Fréttablaðið - 20.07.2005, Síða 42
„Vinir“ Búða
Líklegt er að svokallaðir „vinir“
Hótel Búða séu ekki miklir vinir
hótelsins lengur. Fyrir síðustu
helgi sendi forsvarsmaður hót-
elsins, Úlfar Ingi Þórðarson, til-
kynningu á póstlista, sem „vin-
irnir“ eru skráðir á, um væntan-
legt golfmót í nágrenni Búða.
Einn viðtakenda var Páll Kr.
Pálsson framkvæmdastjóri hjá
Vaði og frumkvöðull í íslensku
viðskiptalífi. Páll svarar tölvu-
póstinum og biður Úlfar um að
láta sig hafa listann yfir netföng
„vinanna“. Í staðinn býður hann
Úlfari póstlista Sæferða, sem
geymi 2.500 netföng. Í svari sínu
er Úlfar tregur að verða við
beiðni Páls því að viðskiptavinir
Búða vilji ekki óumbeðinn póst.
Páll ítrekar beiðni sína og segir
„fullt af fínum nöfnum“ á sínum
lista. Greinilegt er að Úlfar
gefur eftir og ætlar að afhenda
Páli listann yfir „vinina“. Í svari
sínu gerir hann hins vegar þau
mistök að senda póstinn á sjálfa
„vinina“ sem um leið sjá hvað fé-
lögunum fór áður á milli. „Vin-
irnir“, sem margir hverjir eru
áberandi í viðskiptalífinu, vita
hins vegar ekki hvort Úlfar fékk
listann yfir 2.500 viðskiptavini
Sæferða.
Hvar er KB?
Bandaríska verslunarkeðjan Wal
Mart er stærsta fyrirtæki í
heimi samkvæmt lista Forbes
yfir þau fimm hundruð stærstu.
Tekjur Wal Mart námu á síðasta
ári tæpum nítján þúsund mill-
jörðum króna. British Petroleum
varð í öðru sæti með litlu minni
tekjur og bandaríska fjarskipta-
fyrirtækið Exxon Mobil í því
þriðja. Langstærsta fyrirtæki á
Norðurlöndum er norski ríkis-
olíurisinn Statoil sem lenti í 95.
sæti. Ekkert íslenskt fyrirtæki
komst á listann, KB banki var
hvergi nálægur enda bara átt-
undi stærsti banki í Skandinavíu.
Ríkisrisinn vaknar
Póst- og fjarskiptastofnun leggur
drögin að því að setja sérstakar
kvaðir á Símann og Og Vodafone
þar sem bæði fyrirtækin eru
sögð hafa umtalsverðan mark-
aðsstyrk í gegnum rekstur eigin
farsímanets. Og Vodafone horfir
nú framan í þá staðreynd að
Síminn verður einkavæddur í
sumar. Búast má við því að það
leysi verulegan drifkraft úr læð-
ingi, sem býr í góðu starfsfólki
og tæknibúnaði. Reynslan af
einkavæðingu ríkisbankanna
ætti að klingja einhverjum bjöll-
um í hugum stjórnenda Og Voda-
fone á meðan þeir undirbúa sig
undir harðnandi samkeppni. Í
árslok 2004 var fjöldi viðskipta-
vina Símans, mælt í fjölda GSM-
farsímanúmera, 173 þúsund.
Sambærileg tala fyrir Og Voda-
fone er 95 þúsund notendur.
0,3 211 253Verðbólga á Íslandi reyndist aðeins 0,3 pró-sent í júní samkvæmt samræmdri vísitöluneysluverðs Hagstofunnar. KB banki er 211. stærsti banki heims. Landsbankinn færðist upp um 253. sæti álista stærstu banka heims.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
B A N K A H Ó L F I Ð
01_20_Markadur lesið 19.7.2005 16:38 Page 2