Fréttablaðið - 30.07.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 30.07.2005, Síða 2
2 30. júlí 2005 LAUGARDAGUR Ágætis veður víðs vegar um land í upphafi verslunarmannahelgarinnar: Búist er vi› tíu flúsund gestum í Eyjum VERSLUNARMANNAHELGIN Veðurblíða lék við hátíðagesti um allt land í gær og víðast er spáð áframhald- andi góðviðri. Mikil umferð hefur verið víðast hvar um landið. Flestir gestir voru í Vestmanna- eyjum í gær. Þar hefur allt farið vel fram þótt mestur fjöldi þjóðhátíðar- gesta hafi mætt á svæðið í gær. Bú- ast má við að níu þúsund gestir séu nú á Þjóðhátíð. Á Akureyri byrjaði fólk að streyma í bæinn seinnipartinn. Lögreglan bjóst við að umferðin myndi ná hámarki upp úr mið- nætti. Tjaldstæðið í Þórunnar- stræti var orðið fullt um átta- leytið í gær en nóg pláss var eftir á tjaldsvæðinu í Hömrum. Um þúsund manns voru í Galta- læk undir kvöld í gær. Ekki sást vín á nokkrum manni en rappsveitin Hæsta hendin var að fara að spila þegar Fréttablaðið talaði við lög- regluna í Rangárvallasýslu. Í Neskaupstað fór straumurinn að koma á Neistaflugið um þrjú í gær og fór gestafjöldinn vaxandi upp úr því. Fjöldi gesta lá þó ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. - grs Tengsl forstjóra Símans við nýja eigendur: Ómakleg gagnr‡ni segir fjármálrá›herra SÍMINN Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar hefur gagnrýnt tengsl Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Símans, við einstaka bjóðendur í fyrirtækið. Þar er átt við aðaleigendur Bakka- varar sem fara með stærsta ein- staka hlutinn í Skiptum ehf. Geir Haarde gefur lítið fyrir slíka gagnrýni og þykir hún ómak- leg enda hljóti allir bjóðendur að sitja við sama borð. Geir segir rétt að nota hluta andvirði Símans til þess að greiða niður skuldir ríkissjóðs. „Það er góð ráðstöfun og lagar stöðuna ríkissjóðs til framtíðar,“ segir Geir. Gengið verður til samninga við Skipti ehf. sem var bauð hæsta verðið fyrir Símann eða 66,7 millj- arða króna. Geir segir að sú upp- hæð verði að fullu greidd þegar búið verður að yfirfara öll atriði, meðal annars af Samkeppniseftir- litinu. Hann tekur undir með Hall- dóri Ásgrímssyni og Davíð Odds- syni um að nota eigi hluta andvirð- isins til samfélagslegrar uppbygg- ingar. „Það hefur verið nefnt há- tæknisjúkrahús á lóð Landspítal- ans. Það kostar á fjórða tug millj- arða eða um helming þess sem fékkst fyrir Símann og byggingar- tíminn er langur. Einnig hefur verið nefnt að ráðstafa mætti hluta fjárins til uppbyggingar á fjar- skiptakerfi landsmanna, sam- göngumannvirkjum og fleira,“ segir Geir. - jh Meintir sprengju- menn handteknir Breska lögreglan handtók í gær tvo af fleim fjórum mönnum sem voru eftirl‡stir fyrir sprengjutilræ›in 21. júlí. Alls eru nú 20 manns í haldi vegna málsins. BRETLAND, AP Sérsveitarmenn bresku lögreglunnar, vopnaðir hríðskotabyssum og táragasi, gerðu áhlaup á tvær íbúðarblokk- ir í vesturhluta Lundúna í gær og handtóku þar að minnsta kosti þrjá menn sem grunaðir eru um að hafa verið viðriðnir misheppn- uðu sprengjutilræðin í jarðlestum og strætisvagni í borginni hinn 21. júlí síðastliðinn. Nöfn hinna handteknu voru ekki gefin upp að svo stöddu, en sam- kvæmt heimildum Sky-sjónvarps- stöðvarinnar voru þar á meðal að minnsta kosti tveir af þeim fjórum mönnum sem lögregla hafði lýst eftir, grunuðum um að hafa komið sprengjunum fyrir. Einn fjórmenn- inganna var handtekinn í Birming- ham á miðvikudag. Samkvæmt heimildum frétta- vefs BBC eru þessir tveir menn þeir sem eftirlýstir voru fyrir að hafa reynt að sprengja heimatil- búnar sprengjur í strætisvagni á Hackney Road og í jarðlest við Oval-stöðina á fimmtudeginum fyrir rúmri viku. Þá handtók lögregla einnig tvær konur á Liverpool Street- lestarstöðinni í miðborg Lund- úna í gær. Stöðin var rýmd er handtökurnar fóru fram. Að sögn vitna stóð önnur konan í biðröð í lestina til Stansted-flug- vallar er lögreglumenn skelltu henni í gólfið. Ekki lá fyrir hvort talið væri að hinar handteknu tengdust sprengjutilræðunum. Íbúðarblokkirnar þar sem hinir grunuðu voru handteknir eru