að þegar Gallup spurði að því fyrir tíu árum hvort eðlilegt væri að ríkið hefði afskipti af nafngiftum fólks hefðu innan við 20% svarenda verið sammála lögunum. Af umtali um mannanöfn í þjóðfélaginu má ætla að viðhorfin hafi lítið breyst á þessum tíma. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA Fréttastofa Ríkissjónvarpsins flutti í gærkvöld þau nöt-urlegu tíðindi að íslenskir unglingar eru líklegri enjafnaldrar sínir víða um Evrópu til að hafa prófað að sniffa. Samkvæmt nýjustu samanburðartölum við önnur lönd hafa tólf prósent 15 til 16 ára íslenskra krakka sniffað og er ástandið hvergi verra á Norðurlöndunum en hér, að Grænlandi undanskildu. Í fréttinni kom einnig fram að sniff eykst þegar slaknar á umræðunni um hversu hættulegt það er, en eins sorglega og það hljómar virðist þurfa fréttir um að einhver unglingur- inn hafi skaðað sig á sniffi til þess að aðrir taki sönsum. Hvað er til ráða? Efnin sem unglingarnir sniffa af eru allt í kringum okkur, lím, gas, kveikjarabensín og jafnvel túss- pennar sem hægt er að nálgast í næstu ritfangaverslun. Ekki er hægt að banna sölu þessara efna eða hefta aðgang unglinga að þeim. Það eina sem hægt er að gera er að tala við krakkana og útskýra fyrir þeim hversu glórulaust rugl sniffið er og vona að þau taki mark á fræðslunni. Það er athyglisvert að bera saman sniff og neyslu ólög- legra fíkniefna. Hvatinn að baki neyslunni er í báðum tilfell- um eftirsókn í vímu og eflaust að einhverju leyti bannhelg- in sem hvílir yfir þeim; á ákveðnu æviskeiði getur þörfin fyrir að gera uppreisn gegn löglegum gildum rekið fólk til að gera ótrúlegustu dellu. En samanburðurinn nær ekki lengra. Sá sem selur unglingi í sakleysi sínu tússpenna, sem unglingurinn notar síðan til þess að sniffa af og stórskaða sig, er ekki kallaður „sölumaður dauðans“. Samfélagið varp- ar ábyrgðinni ekki á ritfangavörukaupmanninn, heldur með réttu á fíflsku unglingsins og foreldrana fyrir að hafa ekki sinnt uppeldishlutverki sínu. Auðvitað er reginmunur á því að selja einhverjum dóp og því að selja kveikjarabensín eða límtúpu sem síðan eru notuð til að komast í vímu. Engu að síður er það þörf hug- vekja fyrir íslenska foreldra og ekki síður stjórnmálamenn, sem slá um sig með frösum um aukna fjárveitingu til fíkni- efnalöggæslu, að vandinn verður seint leystur með vald- boðum. Á meðan eftirspurnin er mikil eftir dópi verður framboð- ið af dópi nóg. Sama hversu mörg kíló tollgæslan gerir upp- tæk og margir eiturlyfjasalar verða settir bak við lás og slá, ekkert mun breytast nema það takist að ná fram hugarfars- breytingu gagnvart eðli fíkniefnaneyslunnar. Áherslan á sölumenn og innflytjendur eiturlyfja er alltof veigamikil. Baráttan verður að hefjast inni á heimilunum. Skólinn og aðrar opinberar stofnanir hafa svo sannarlega mikilvægu hlutverki að gegna þegar kemur að forvörnunum en umfram allt þarf fólk að horfa inn á við og velta fyrir sér hvernig það getur forðað börnum sínum frá því að misnota fíkniefni, hvort sem það er tóbak, brennivín eða eitthvað annað. ■ LANDSBANKINN „Bankarnir urðu fyrst verðmætir þegar ríkið hafði sleppt þeim úr klóm sínum og eigendur þeirra hafa eðlilega notið þess,“ segir greinarhöfundur. Hvernig á að berjast gegn vímuefnum sem hægt er að nálgast í næstu ritfangavöruverslun? Sniff, eiturlyf og ábyrg› foreldra 16 leiðari 19.7.2005 22:26 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.