Fréttablaðið - 30.07.2005, Blaðsíða 62
46 30. júlí 2005 LAUGARDAGUR
Það er ekki annað hægt að segjaen að Landsbankinn sé frjáls og
óháður. Á miðvikudagskvöldið var
heilt tökulið að
mynda auglýsingar
fyrir bankann á
veitingahúsinu
Kaffibrennslunni.
Aðalleikarar
auglýsinganna
voru allir
samkyn-
hneigðir og
spilaði
Andrea Jónsdóttir rokkamma
stóra rullu. Mikið var lagt í stíliser-
ingu, hár og förðun en ljósmynd-
unin sjálf var í hönd-
um Ara Magg. Það
vakti athygli gesta að
staðurinn skyldi leyfa
tökur á þessum
annatíma enda
voru þær mjög
truflandi. Voru
gestir að velta
því fyrir sér
hvort bankinn
hefði leigt neðri
hæð staðarins
eða hvort Kaffi-
brennslan væri í svona góðu við-
skiptasambandi við bankann.
Myndlistar- og myndasögumað-urinn Hugleikur Dagsson er
ritstjóri nýs myndasögublaðs, Very
nice comics, en fyrsta heftið kom
út fyrir helgi. Blaðið er til sölu í
verslununum Nexus, 12 Tónum,
Dogma, Ranimosk og Ósóma. Þá
ætlar Hugleikur að bjóða blaðið til
sölu á markaðnum í bakgarði
skemmtistaðarins Sirkus við Klapp-
arstíg í dag. Hugleiki til halds og
trausts á við-
skiptasviðinu
verður svo
stallsystir
hans Lóa
Hjálmtýs-
dóttir, sem
á sögur í
blaðinu líkt
og Hugleik-
ur, Ómar
Örn Hauks-
son og marg-
ir fleiri.
Humar
1.290,-kr.kg
Ótrúlegt verð á fínum humri.
1.290,-kr.kg
Ótrúlegt verð á fínum humri.
r
kr.kg
Humar
Tuttugu og fjögur ár eru síðan lagið
Prins Póló kom út en það var Magn-
ús Ólafsson leikari sem söng það
ásamt Sumargleðinni. Lagið sló
eftirminnilega í gegn þá en nýverið
skellti Magnús sér inn í hljóðver og
tók lagið aftur upp. „Þetta er ný út-
setning fyrir nýja kynslóð, rokkaðri
og harðari. Það er hægt að dansa
eftir þessu,“ segir Magnús og telur
ekki leika nokkurn vafa á því að
lagið gæti orðið vinsælt aftur.
Magnús og félagar hafa bætt við
einni útgáfu af laginu því það er
einnig sungið á pólsku. Eins og
flestum ætti að vera kunnugt er
Prins Pólo einmitt upprunið frá Pól-
landi. „Björn Guðmundsson, gamli
framkvæmdastjórinn hjá Ásbirni
Ólafssyni, vildi að ég færi til Pól-
lands á sínum tíma og syngi það á
pólsku. Það varð því miður ekkert
úr því,“ segir Magnús en nú hefur
hann sem sagt bætt um betur. „Ég
fékk Irek Klonovsky, sem er efna-
fræðingur, til að lesa textann inn á
snældu fyrir mig og ég hlustaði á
hann í fjóra daga samfellt,“ segir
hann og bætir við að það hafi tekið
hann heilan dag að syngja lagið
sómasamlega. „Þetta er það erfið-
asta sem ég hef lent í,“ viðurkennir
hann en diskurinn mun fylgja öllum
Prins Pólo kössum.
freyrgigja@frettabladid.is
Syngur Prins Póló á pólsku
MAGNÚS ÓLAFSSON Ætlaði að fara til Póllands á sínum tíma og syngja lagið á pólsku.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Um fimmtán prósent.
Páll Magnússon.
Allan Borgvardt.
Ný plata með tónlistarmanninum
sáluga Pétri Kristjánssyni, Gamlar
myndir, með hans útgáfum af lögum
Kim Larsen, er komin út.
Fjölmargir listamenn komu að
gerð plötunnar, þar á meðal Jóhann
Ásmundssson, Magnús Kjartans-
son, Gulli Briem,
Eyjólfur Krist-
jánsson, Eiríkur
Hauksson, Stefán
Hilmarsson og
Bergsveinn Árelí-
usson. Skáldið
Kristján Hreins-
son samdi textana
á plötunni en auk
þess er hann að
leggja lokahöndina
á ævisögu Péturs,
sem ber heitið Pét-
ur poppari. Hún
kemur út fyrir
næstu jól. „Það
hafa verið sagðar
margar góðar
sögur af Pétri og það var eiginlega
synd að þurfa að hætta einhvers
staðar,“ segir hann um bókina.
„Þarna er mest stuðst við viðtöl og
vini og vandamenn,“ segir Kristján,
sem hafði rætt lítillega við Pétur
um gerð bókarinnar áður en hann
dó í fyrra.
Pétur syngur í níu lögum af
þeim fimmtán sem er að finna
á plötunni og þar af tókst
honum að ljúka algerlega við
að syngja fjögur þeirra. „Pétur
vildi hafa fimmtán lög. Hann
kom með 28 lög til mín og vildi
að ég byrjaði að búa til texta.