í Notting Hill-hverfinu. Í grennd við aðra þeirra er garð- ur þar sem sprengja fannst í bakpoka um síðustu helgi. Sá fundur vakti grun um að sprengjumennirnir hefðu verið fimm en ekki fjórir. Sky News-stöðin greindi einnig frá því að einn maður enn hefði verið handtekinn í Hack- ney í Austur-Lundúnum, en það var í því hverfi sem reynt var að sprengja sprengju í tveggja hæða strætisvagni 21. júlí. Á fimmtudag handtók lög- regla níu menn í áhlaupi á hús í Tooting-hverfi í suðurhluta borgarinnar. Alls eru nú 20 manns í haldi í tengslum við rannsókn sprengjuárásanna. audunn@frettabladid.is Flytur sig um set: Mun heita Rökkurbarinn SKEMMTANALÍFIÐ Öldurhúsinu Kaffi Austur- stræti var lokað fyrir fullt og allt í gær en eig- andi þess ætlar að flytja starf- semina yfir í H a f n a r - stræti. Nýr staður mun heita Rökkur- barinn og verður á bak við Gauk á Stöng. „Ég stefni að því að hafa annað yfirbragð á nýja staðn- um,“ segir Óskar Örn Ólafsson. Hann vonast þó til þess að halda í flesta fastakúnnana. „Ég hef ekkert yfir þeim að kvarta.“ Óskar missti leiguhúsnæðið í Austurstræti og keypti þetta húsnæði. „Ég býst við að vera þar næstu áratugina.“ - grs RÁÐHERRA Á TOPPNUM Sigríður Anna Þórðardóttir ráðherra uppi á Hvannadals- hnúki. Hvannadalshnúkur: Mælingunum er loki› UMHVERFI Störfum mælinga- manna sem vilja fá endanlega niðurstöðu á það hve hár Hvannadalshnúkur er lauk í gær stuttu eftir klukkan tvö og nú taka útreikningar við. Búist er við að niðurstaða þeirra liggi fyrir á miðvikudaginn í næstu viku. Mælingar stóðu yfir í rúma tvo sólarhringa. Tveir voru að störfum uppi á jöklinum og þrír voru á jörðu niðri. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra fór upp á jökulinn í gær og lauk mælinga- störfum. - grs Fréttablaðið: Kemur næst út á flri›judag ÚTGÁFA Fréttablaðið kemur næst út þriðjudaginn 2. ágúst. Upplýsingar vegna dreifingar blaðsins er hægt að fá í síma 550 5000 í dag frá kl. 8 til 18. Afgreiðsla og skiptiborð Fréttablaðsins í Skaftahlíð verður lokuð í dag og á morgun en opin á mánudag frá klukkan 11 til 16. ■ Flóð á Indlandi: Yfir sjö- hundru› látnir BOMBAY, AP Nær 750 hafa látist í flóðum af völdum monsúnrign- inganna í Bombay og nágrenni á um það bil einni viku. Aldrei hafa fleiri látist á þessum slóð- um í monsúnflóðum, að sögn ráðamanna í héruðunum. Björgunarmenn leita nú að líkum og þykir nær öruggt að mun fleiri fórnarlömb flóðanna muni finnast á næstu dögum. Á fimmtudaginn var rigningin svo mikil að nær metra þykkt vatns- lag lagðist yfir götur Bombay. Stór hluti rigningarinnar kom á örfáum klukkutímum svo að vegir breyttust í beljandi stór- fljót og skriður eyðilögðu fjöldamörg heimili. ■ Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 27.530 kr. á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára. Innifalið: Flug, gisting á Paraiso í 7 nætur 4. eða 11. janúar og flugvallarskattar. 39.530 kr. á mann ef 2 ferðast saman. Netver› frá Kanarí -frábær tilboð í allan vetur! Jólaferðir 17. 19. 20. 21. og 29. desember Netverð frá:46.199 kr. á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman. Innifalið er flug, gisting á Paraiso í 8 nætur 21. des. og flugvallarskattar. 53.130 kr. á mann ef 2 ferðast saman. SPURNING DAGSINS Frosti, fraustu flegar flú fékkst fréttirnar? „Ég er alveg svellkaldur.“ Frosti Bergsson er skattakóngurinn í ár og þarf að greiða 123 milljónir króna í skatt. LEIDDUR Á BROTT Á þessari mynd úr sjónvarpi sjást lögreglumenn hylja andlit eins þeirra manna sem þeir handtóku í Notting Hill í gær. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P Á LEIÐ Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM Þessar bráðhuggulegu ungu stúlkur voru á leiðinni til Vestmannaeyja um níuleytið í gærkvöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M SÍÐASTA KVÖLDIÐ Hinu alræmda Kaffi Austurstræti var lokað eftir gærkvöldið og flytur það í Hafnar- stræti. GEIR HAARDE FJÁRMÁLARÁÐHERRA „Hátæknisjúkrahús kostar á fjórða tug milljarða eða um helming þess sem fékkst fyrir Símann.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.