Fréttablaðið - 30.07.2005, Blaðsíða 16
Illugi Jökulsson gerir það að um-
talsefni í blaðagrein í Fréttablað-
inu sl. þriðjudag að ég undirrituð,
Arna Schram, blaðamaður á
Morgunblaðinu og formaður
Blaðamannafélags Íslands, hafi
haft skoðun á því sem hann kall-
ar „hitamál stéttarinnar“, semsé
því hversu langt eigi að ganga í
nafn- og myndbirtingum. Illugi
spyr hvort ég sé enn sama sinnis.
Já, skoðun mín er óbreytt. Fjöl-
miðlar eiga að fara varlega í
mynd- og nafnbirtingum eða að
kveða upp „dóma“ um fólk áður
en sekt þess er sönnuð fyrir dóm-
stólum, þ.e. þar til bærum yfir-
völdum. Fjölmiðlar eiga að taka
tillit til m.a. laga, dóma og al-
menningsálits. ■
30. júlí 2005 LAUGARDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
7
2
7
Vantar þig...
YFIR 150.000 ÍSLENDINGAR
LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ
MEÐALTALI Á HVERJUM DEGI.
SMÁAUGLÝSING Í FRÉTTA-
BLAÐINU ER ÓDÝR OG ÁHRIFARÍK
LEIÐ SEM TRYGGIR MESTU
HUGSANLEGU ÚTBREIÐSLU
Á SKILABOÐUM ÞÍNUM.
AUGLÝSINGIN ER AUK ÞESS BIRT
ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
Á VISIR.IS.
PANTAÐU SMÁAUGLÝSINGAR Í SÍMA 550 5000 EÐA Á VISIR.IS.
– SMÁAUGLÝSINGAR SEM ALLIR SJÁ
Stærstu eigendur Exista, sem
verður kjölfestufjárfestir Sím-
ans, eru Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir, sem hafa leitt sigur-
göngu framleiðslufyrirtækisins
Bakkavarar.
Ágúst er fæddur árið 1964 en
Lýður bróðir hans er fæddur
1967 og standa þeir bræður sitt-
hvoru megin við fertugt nú þeg-
ar þeir hafa byggt upp alþjóð-
lega fyrirtækið Bakkavör, auk
þess að vera stórir fjárfestar í
KB banka, Flögu og nú síðast í
Símanum.
Bakkavör byrjaði sem
hrognafyrirtæki, en með kaup-
um á Katsouris í Bretlandi og
sölu sjávarútvegshluta var
stefnan tekin á framleiðslu tilbú-
inna rétta, sem er markaður sem
þeir bræður telja munu vaxa
verulega á næstu árum. Bræð-
urnir voru sitt hvoru megin við
tvítugt þegar þeir stofnuðu
fyrirtækið. Eins og fleiri íslensk-
ir athafnamenn sóttu þeir ekki
framhaldsmenntun í viðskiptum
eftir framhaldsskóla, en Lýður
var í Versló á sama tíma og fleiri
sem hafa látið að sér kveða, svo
sem Jón Ásgeir Jóhannesson og
Björgólfur Thor Björgólfsson.
Ágúst var ár í Frakklandi og
sótti nám fyrir leiðsögumenn.
Hann hefur, þrátt fyrir miklar
annir í fyrirtækinu, farið sem
leiðsögumaður í gönguferðum
um landið og er mikill áhuga-
maður um útivist.
Sigurganga Bakkavarar var
þó ekki tóm sæluganga. Þeir
bræður máttu hafa mikið fyrir
því að halda því á floti í upphafi.
Það hefur einkennt
þá frá upphafi
að þeir hafa skýra sýn á framtíð-
ina og stefnan var sett á að
byggja fyrirtækið upp og stefna
á mikinn vöxt. Sú sýn hefur
gengið eftir og stefnir fyrir-
tækið á að verða alþjóðlegt stór-
fyrirtæki í matvælageiranum.
Enda þótt þeir bræður hafi haft
mikla trú á framtíð Bakkavarar
dugði það ekki til eitt og sér.
Fleiri þurftu að hafa trú á þeim
bræðrum ef draumur þeirra átti
að verða að veruleika.
Tveir menn léku lykilhlutverk
við uppbyggingu fyrirtækisins.
Sigurður Einarsson, stjórnarfor-
maður KB banka, hafði trú á
þeim bræðrum og studdi Kaup-
þing undir forystu Sigurðar upp-
byggingu félagsins. Því gleymdu
þeir bræður ekki og gerðust kjöl-
festufjárfestar í Kaupþingi
þegar þeir keyptu hlut Spron í
Meiði, sem nú heitir Exista. Hinn
sem reyndist þeim vel í krafti
þáverandi starfs síns er
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans. Brynjólfur var forstjóri
Granda og keypti Grandi í
Bakkavör á tímapunkti sem var
mikilvægur fyrir framtíð félags-
ins. Margir telja að kaup Exista á
Símanum nú séu líkt og þegar
þeir keyptu í Kaupþingi leið
þeirra bræðra til að þakka fyrir
sig. Hitt er annað að þótt þakkar-
hugur kunni að fylgja kaupunum
eru þeir bræður sjóaðir rekstr-
armenn og kaupin í KB banka
hafa skapað þeim mikinn auð.
Það mætti því allt eins líta svo á
að reynsla þeirra af samstarfi
við Brynjólf og Sigurð
ráði því að þeir telji fjármunum
sínum vel varið undir þeirra
stjórn.
Bræðurnir eru ólíkar persón-
ur. Ágúst er opinn og afar laginn
við samskipti, en Lýður er hæg-
ari, talnaglöggur og mikill
rekstrarmaður. Við stjórn
Bakkavarar hafa þeir reynst
sterk eining, þar sem styrkur
hvors um sig hefur notið sín við
uppbyggingu fyrirtækisins.
Mikil umsvif í viðskiptalífi kalla
oft á átök og að andstæðingar
hafi uppi lítt fögur orð hver um
annan. Þeir bræður láta lítið yfir
sér í þeim efnum og þeir sem
hafa átt við þá viðskipti og sam-
skipti tala einkar vel um þá. Þeir
þykja traustir og heiðarlegir en
væru vart þar sem þeir eru í dag
ef þeir væru ekki jafnframt
fylgnir sér.
Í viðskiptum Bakkavarar í
Bretlandi hefur þeim tekist að
byggja upp traust viðskipta-
sambönd við stærstu matvæla-
keðjurnar, svo sem Tesco, sem er
sú matvöruverslanakeðja í Bret-
landi sem hefur vaxið mest og er í
mestum útrásarhug. Þeir bræður
hafa átt góð samskipti við lykil-
menn fyrirtækisins og eru í
persónulegum vinskap við marga
lykilstjórnendur Tesco. Það sterka
samband hefur reynst þeim far-
sælt fram til þessa og mun leiða til
þess að Bakkavör mun fylgja
Tesco sem framleiðandi við upp-
byggingu Tesco sem alþjóðlegs
verslunarfyrirtækis. ■
MENN VIKUNNAR
Traustir bræ›ur
en ólíkir
MENN VIKUNNAR
ÁGÚST OG LÝÐUR GUÐMUNDSSYNIR,
KJÖLFESTUFJÁRFESTAR Í SÍMANUM.
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
–
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Já, sko›un mín er óbreytt
ARNA SCHRAM
BLAÐAMAÐUR
UMRÆÐAN
NAFN- OG MYND-
BIRTINGAR Í
FJÖLMIÐLUM