Við vorum með átján lög lengi
vel en minnkuðum við þau
niður í fimmtán og því mátti
ekkert breyta. Það var bara
svoleiðis.“
Að sögn Kristjáns var
Pétur mikill aðdáandi Kim
Larsen. „Hann fílaði Kim Larsen
alveg rosalega vel. Hann var hringj-
andi til Danmerkur í alla sem
þekktu til hans og spurði hvaða lög
væru best. Maður hefur samt ein-
kennilegar og blendnar tilfinnning-
ar gagnvart þessu öllu, að gefa út
verk sem maður heldur að sé eins
og aðalforinginn hefði viljað hafa
það. Ég er frekar sannfærður í dag
um að við höfum verið að gera rétt,
til dæmis með því að fá annað fólk
til liðs við okkur og alls ekki að
hætta við,“ segir hann.
Lokalag plötunnar heitir Svo
fljótt, eða Om lidt á frummálinu,
sem Pétur var búinn að ákveða að
yrði síðasta lagið. Að sögn Kristjáns
er lagið hálfgerður jarðarfarasálm-
ur rokkara í Danmörku og er nánast
undantekningarlaust leikið í jarðar-
förum þeirra. Fjallar það um
hversu skyndilega menn geta fallið
frá, sem var einmitt raunin með
Pétur.
freyr@frettabladid.is
KRISTJÁN HREINSSON: SKRIFAR ÆVISÖGU PÉTURS KRISTJÁNSSONAR
Heldur merkjum foringjans á lofti
FRÉTTIR AF FÓLKI
... fá Jón Þór Þorleifsson og
Gunnhildur Gunnarsdóttir fyrir
að minna á mikilvægi þess að
stunda öruggt kynlíf og ætla að
dreifa smokkum þeim málstað til
stuðnings.
HRÓSIÐ
Svart. Black is bjútífúl eins og maðurinn sagði. Auðvit-að fer svarti liturinn aldrei beinlínis úr tísku en hann
er misheitur og núna er hann logandi heitur enn einu
sinni. Svartir jakkar, buxur, pils, hvað sem er. Þetta virkar
allt. Á myndinni sést hönnun eftir hönnuðinn Jasmin
Shokrian.
Sálfræðingar. Fólk streymir núna til sálfræðinga í stórumstraumum. Það virðist vera heitt að fara til sálfræðings. Stað-
reyndin er sú að það er bara nokkuð heitt. Ef sjálfsálitið er í mol-
um er mun jákvæðara að eyða peningnum sínum í tíma hjá sál-
fræðingi heldur en að sóa honum í lýtaaðgerð.
Brúðkaup. Það er ekki hægt að segja annað en aðbrúðkaupin séu heit þessa dagana. Dæmi eru um
að menn séu að fara í sjö brúðkaup bara núna í sumar
og geti varla farið úr bænum um helgar vegna brúð-
kaupsanna. Þetta er svosum skiljanlegt, því hvern langar
að gifta sig í slabbinu í vetur? Sumarið er algjörlega tími
brúðkaupanna.
Sumarsafnplötur. Er í alvörunni einhver sem kaupirþetta dót? Af hverju að eyða peningum í safnplötu þeg-
ar þú getur kveikt á útvarpinu og hlustað á tilviljanakennd
lög frá mismunandi tónlistarmönnum þar. Kauptu þér
frekar plötu með einhverjum góðum tónlistarmanni sem
hefur lagt hjarta sitt í að skapa það listaverk.
MSG. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar til að kanna skaðsemiþriðja kryddsins sem er í mörgum matvælum og meðal annars oft í
kínverskum mat. Þó svo að ekki komi öllum saman um að
kryddið sé í raun skaðsamt þá er eitthvað tortryggilegt við
þetta allt saman. Best að forðast svona efni sem enginn
getur sagt til um hvort sé í lagi að láta inn fyrir varir sínar.
Subbuskapur á Austurvelli. Það eru ekki bara rónarnirsem eru til trafala á Austurvelli. Auðvitað er leiðinlegt
þegar fullt fólk hefur valið mann sem næsta spjallfélaga
en þegar annar almenningur lætur fara vel um sig á Aust-
urvelli með ís og annað góðgæti og asnast svo ekki til að
henda ruslinu í svotilgerðar tunnur þá má hann fara að
líta í eigin barm. Göngum vel um, fólk, þetta gengur ekki!
INNI ÚTI
PÉTUR KRISTJÁNSSON Pétur söng mörg fræg lög á sínum
tíma, þar á meðal Jenny Darling með Pelíkan.
KRISTJÁN HREINSSON Kristján er að leggja lokahönd á ævisögu Péturs Kristjánssonar.
Lárétt: 2 undirlag, 6 frá, 8 mar, 9 nafar,
11 belti, 12 kornmeti, 14 ilmefni, 16
íþróttafélag, 17 á fæti, 18 ærða, 20 átt,
21 skjögra.
Lóðrétt: 1 gangur, 3 ármynni, 4 ljúf ( um
skáldskap), 5 fantur, 7 mótaði, 10 ítalska
sjónvarpið, 13 blóm, 15 fuglar, 16 söng-
hópur, 19 til.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2gólf, 6af, 8sjó,9bor, 11ól,12
brauð,14mirra,16ka,17tær, 18óða,
20na,21riða.
Lóðrétt: 1labb,3ós,4ljóðræn,5fól,7
formaði,10rai,13urt, 15arar, 16kór, 19
að.