Fréttablaðið - 20.07.2005, Side 62
30 20. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Lárétt: 1 mótar, 6 ónn, 7 fersk, 8 fimmtíu
og einn, 9 austur-þýskaland (sk.st.)10
borsveif, 12 nár, 14 sleip, 15 endalok í
boxi, 16 bogi, 17 bein, 18 trjónu.
Lóðrétt: 1 gjóta, 2 forfaðir, 3 ónefndur, 4
andagift, 5 vesæll, 9 fara sér ekki óðs-
lega, 11 alda, 13 hreysi, 14 kátur, 17
sólguð.
Lausn.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Mörg hundruð manns hafa nú far-
ið í leikprufu hér á landi til að
freista gæfunnar fyrir aukahlut-
verk í næstu kvikmynd Clints
Eastwood, Flags of Our Fathers,
en myndin verður að hluta til tek-
in upp hér á landi.
Að sögn Alexíu Bjargar Jó-
hannesdóttur, ráðningastjóra hjá
Casting, eru prufurnar enn í full-
um gangi en auk stadista er verið
að leita eftir leikurum í þrettán
textahlutverk.
Fjörutíu manna hópur ís-
lenskra karlmanna berst nú um
hlutverkin þrettán en Alexía og
ráðningastjórinn Phyllis Huffman
vinna nú að því að þrengja hópinn
enn frekar. Phyllis Huffer hefur
verið hægri hönd Eastwoods þeg-
ar kemur að hlutverkavali í kvik-
myndum hans og var hún meðal
annars ráðningastjóri fyrir Ósk-
arsverðlaunamyndina Million
Dollar Baby.
Sagt var frá því í Fréttablaðinu
að sjónvarpsstjarnan Auðunn
Blöndal hefði tekið þátt í leikpruf-
unum. Félagar hans, þeir Sveppi
og Pétur, hrekktu drenginn og sáu
til þess að hann var látinn leika
hermann í dauðateygjunum.
Hrekkurinn virðist þó ekki hafa
skemmt fyrir Audda, að minnsta
kosti ekki enn sem komið er, því
hann er einn af þeim fjörutíu sem
koma sterklega til greina í hlut-
verk í kvikmyndinni.
Í næstu viku kemur í ljós
hverjir hinna fjörutíu komast
áfram en sá hópur kemur til með
að hitta leikstjórann í eigin per-
sónu. Mun þá Eastwood sjálfur
skera úr um hvaða íslensku karl-
menn fá hlutverk í myndinni. ■
Mætir Auddi Eastwood?
CLINT EASTWOOD Þrettán íslenskir karl-
menn eiga möguleika á að fara með texta-
hlutverk í Flags of Our Fathers.
Í haust mun íslenska útgáfan af
Piparsveininum hefja göngur
sínar. Það er Skjár einn sem hef-
ur keypt hugmyndina af þættin-
um frá Bandaríkjunum en Saga
Film mun framleiða þá fyrir
stöðina. Bandaríska útgáfan af
Bachelor hefur verið feikilega
vinsæl hjá áhorfendum stöðvar-
innar. Magnús Ragnarsson segir
að þeir geri miklar væntingar til
þáttarins. „Þetta verður stjarnan
á dagskránni hjá okkur,“ segir
hann, fullur bjartsýni.
Jón Ingi Hákonarson verður
umsjónarmaður þáttarins og
mun kynna þátttakendur þegar á
hólminn er komið en Maríanna
Friðjónsdóttir sér um fram-
leiðslu þáttanna hjá Saga Film.
Hún segir að viðtökurnar hafi
verið góðar. „Þetta gengur ljóm-
andi vel og við erum að vinna úr
umsóknum.“ Hún segir að stúlk-
urnar sem sótt hafi um séu flest-
ar vænlegar. „Þetta eru góðir
kvenkostir. Gullfallegar, að inn-
an jafnt sem utan,“ bætir hún
við.
Að sögn Maríönnu verða þætt-
irnir ekki niðursoðinn bandarísk-
ur raunveruleiki heldur verður
hann sniðinn að íslensku um-
hverfi. „Íslenska eðlið er öðruvísi
en það bandaríska og við munum
ekki keyra eins mikið á dramatík-
inni eins og í fyrirmyndinni,“ seg-
ir hún en bætir við að dramatíkin
verði óhjákvæmilega aldrei langt
undan. Þá er hvergi gerð krafa um
að þau tvö sem eftir standa gangi
í það heilaga. „Keppendur eiga að
hafa gaman af þessu,“ segir Marí-
anna.
Leitin að hugsanlegum tengda-
syni Íslands er einnig í fullum
gangi þó að færri drengir hafi sótt
um. „Við fylgjum eftir ákveðnum
hagtölum. Karlmenn um þrítugt
eru að leita sér að kvonfangi en
konur í kringum 26 ára eru að
leita sér að mannsefni,“ segir hún.
Þær kröfur eru gerðar til karl-
manna að þeir séu með hreint sak-
arvottorð, hreina samvisku, hafi
heilbrigð áhugamál og jákvæð
lífsviðhorf. „ Við erum að leita að
manni sem íslenskar konur gætu
hugsað sér sem eiginmann eða
tengdason.“
Ekkert verður til sparað svo að
upplifunin verði sem allra mest
og best. Farið verður með kepp-
endur á staði sem þeim hefur
aldrei dottið í hug að þeir myndu
fara á og einhverjir verða svo
lánsamir að fara til útlanda. Hvað
verðlaunin varðar segir Maríanna
að enn sé verið að vinna í þeim.
„Stærstu verðlaunin verða auðvit-
að upplifunin af því að taka þátt í
svona þætti.“
freyrgigja@frettabladid.is
JÓN INGI HÁKONARSON Þessi geðþekki leikari mun leiða íslenska áhorfendur í gegn-
um leitina að tengdasyni Íslands.
ÍSLENSKI PIPARSVEINNINN: MARGIR VILJA VERA MEÐ
Leitin að tengdasyni
Íslands hafin
...fær Sveinborg Hauksdóttir fyrir
að fæða þríbura, tvær stúlkur og
einn dreng, á aðeins fimmtán
mínútum.
HRÓSIÐ
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lárétt: 1hannar, 6ofn, 7ný, 8li, 9ddr,
10dór, 12lík, 14hál, 15ko, 16ýr, 17rif,
18rana.
Lóðrétt: 1hola, 2afi, 3nn, 4andríki, 5
rýr, 9dól, 11bára, 13kofi, 14hýr, 17ra.
M
YN
D
/©
R
EU
TE
R
S
ÓLJÓST HVERSU UM-
FANGSMIKIÐ
Já, það er vændi á Ís-
landi. Hversu skipulagt
það er veit ég ekki. Það
voru teknar stikkprufur
á nektarstöðunum þeg-
ar þeir voru og hétu og
þá var nánast hægt að
fá hvað sem er hvenær
sem er. Þess utan eru
greinilega vændisaug-
lýsingar á hinum ýmsu
netmiðlum. Svo það er augljóslega vændi til
staðar á Íslandi og virðist vera kúnnahópur
hér fyrir þetta. Hins vegar er óljóst hversu
umfangsmikið vændið er.
VERÐUM AÐ UPPRÆTA
VÆNDI
Já, maður óttast það að
skipulagt vændi sé til
staðar á Íslandi. En við
verðum að nota öll til-
tæk ráð til að uppræta
vændi og meðal annars
að breyta lögunum í þá
átt að kaupendur vænd-
is verði gerðir refsiábyrg-
ir. Að sama skapi tel ég
mikilvægt að seljandi
vændis sé ekki gerður
refsiverður því vanda hans ber að leysa
með félagslegum úrræðum en ekki
refsiréttarlegum úrræðum.
ALLT ANNAÐ ER TIL
Já, stórt er spurt. Ekki
svo ég viti til en þar
sem allt annað er til á
Íslandi þá er skipulagt
vændi pottþétt líka til
staðar. Það er ýmislegt
varðandi íslenskt rétt-
arkerfi sem þarf að at-
huga og þetta er einn
dropi í það risastóra
haf. Yfirleitt er það nú
seljandinn sem er fórnarlambið þegar kem-
ur að vændi en svo er ekki í öllum tilfellum.
Ég held alveg örugglega að það sé vændi á
Íslandi og að mínu mati ætti kaupandinn
að vera refsiverður en ekki seljandinn.
ÞRÍR SPURÐIR
GÍSLI HRAFN ATLA-
SON MANNFRÆÐ-
INGUR.
ÁGÚST ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON, ÞING-
MAÐUR SAMFYLK-
INGARINNAR.
MAGNI ÁSGEIRSSON
TÓNLISTARMAÐUR.
ER SKIPULAGT VÆNDI Á ÍSLANDI?
Frétt Blaðsins frá því í gær þessefnis að hugmyndin að grín-
innslögum Bananaz stelpnanna,
Írisar Daggar Pétursdóttur og Lilju
Katrínar Gunnarsdóttur, væri stolin
af Skjá einum kom flatt upp á þær
stöllur sem skemmta áhorfendum
sjónvarpsstöðvarinnar Sirkus í
Kvöldþætti Guðmundar Steingríms-
sonar. Samkvæmt frétt Blaðsins
höfðu Rósa Guðmundsdóttir og
Þórdís Filipsdóttir komið að máli
við Helga Hermannsson, þáverandi
dagskrárstjóra Skjás eins, og kynnt
fyrir honum hugmyndir
að stuttum grín-
innslögum sem
Hermann á svo
að hafa tekið
með sér þegar
hann hóf störf
hjá 365 sem gef-
ur meðal annars
út Fréttablaðið og rekur Sirkus. Hin-
ar einu og sönnu Bananz, Íris
og Lilja, standa hins vegar
harðar á því að hugmyndin
að innslögunum sé þeirra
og í raun voru þær
löngu byrjaðar að fikta
við dagskrárgerð af
þessu tagi áður en
Sirkus kom til sögunnar.
Þessar ávirðingar um
hugmyndaþjófnað séu
því rakalausar og eigi sér enga stoð
í raunveruleikanum.
Stelpurnar hafa þar fyrir utanaldrei hitt Helga Hermannsson að
máli og leituðu beint til Guðmundar
Steingrímssonar og sýndu honum
drög að innslögum sínum en Guð-
mundur ritstýrir Kvöldþættinum auk
þess sem hann er í eldlínunni í út-
sendingunni. Blaðið hefur tekið til-
raunum Írisar og Lilju til þess að
koma sínum sjónarmiðum á fram-
færi fálega en svo undarlega vill til
að einn reynslumesti blaðamaður
Blaðsins, Andrés Magnússon, skrif-
aði bananafréttina sem þykir svona
kengbogin. Andrés sem ætti að vera
hokinn af reynslu í fjölmiðlum virðist
því ekki síst kunna ýmislegt fyrir sér
í svokallaðri „krana-
blaðamennsku“ sem
gengur út á það skrúfa
frá einum heimildar-
manni í frétt en virða
önnur sjónarmið að
vettugi.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
62-63 (30-31) Folk 19.7.2005 19:20 Page 2